Morgunblaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Opið
mánudaga til
fimmtudaga
8-17
föstudögum
8-15
Er ekki kominn tími til að
yfirfara bílinn fyrir veturinn?564 5520
bilajoa.is
Ó
lafur Kolbeins sölustjóri
hjá Suzuki segir hafa
verið töluverða aukningu
í sölu það sem af er
árinu. „Allt síðasta ár
seldum við 487 bíla en erum í dag
komin yfir 570 bíla markið meðan
enn eru tæpir þrír mánuðir eftir af
árinu. Haldi salan áfram á þessari
braut seljum við yfir 600 bíla fyrir
árslok.“
Ólafur skrifar vöxtinn bæði á
batnandi efnahagsástand og eins að
Suzuki hefur verið að kynna til sög-
unnar vel heppnuð módel sem falla í
kramið hjá íslenskum neytendum.
„Síðasta haust kynntum við S-
Cross, nýjan jeppling, og hefur
hann gengið mjög vel hjá okkur. Er
þar á ferð vel útbúinn bíll og spar-
neytinn.“
Bílað sem nostrað
hefur verið við
Bílaleigurnar hafa verið duglegar
að kaupa Suzuki-bíla á und-
anförnum árum og fyrir vikið er
hægt að finna fjölda notaðra Su-
zuki-bíla til sölu. Ólafur segir oft
hægt að gera mjög hagstæð kaup í
þessum bílum. „Þó svo að bíla-
leigubílum sé mikið ekið á meðan
þeir eru í útleigu þá er líka mjög vel
um þá hugsað. Bílaleigurnar sinna
öllu viðhaldi af vandvirkni og þegar
bílarnir koma til okkar fara þeir í
stranga skoðun þar sem allt er lag-
að sem laga þarf. Eru sumir bílarnir
teknir alveg í gegn og fá t.d. nýja
umferð af lakki,“ útskýrir hann.
„Suzuki-bílum fylgir þriggja ára
verksmiðjuábyrgð svo ef keyptur er
eins eða tveggja ára gamalla bíla-
leigubíll er enn töluverður tími eftir
af ábyrgðinni.“
Suzuki Swift er enn sá bíll í versl-
uninni sem almenningur kaupir
helst. Segir Ólafur verðið mjög við-
ráðanlegt, um 2,5 milljónir fyrir
glænýjan bílinn. „Bíllinn var endur-
hannaður árið 2011 og aftur breytt
ögn árið 2013. Útkoman úr breyt-
ingunum var mjög góð og þetta er
bæði hentugur og hagkvæmur bíll
til hversdagsnota.“
Ekki hrædd við íburð
Þeir sem fara í dýrari og stærri
módelin láta oft eftir sér að velja
íburðarmeiri útgáfurnar en margir
bílar Suzuki eru fáanlegir í svokall-
aðri GLX-útgáfu þar sem meðal an-
ars fylgir leðurinrétting og sóllúga.
„Þessi hópur neytenda er tilbúinn
að borga aðeins meira og fá þá
meiri útbúnað með bílnum. Þessi
aukna fjárfesting heldur verði sínu
ágætlega og lætur bílinn skera sig
betur úr fjöldanum þegar kemur að
endursölu.“
Af nýjum bílum sem eru á leiðinni
nefnir Óafur Suzuki Celerio, rúm-
góðan smábíl með nokkuð sterka vél
en mjög lágar útblásturstölur. „Su-
zuki Swift Sport er líka væntanegur
í kröftugri fimm dyra útfærslu en
mestar vonir bindum við við nýjan
Suzuki Vitara sem kynntur var á
bílasýningunni í París.“
Tekur nýi Vitara við af Grand
Vitara. „Hönnunin er nútímaleg og
flott og mikið lagt í þennan bíl.
Grand Vitara dettur út af markaði
2015 en þessi kemur í staðinn, ögn
minni en sportlegur í útliti og knár.
Verður bílinn fáanlegur í hefð-
bundnum einlit eða í nýstárlegri tví-
lit sem gefur bílnum sérstakan
svip.“
Í nýju Vitara-bílunum verður svo-
kallað ALLGRIP-drif. „Bíllinn er
þá með framhjóladrif í grunninn en
hægt að velja snjóstillingu, sport-
stillingu eða læsa drifunum og út-
koman öflugur og fjölhæfur fjór-
hjóladrifinn bíll. Gott
afþreyingarkerfi fylgir sem stað-
albúnaður, Bluetooth tenging og
CarPlay-stýrikerfið frá Apple sem
m.a. heldur utan um leiðsögukerfið
og tenginguna við Apple-snjalltækin
í bílnum.“ ai@mbl.is
Geta gert góð kaup í notuðum bílaleigubíl
Bílaleigurnar hafa verið
duglegar að kaupa Su-
zuki og mikið framboð
er af notuðum en nýleg-
um og vandlega yf-
irförnum bílaleigubílum
til sölu. Sportlegur og
tæknivæddur Vitara á
eftir að vekja lukku.
Hönnunin er nútímaleg
og flott og mikið lagt í
þennan bíl. Grand Vit-
ara dettur út af mark-
aði 2015 en þessi kem-
ur í staðinn, ögn minni
en sportlegur í útliti og
knár. Verður bílinn fá-
anlegur í hefðbundnum
einlit eða í nýstárlegri
tvílit sem gefur bílnum
sérstakan svip.
Morgunblaðið/Eggert
Vöxtur „Síðasta haust kynntum við S-Cross, nýjan jeppling, og hefur hann gengið mjög vel hjá okkur. Er þar á ferð vel útbúinn bíll og sparneytinn.“ segir Ólafur.
Suzuki er ekki bara þekkt fyrir bíla.
Suzuki mótorhjólin eiga sér marga
dygga aðdáendur og í ófáum bíl-
skúrum og svefnherbergjum ungra
manna má finna veggspjald af víga-
legri Hayabúsu eða kraftalega
byggðum Intruder.
Segir Ólafur enn vera litla hreyf-
ingu á mótorhjólamarkaði og langt í
að sölutölurnar nái sömu hæðum og
sáust þegar góðærið var og hét.
„Hins vegar hafa rafmagnsvesp-
urnar notið töluverðra vinsælda,
einkum hjá yngstu kynslóðunum og
svo hjá eldri viðskiptavinum. Eru
þessar vespur ódýr og einfaldur
samgöngumáti og koma sér vel þeg-
ar skjótast þarf stutta vegalengd.“
Mótorhjólasalan mun vafalítið
taka við sér á endanum en Ólafur
segir að fyrst þurfi bílamarkaðurinn
að braggast meira. „Reynslan kennir
okkur að mótorhjólasalan tekur kipp
ári seinna en bílasalan.“
Rafmagnsvespurnar rjúka út
Morgunblaðið/Eggert
Hraði Mótorhjól seljast betur þegar sumrin eru þurr og björt.