Morgunblaðið - 10.10.2014, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25
Þróttur – Til allra verka
Mold og sandur
Grjót og
grjóthleðsla
Fellum tré
Fjarlægjum
garðaúrgang
!
þurfa að plaffa aðra niður ellegar
vera sjálfir plaffaðir niður.
Gengur spilunin út á að gera
þennan hermannaleik sem raun-
verulegastan og fylgir því að geta
bæði flogið og ekið um á hinum
ýmsu hertólum.
Í Battlefield 4 er að finna allstórt
úrval farartækja fyrir bæði loft, láð
og lög. Þó ekki sé ekið eftir kapp-
akstursbrautum og markmiðið ekki
að vera fyrstur í mark þá þarf að aka
greitt og af varkárni því óvinurinn
gæti annars komið góðu skoti á
skriðdrekann eða jeppann.
Eftir því sem leikmenn safna
reynslu geta þeir svo átt ögn við far-
artækin, s.s. valið sér hvers konar
fallbyssur, vélbyssur og rakettur
þeir vilja nota og hvernig farartækið
er málað.
TrackMania
Ekki allir kappakstursleikir snúast
um það eitt að ýta á bensíngjöfina.
Sumir leikir, eins og TrackMania,
snúast líka um það að fá útrás fyrir
sköpunargáfurnar.
TrackMania 2 kom út árið 2011 og
viðbætur árin 2012 og 2013. Í sjálfu
sér er leikurinn frekar einfaldur
borið saman við háþróuðustu bíla-
leiki, með ögn lakari grafík, en það
er möguleikinn á að skapa algjörar
fantasíu-kappakstursbrautir sem
gefur leiknum sjarmann.
Á YouTube má finna upptökur af
kappakstri í gegnum heimasmíðaðar
brautir sem eru eins og abstrakt
listaverk, endalausar glufur og
göng, beygjur og sveigjur.
Skemmtilegast er að horfa á
brautir sem hafa verið hannaðar
þannig að aðeins þarf að halda inni
„áfram“-takkanum. Bíllinn tekur af
stað og þeysist eftir flóknu völund-
arhúsi og virðist vera alveg við það
að klessa á þegar hann rétt smýgur
á milli hindrana eða lendir naumlega
á réttum stað.
Need for Speed Most Wanted
Hefur þig langað til að setjast á bak
við stýrið á Lamborghini Aventa-
dor? Viltu athuga hvor kemst hrað-
ar, Pagani Huayra eða Koenigsegg?
Need for Speed-leikirnir skera sig
frá leikjunum sem taldir hafa verið
upp hér að ofan að því leyti að þar
eru allir bílarnir „alvöru“.
Er hægt að aka allt frá Audi A1 og
Ford Focus yfir í Porsche 911,
Dodge Charger og Bugatti Veyron.
Má hafa ýmsan hátt á kappakstr-
inum og oft hægt að brjóta regl-
urnar á skemmtilega vegu. Mest er
fjörið þegar spilarar reyna að beita
hvor annan bolabrögðum, klessa og
dælda, eða stytta sér leið með því að
fljúga í gegnum auglýsingaskilti og
önnur mannvirki.
ai@mbl.is
Skemmtilegast er að horfa
á brautir sem hafa verið
hannaðar þannig að aðeins
þarf að halda inni „áfram“-
takkanum. Bíllinn tekur af
stað og þeysist eftir flóknu
völundarhúsi og virðist
vera alveg við það að
klessa á
Félagar Grand Theft Auto leikirnir höfða sterklega til fólks með bílaáhuga. Glæponar að leggja af stað.
Fjör Mario Kart 8 er líflegur leikur á gleðilegu nótunum.
Hvellir Í Battlefield 4 er
m.a. hægt að þeysa um á
motorhjóli og valda mikl-
um óskunda.