Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ J ú, það má segja að þessi flutningur sé óbeint tengd- ur brunanum í Skeifunni í sumar. Flutningur stóð reyndar til en óvissa um framtíð húsnæðisins í Skeifunni flýtti fyrir honum. Nýja verslunin á Bíldshöfðanum verður akkeri rekst- ursins,“ segir Stefán Bjarnason fjármálastjóri varahlutaverslunar- innar Stillingar við Morgunblaðið. Fyrirtækið opnaði nýverið nýja verslun að Bíldshöfða 10 og var Stefán spurður hvað fengist með flutningi þangað. „Mun stærri verslun og glæsilegri og vöruúrvalið verður þar af leiðandi meira. Þetta er um helmingi stærra húsnæði en við vorum í áður á Tangarhöfða. Það má segja að við gefum í með tilkomu þessarar verslunar. Hún tekur við af versluninni í Skeifunni sem framtíðarakkeri þjónustu- starfsemi okkar og verður þunga- miðja verslunarreksturs okkar. Þá má segja, að eðli bæjarins hafi verið að breytast og miðpunktur versl- unar að flytjast austar í hann,“ seg- ir Stefán, en auk nýju verslunar- innar rekur Stilling verslanir í Kópavogi, Hafnarfirði, Selfossi og Akureyri. „Það ríkir algjör óvissa um fram- tíð hússins í Skeifunni. Við vitum ekki hvort það verður rifið og end- urbyggt eða hvað verður þar yf- irleitt í framtíðinni. Það eru jafnvel uppi hugmyndir um að reisa þarna íbúðarhúsnæði en ekkert mun vera ákveðið. Í allri óvissunni gátum við ekki beðið. Það stóð hvort eð er til að flytja upp á Bíldshöfðann og við flýttum þeim flutningum vegna óvissunnar í Skeifunni,“ segir Stef- án Bjarnason. Bruninn í Skeifunni í sumar var ekki sá fyrsti sem bitnar á Stillingu. Húsnæðið brann líka árið 1975 ofan af fyrirtækinu en var endurbyggt. „Þetta er búið að vera þungt ár fyrir okkur, þessi bruni, sem óskemmtilegt var að upplifa í annað sinn á sama stað og síðan þurftum við að flýta flutningunum. Við hefð- um aldrei getað klárað það án þessa stórkostlega starfsfólks sem vinnur hérna með okkur. Það stóð sig með ólíkindum vel og lyfti algjöru Grett- istaki við þessar aðstæður. Við er- um einstaklega þakklátir fyrir það,“ segir Stefán. Stilling er rótgróið fjölskyldufyr- irtæki og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu. Fyrirtækið stofnaði Bjarni Júl- íusson árið 1960 eða fyrir 54 árum sem sérhæft hemlaverkstæði. Það eru synir Bjarna, þeir Stefán og Júlíus, sem reka fyrirtækið í dag en það er í meirihlutaeigu móður þeirra á níræðisaldri. „Við sjáum það bara sem stór- kostlegt tækifæri fyrir fyrirtækið að vera komið á þennan stað á Bíldshöfðanum. Þetta er einn besti staður í bænum að vera á, með nán- ast ótakmörkuðum fjölda bílastæða. Það skiptir miklu máli fyrir við- skiptavininn,“ segir Stefán Bjarna- son að lokum. agas@mbl.is Þjónusta „Við sjáum það bara sem stórkostlegt tækifæri fyrir fyrirtækið að vera komið á þennan stað á Bíldshöfðanum. Þetta er einn besti staður í bænum að vera á, með nánast ótakmörkuðum fjölda bílastæða. Stilling varpar akkeri á Bíldshöfða Morgunblaðið/Ómar Flutningaár Við hefðum aldrei getað klárað það án þessa stórkostlega starfsfólks sem vinnur hérna með okkur. Það stóð sig með ólíkindum vel og lyfti algjöru Grettistaki við þessar aðstæður. Við erum einstaklega þakklátir fyrir það,“ segir Stefán. Stórhugur Hér er mun stærri verslun og glæsilegri og vöruúrvalið verður þar af leiðandi meira. Þetta er um helmingi stærra húsnæði en við vorum í áður á Tangarhöfða. Það má segja að við gefum í með tilkomu þessarar verslunar,“ segir Stefán. Nýja verslunin á Bíldshöfðanum verður akkeri rekstursins, segir Stefán Bjarnason fjármálastjóri varahlutaverslunarinnar Stillingar. HEIMSKLASSA HLJÓMFLUTNINGUR LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 · www.ormsson. is · Verslanir og umboðsmenn um land al l t BÍLGEISLASPILARI · DEH-X3600UI 4X50 W MOSFET magnari. Útvarp með 24 stöðva minni. Spilar: CD-R/RW, MP3, WMA, WAV. AUX og USB tengi á framhlið. EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið– og hátóna. Spilar og hleður iPod í gegnum USB (snúra fylgir ekki). Multi-Colour skjár. Verð: 28.900 23.100* *Eftir niðurfellingu Ormsson á vörugjaldi Veldu vandað – það borgar sig alltaf. Úrval af gæðahátölurum frá Pioneer 4X50 Mosfet magnari · Útvarp með 24 stöðva minni · Spilar: CD, MP3, WMA WAV · USB og Aux-in af framan Verð: 19.900 15.900* BÍLGEISLASPILARI · DEH-150MP - fyrir heimilin í landinu Best í bílinn ...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.