Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.10.2014, Qupperneq 32
32 | MORGUNBLAÐIÐ Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is Opið: 8 :00 - 18 :00 mánud .– fimm tud., 8:00 - 1 7:00 fö stud, bílalakk frá þýska fyrirtækinu Ekki bara fyrir fagmenn líka fyrir þig Eigum einnig sprautukönnur, réttingahamra, einnota hanska og pensla. HÁGÆÐA F riðbert Friðbertsson segir söluna í dag vera mesta í smærri bílum og jepp- lingum. „Vaxandi hlutur minnstu bílanna í bílaflota lands- manna er í takt við þá þróun sem við höfum séð annars staðar á Norðurlöndum. Í Danmörku eru þannig 60% bílaflotans smærri bílar. Rannsóknir á íslenska mark- aðinum sýna að líklegt er að bíla- salan muni halda áfram á þessari braut.“ Friðbert er forstjóri Heklu. Hann segir von á mörgum spenn- andi nýjum bílum á næstunni. „Nýr VW Passat var kynntur á bílasýningunni í París á dögunum, mjög flottur bíll og vel búinn sem hefur fengið góða dóma hjá bíla- blaðamönnum. Einnig er vænt- anlegur nýr Skoda Fabia-smábíll sem ætti að henta mjög vel ís- lenskum markaði.“ Rafmagnið vekur lukku Neytendur hér á landi velja í æ meira mæli bíla sem ganga fyrir orkugjöfum öðrum en bensíni og dísil. Segir Friðbert nýjan raf- magns-Golf, e-Golf, koma á mark- aðinn í lok árs en þegar hafa bílar á borð við rafmagns-e-up! og Audi A3 e-tron-tvinnbílinn fengið góðar viðtökur. „Mitsubishi Outlander-jeppinn selst vel í tvinnútgáfu. Bíllinn er tvíorkubíll, knúinn með rafmagni og bensíni. Hægt er að aka allt að 50 km á rafmagni og 600-700 km til viðbótar á fullum bensíntanki. Þar sem dæmigerður daglegur akstur einkabíls á höfuðborg- arsvæðinu er innan við 40 km er þetta bíll sem margir aka á raf- magnshleðslunni eingöngu. Samt hafa þeir alltaf möguleikann á að leggja af stað út fyrir bæj- armörkin.“ Lítið virðist hafa farið fyrir um- ræðunni um metanbíla það sem af er árinu en Friðbert segir það ekki þýða að þessir bílar eigi ekki er- indi á Íslandi. „Um tíma féllu met- anbílar í skuggann af umræðu um rafmagnsbíla og neikvæð umræða hefur verið um bíla sem breytt var á Íslandi til að þeir gætu gengið fyrir metani. Hekla selur einungis metanbíla sem koma tilbúnir frá framleiðendum og hafa þeir reynst vel.“ Bendir Friðbert á að metan- afgreiðslustöðvum fjölgi hratt og eftirspurnin eftir þessu eldsneyti hafi verið meiri en gert var ráð fyrir. „Hægt er að fylla á metant- ankinn á nokkrum stöðum á höfuð- borgarsvæðinu og nýlega var opn- uð metanstöð á Akureyri. Þeir sem velja metanbíla sjá bæði um helm- ings-sparnað í eldsneytiskostnaði borið saman við bensín- og dís- ilbíla, og um leið gera þeir um- hverfinu gott því metan-vélarnar skila frá sér hreinni útblæstri.“ Lúxus í litlum pakka Að sögn Friðberts leitar þorri við- skiptavina í framleiðendur með hagstætt verð, s.s. Skoda og Volkswagen. Þar með er ekki sagt að bílar í lúxusflokki, eins og Audi, safni ryki í sýningarsölunum. Hjálpar þar til að Audi og aðrir framleiðendur í sama gæðaflokki hafa stækkað mjög hjá sér fram- boðið á bílum og hægt er að finna minni lúxusubíla sem eru á hag- stæðu verði. „Það er hægt að kaupa Audi A3 á minna en fimm milljónir og er þar kominn bíll í hæsta gæðaflokki sem bæði hefur sparneytna og kröftuga vél og er hlaðinn tækni- búnaði.“ Talandi um lúxusbíla þá nefnir Friðbert nýjan Audi TT sem frum- sýndur var í Genf fyrr á árinu og fer í sölu árið 2015. „Ein merkileg- asta nýjungin í þeim bíl er mæla- borðið en þar hefur hefðbundnum skífum og vísum verið skipt út fyr- ir tölvuskjá sem sýnir bæði hraða og snúning samhliða því að hýsa leiðsögukerfið.“ ai@mbl.is Sala á nýjum og notuðum bílum er farin að glæðast. Friðbert segir að vegna samdráttar sem varð á innflutningi nýrra bíla sé greini- legur skortur á ökutækjum af ár- gerðum 2009-2011 og bílar á þessum aldri sem koma á mark- aðinn seljist vel. „Eins og und- anfarin ár eru það eyðslufrekir bensínbílar sem erfiðast er að selja.“ Nýlegir notaðir bílar seljast vel Rafmagn og metan sækja enn á Mitsubishi Outlander tvinn-jeppinn getur farið 50 km á rafmagni áður en bensínvélin tekur við. Dæmigerður daglegur innanbæjarakstur er innan við 40 km svo að margir aka jeppanum eingöngu á rafmagninu. Framtíðin Friðbert Friðbertsson segir rannsóknir sýna að samsetning bílaflotans á Íslandi mun halda áfram að þróast á þann veg að smábílum fer fjölgandi. Dreki Framleiðendur lúxusbila hafa útvíkkað framboðið og hægt að fá lúxusinn í smáum pökkum ef fólk vill síður kaupa stóru og dýru drossíurnar. Hægt er að fylla á metant- ankinn á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og nýlega var opnuð met- anstöð á Akureyri. Þeir sem velja metanbíla sjá bæði um helmings-sparnað í eldsneytiskostnaði borið saman við bensín- og dís- ilbíla Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.