Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 4

Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ Púst og vatnskassar ehf Smiðjuvegi 4a (græn gata) Kópavogi. Símar 567 0840 – 696 0738 – 699 3737 Eitt mesta úrval landsins af vatnskössum í flestar gerðir bifreiða og vinnuvéla. Sérpantanir. Pústviðgerðir Bensíntankaviðgerðir Vatnskassaviðgerðir Þ að er eins og það sé kominn tíminn þegar þetta fer loks að gerast,“ segir Jón Trausti um ganginn í sölu nýrra bíla, en eins og viku- legt Bílablað Morgunblaðsins greindi frá fyrir skömmu náði Askja nýverið þeim áfanga að selja sinn þúsundasta bíl á árinu. „Enda er það löngu tíma- bært. Gengi krónunnar er nokkuð sterkt og stöðugt, miðað við það sem verið hefur, og góður horfur almennt í efnahagsmálum. Efnahags- umhverfið er allt að verða jákvæðara, trúi ég, og það er það sem fólk vill hafa á tilfinning- unni þegar það fær sér nýjan bíl.“ Margt spennandi í kortunum Að sögn Jóns Trausta hefur þetta ár gengið mjög vel, að því marki að árið 2014 er sterkasta ár Öskju frá upp- hafi. „Það sem af er ári höfum við selt um 700 Kia-bíla og 300 af Mercedes-Benz og þá erum við að tala um fólks- og atvinnubíla,“ segir Jón Trausti. Við höfum einnig verið að auka við okkar markaðshlutdeild sem er komin í 11,5%.“ Þegar talið berst að áhugaverðum nýjungum hjá Öskju segir Jón Trausti ýmislegt áhugavert vera á leiðinni. „Ef við byrjum Kia megin þá var nýr Sorento-jeppi kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París, sem er gríðarlega spennandi bíll. So- rento hefur verið með okkar mest seldu bílum og notið mikilla vin- sælda á Íslandi síðastliðin ár. Hann kemur á markaðinn snemma á ný- árinu og er bíll sem við bindum mikl- ar vonir við.“ Jón Trausti útskýrir að hinn nýi Sorento verði lengri en for- verinn og með meira innanrými, eyðslan minnki enn frekar en samt sé sama vegfríhæð undir honum. „Þá verður hann fáanlegur bæði 5 og 7 manna, og sú útfærsla sem við munum leggja helsta áherslu á verð- ur dísilbíllinn. Hann verður sjálf- skiptur, rétt um 200 hestöfl og gríð- arlega vel vandað til verka innanstokks þar sem efnisval og frá- gangur verður fyrsta flokks. Þetta er gríðarlega flottur bíll sem beðið er eftir.“ Rafmögnuð eftirvænting Hin nýjungin frá Kia er ekki síður áhugaverð en þar á ferðinni 100% prósent rafmagnsbíll að nafni Soul. „Þennan bíl munum við kynna hér á landi eftir 6 vikur eða svo. Hér er á ferðinni 2. kynslóð af Soul, hámarks- drægi hans er 212 kílómetrar þegar miðað er við kjöraðstæður. Hér á Ís- landi er kannski rétt að nefna tölur á bilinu 140 til 160 kílómetrar, ekki síst þegar íslensku vetur er annars vegar,“ bætir Jón Trausti við. Bíll- inn er um margt sérstakur í útliti og er það í takt við marga rafbíla; all- tént virðist það ekki spilla fyrir eft- irvæntingunni eins og Jón Trausti bendir á. „Í Noregi var Kia Soul kynntur í ágúst og upphaflega stóð til að panta þangað 900 bíla. Fljótlega kom í ljós að þá tölu þurfti að endurskoða og var hún aukin í 2.000 bíla. Nýjustu tölur gera svo ráð fyrir að seldir verði 4.000 bílar af þessari gerð í Noregi á árinu 2015.“ Jón Trausti bendir í framhaldinu á að umhverfið til reksturs á rafbílum sé á margan hátt keimlíkt hér og í Noregi. „Við erum með sama kostnað af rafmagn- inu, hér á landi eru heldur ekki greidd vörugjöld af rafmagnsbílum og enn um sinn er ekki greiddur virðisaukaskattur af þeim heldur. Við munum því geta boðið þennan flotta bíl á samkeppnishæfu verði.“ Jeppar og atvinnubílar frá Benz Það má með sanni segja að það hafi verið hrein flugeldasýning und- anfarin ár í kynningu nýrra bíla hjá Mercedes-Benz þar sem hvert mód- elið á fætur öðru hefur verið kynnt til sögunnar. Jón Trausti segir að þessi mikli fjöldi spennandi út- færslna af þessum vönduðu þýsku bílum sé augljós ástæða þess hve vel bílarnir hafa selst hér á landi sem erlendis. „Núna í vetur kemur til að mynda nýr Benz B-Class sem verð- ur nú í fyrsta sinn fáanlegur sem sjálfskiptur fjórhjóladrifinn með dís- ilvél. Það er nokkuð sem ég tel að muni henta mjög vel hér á Íslandi enda er hann í senn sparneytinn og rúmgóður. Auk þess hefur þetta módel verið vinsælt hjá okkur hing- að til.“ Á næsta ári hefst svo nýtt jeppaár hjá Mercedes-Benz, að sögn Jóns Trausta, og er þá von á mörgum nýj- um jeppum og jepplingum. „Til dæmis kemur nýr GLC-jeppi um mitt næsta ár, sem er arftaki GLK. Þá styttist í spennandi nýjungar í stóru jeppunum en það er best að bíða með þær fréttir uns nær dreg- ur,“ segir Jón Trausti, kankvís á svip, enda veit hann sem er að ávallt ríkir eftirvænting eftir stóru jepp- unum frá Benz. En meira fæst hann ekki til að láta uppi að svo stöddu. En öðru máli gegnir um atvinnu- bílana og Jón Trausti er allur af vilja gerður til að upplýsa blaðamann um þá hlið mála. „Það er að koma alger- lega ný lína af Mercedes-Benz og nefnast bílarnir Vito, Vito Tourer sem er hópferðabíll og svo V-Class sem er farþegabíll fyrir 6-8 farþega. Þessir bílar hafa lækkað talsvert hvað koltvísýringsgildið varðar og fyrir bragðið er verðið á þeim hag- stætt. Þannig að veturinn fram- undan er fullur af nýjungum og því mjög spennandi, bæði í fólks- og at- vinnubílum.“ jonagnar@mbl.is Yfir 1.000 bílar seldir það sem af er ári Salan hefur heldur betur gengið vel hjá Öskju það sem af er ári og 2014 er stærsta árið hjá fyrirtækinu frá stofnun, segir Jón Trausti Ólafsson framkvæmdastjóri. Draumabíll Mercedes-AMG C 63 S er þýsk hönnun, afl og hugvit í sinni reffilegustu mynd. Bíllinn er meðal nýjunga sem kynntar verða frá Mercedes-Benz þennan veturinn. Vinsæll Nýr Kia Sorento-jeppi kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París, sem er gríðarlega spennandi bíll. Sorento hefur verið með okkar mest seldu bílum og notið mikilla vinsælda á Íslandi síðastliðin ár,“ segir. Jón Trausti Frumsýning Volker Mornhinweg, yfirmaður sendibíladeildar Mercedes-Benz og Dr. Dieter Zetsche, stjórnarformaður Daimler AG, kynna nýjan Mercedes-Benz V-Class. Rafbíll Kia Soul hefur slegið í gegn í Noregi og er væntanlegur til Íslands í haust. Jón Trausti Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.