Morgunblaðið - 10.10.2014, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ | 33
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
Citroën Nemo er með lægsta verðmiðann á markaðnum. Gerðu samanburð og veldu hagkvæman og lipran sendibíl sem
uppfyllir allar þínar kröfur. Nemo er vel búinn og sparneytinn, hvort sem þú velur bensín eða dísil. Hliðarhurðir beggja
vegna auðvelda hleðslu og hægt er að flytja lengri hluti með því að fella niður skilrúmið. Kauptu hagkvæman Citroën Nemo,
við aðstoðum þig með fjármögnun.
Komdu í reynsluakstur.
CITROËN NEMO ER HAGKVÆMASTI KOSTURINN
citroen.is
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
• LÆGSTA VERÐIÐ • HLIÐARHURÐIR BEGGJA VEGNA • FELLANLEGT SKILRÚM• SPARNEYTINN •
CITROËN NEMO VAN 6 HURÐA
VERÐ FRÁ: 1.904.382 KR. ÁN VSK
VERÐ FRÁ: 2.390.000 KR. MEÐ VSK
HAGKVÆMASTI KOSTURINN
BESTA
VERÐIÐ
G
estur Benediktsson hjá
Bernhard, umboðsaðila
Honda og Peugeot, segir
bílasölu hafa gengið vel í
ár. „Honda CR-V er búinn
að festa sig í sessi í flokki borg-
arjeppa og hefur hann verið einn sá
mest seldi í sínum flokki í gegnum ár-
in, allt frá því fyrsta kynslóð kom á
götuna 1997. Frá Peugeot er fjöl-
breytt úrval bíla með gjörbreyttri
hönnun, lága bilanatíðni og litla elds-
neytiseyðslu sem virkilega erfitt er að
keppa við.“
Allt sem prýða má einn bíl
Meðal þeirra bíla sem hafa nýverið
komið á markað frá Peugeot er hinn
margverðlaunaði Peugeot 308. „Í síð-
ustu viku fékk sá bíll íslensku verð-
launin Stálstýrið eftir að hafa verið
valinn bíll ársins 2015. Var 308-bíllinn
einnig valinn bíll ársins í Evrópu og
að dómi blaðamanna frá tugum þjóða
bar hann af með miklum yfirburð-
um,“ segir Gestur.
Pegeot 308 þykir fyrsta flokks,
sama hvaða þættir eru skoðaðir.
„Þykja aksturseiginleikarnir ákaf-
lega góðir, útblásturstölurnar eru
með lægsta móti og fullkominn ör-
yggisbúnaður verndar bæði öku-
mann, farþega og gangandi vegfar-
endur. Að innan er hönnun bílsins
líka mjög nýstárleg og vel heppnuð.
Er m.a. að finna stóran snertiskjá í
miðju mælaborðinu þar sem þess hef-
ur verið gætt að skjárinn veiti góða
svörun við snertingu og stjórnborðið
þægilegt í notkun.“
Býst Gestur við mjög miklum
áhuga þegar Peugeot 308 verður fá-
anlegur í skutbílsútgáfu á næsta ári.
„Þar held ég að verði kominn bíll sem
hentar mjög vel þörfum Íslendinga,
með mikið farangurs- og geymslu-
rými.“
Fleiri áhugaverðir bílar eru á leið-
inni „Von er á 208 GTi fljótlega, fal-
legum og kraftmiklum smábíl sem
bílaáhugamenn bíða spenntir eftir að
kynnast. Vilja margir meina að 208
GTi sé arftaki Peugeot 205 sem var á
markaðinum fyrir þremur áratugum
og þótti mikill afburðabíll.“
Eru nýjungarnar einnig í atvinnu-
bílunum. Segir Gestur að Peugeot
hafi gert ýmsar góðar breytingar á
sendibílunum og styttist í nýjan Box-
er. „Hafa bílarnir bæði fengið andlits-
lyftingu og meiri búnað. Standa
sendibílar Peugeot vel að vígi nú þeg-
ar fyrirtæki á Íslandi virðast aftur
treysta sér til að endurnýja bílaflot-
ann sinn, en eldsneytisnýting þessara
bíla er með því besta sem gerist og
býður upp á töluverðan sparnað í
rekstrarkostnaði.“ ai@mbl.is
Mikill áhugi á Peugeot 308
Var valinn bíll ársins í
Evrópu með miklum
yfirburðum og einnig
bíll ársins á Íslandi.
Morgunblaðið/Golli
Afbragð „Þykja aksturseiginleikarnir ákaflega góðir og útblásturstölurnar eru með lægsta móti,“ segir Gestur um verðlaunabílinn 308 frá Peugeot.
Bílaframleiðandinn Honda er ekki síður þekktur fyrir falleg og hraðskreið
mótorhjól en góða bíla. Segir Gestur söluna á mótorhjólum vera líflegri í
ár heldur en undanfarin ár. „Þessi mikla vætutíð sem verið hefur und-
anfarin tvö ár hefur ekki beint verið að hjálpa okkur, veðrið hefur gíf-
urlega mikið að segja en salan er líflegust þegar sumrin eru sólrík og
þurr.“
Mótorhjólin freista