Morgunblaðið - 25.11.2014, Page 14

Morgunblaðið - 25.11.2014, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2014 Kokkalandsliðið vann gullverðlaun í Heimsmeistarakeppninni í Lúx- emborg eftir frammistöðu sína í fyrri hluta keppninnar, heitum rétt- um, á sunnudag, niðurstaðan var kynnt í gær. Seinni hlutinn er á miðvikudag, þá er viðfangsefnið kalt borð og ættu lokaúrslit í keppninni að verða ljós á fimmtu- dag. Liðið hafði sex klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti í fyrra- dag. Til að fá gull þarf lið að ná minnst 90 stigum. Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði segir að tvær þjóðir, Íslendingar og Bandaríkja- menn, hafi náð þeim árangri en fleiri gætu enn bæst við. „Það er mikið eftir en þetta kemur allt í ljós. Við vitum ekki alveg hver stað- an er, hvort við vorum með hátt gull, 95 stig eða 97. Þá höfum við örugglega verið hæst en það er oft mjótt á mununum hjá efstu þjóð- um,“ sagði Þráinn Freyr. Hafliði Halldórsson, fram- kvæmdastjóri liðsins, segist vera mjög ánægður með þennan árang- ur. „Við höfum lagt áherslu á að nota íslenskt hágæðahráefni, meðal annars lambakjötið okkar, þorsk- inn, humarinn, skyrið og íslenskt grænmeti. Þetta hefur fallið vel í kramið hjá dómurunum. Í dóm- gæslunni er ekki bara bragð, útlit, samsetning og hráefnisval metið heldur er einnig tekið mið af fag- mennsku við undirbúning og hvern- ig liðið vinnur saman að matargerð- inni í keppniseldhúsinu. Í þeim þáttum stóð liðið sig einnig vel.“ Kokkalandsliðið hefur tvo sólar- hringa til að útbúa um 30 rétti sem verða til sýnis á keppnisstað á mið- vikudaginn. kjon@mbl.is Hrepptu gullið Kokkalandsliðið vann gullverðlaun í fyrri hluta keppninnar í gær og fagnaði árangrinum ákaft í keppniseldhúsinu í Lúxemborg. Kokkalandsliðið stendur sig vel  Seinni hluti HM á miðvikudag og úrslit verða kynnt daginn eftir SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR. FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST. Dreifing: HÁR EHF s. 568 8305 | har@har.is REDKEN Iceland á vertu vinur SÖLUSTAÐIR REDKEN FAGFÓLK SALON REYKJAVÍK SENTER SCALA SALON VEH PAPILLA KÚLTÚRA LABELLA MEDULLA N-HÁRSTOFA HÖFUÐLAUSNIR HJÁ DÚDDA MENSÝ OZIO REDKEN hárvörurnar gera hárið heilbrigt, fallegt og fyllir það lífi Blonde Idol FYRIR LJÓST HÁR All Soft FYRIR ÞURRT HÁR Curvaceous FYRIR KRULLAÐ HÁR Smooth Lock FYRIR ÚFIÐ HÁR Color Extend Magnetics FYRIR LITAÐ HÁR Body Full FYRIR FÍNGERT HÁR Diamond Oil FYRIR LÍFLAUST/ SKEMMT HÁR High shine FYRIR LÍFLAUST/ FÍNGERT HÁR Cerafill FYRIR HÁRLOS OG ÞUNNT HÁR Extreme FYRIR SKEMMT HÁR Color Extend Sun FYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ Clear Moisture FYRIR ÓLITAÐ HÁR Einar Jónsson, bóndi á Sjónarhóli í Mývatnssveit, hefur veitt rúmlega 150 mýs í heimatilbúna gildru. Einar segir að töluverður músagangur sé við fjárhúsin sín og hann viti til þess að músagangur sé víða mikill í sveit- inni. „Ég bý til gildruna úr tunnu sem hefur hjól innan í og þegar þær detta af hjólinu þá falla þær ofan í vatn og ljúka sinni ævi. Þetta eru langbestu gildrurnar,“ segir Einar ánægður með afraksturinn. Mýs verða seint taldar til bestu vina mannsins en vegna hlýinda er músastofn landsins í örum vexti. „Það er töluvert af mús hér í sveit- inni þessa dagana. Mun meira en síðustu ár. Það er búið að vera góð tíð fyrir mýsnar síðan í sumar og það má sjá mikið af þeim skottast í kringum húsin.“ Lítið var við mengun Einhverjir hafa haldið því fram að vegna gosmengunarinnar frá Holu- hrauni séu mýsnar í auknum mæli að flýja inn í fjárhús eða jafnvel íbúðarhús. Mývatnssveitin er mjög nálægt eldsumbrotunum í Holu- hrauni en þrátt fyrir það segir Einar að hann verði lítið var við mengun. „Nú er sunnanátt og það finnst ekk- ert í loftinu núna.“ Þrátt fyrir góða músaveiði segir Einar að ekkert lát sé á músum sem ganga í gildruna. „Síðan ég tók myndina hefur bæst töluverður fjöldi við. Þetta er aðeins að fækka enda hefur maður verið duglegur.“ Hann býst þó ekki við að þetta verði jólasteikin í ár á Sjónarhóli. „Það gæti reyndar verið skemmtileg tilraun að hreinsa þær og djúp- steikja. Já eða prófa að setja í reyk,“ segir hann og hlær en skammt frá bæ Einars er reykhúsið á Skútu- stöðum sem er eitt frægasta reyk- hús landsins en Gylfi, eigandi þess, sló eftirminnilega í gegn í þáttum Gísla Arnar, Nautnir Norðursins, á RÚV fyrr í haust. benedikt@mbl.is Mikill músagangur í Mývatnssveit í haust  Góð tíð fyrir mýsnar frá því í sumar  Heimatilbúin gildra Ljósmynd/Einar Jónsson Músafjöldi Mynd af nokkrum músum sem höfðu gengið í gildru Einars. „Samskipti lögreglustjóra eru við alla starfsmenn ráðuneytis án tillits til stöðu þeirra innan ráðuneytisins. Það ræðst af efni hvers erindis hver starfsmanna ráðuneytis er í sam- skiptum við lögreglustjóra. Í þessum samskiptum hefur það aldrei gerst að þurft hafi að efast um heimild starfsmanns ráðuneytis til að eiga í samskiptum við lögreglustjóra eða heldur að þau hafi með réttum hætti farið í skjalasafn ráðuneytisins.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá stjórn Lögreglustjórafélags Íslands en tilefnið eru fréttir að und- anförnu um það hvort Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglu- stjóra á Suðurnesjum og núverandi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðis- ins, hafi verið heimilt að senda grein- argerð um mál hælisleitanda til þá- verandi aðstoðarmanns innanríkis- ráðherra sem dæmdur var nýverið í skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka gögnum um málið til fjölmiðla. „Í fréttum undanfarna daga um grein- argerð, sem þáverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum sendi fyrrverandi að- stoðarmanni innanríkisráðherra um málefni hælisleitanda, hefur á því borið að samskipti lögreglustjórans og aðstoðarmannsins vegna greinar- gerðarinnar hafa verið gerð tor- tryggileg. Er það gert með því að láta að því liggja að lögreglustjórinn beri með einhverjum hætti ábyrgð á aðkomu aðstoðarmannsins og því að hann vistaði ekki minnisblaðið í skjalasafni ráðuneytisins,“ segir í til- kynningunni. Þá kemur fram að þetta eigi bæði við um embættismenn ráðuneytis og aðstoðarmenn ráðherra. „Lögreglu- stjórar líta einfaldlega svo á að ekki þurfi að efast um umboð starfs- manna ráðuneytis til samskipta við lögreglustjóra.“ Ekki efast um umboð  Löreglustjórafélagið telur heimilt að senda greinargerð Morgunblaðið/Eggert Lögreglustjórar Sigríði Björk var heimilt að senda greinargerð. Herjólfur siglir aðeins eina ferð til Vestmanna- eyja í dag og á morgun. Siglt verður frá Þor- lákshöfn báða dagana. Það stafar af því að samkvæmt öldu- spá verður ófært til Landeyja- hafnar þessa daga. Ástæðan fyrir því að aðeins er hægt að sigla eina ferð meðan siglt er frá Þorlákshöfn er við- gerðir sem standa yfir á skipinu. Búnaður sem dregur úr veltingi bilaði fyrir skömmu og hófst við- gerð í gær. Skipta þarf um hluti í svonefndum veltiuggum og tekur sú framkvæmd sjö til tíu daga. Þar til viðgerð er lokið má búast við talsverðum veltingi á siglingunni milli Þorlákshafnar og Vest- mannaeyja. Aðeins ein sigling Herjólfs til Eyja í dag og á morgun Herjólfur Viðgerðir standa yfir.. Forréttur Hægeldaður íslenskur þorskur og pönnusteiktur humar, fram- reiddur með epla- og jarð- skokkasalati, agúrku, kínóa, skelfisksósu og dill-sinneps- vinaigrette. Aðalréttur Grilluð íslensk lambamjöðm með vel elduðum lambaskanka og -tungu. Framreidd með selju- rót, kartöflu- og sveppakrók- ettu, gljáðum gulrótum og perlulauk, rósakáli og baunum ásamt blóðbergs-lambasósu með sveppum. Eftirréttur Jarðarberja- og jógúrtmús með dökkum súkkulaðitoppi ásamt skyr-ís, möndlu-karamelluköku, þeyttum sýrðum rjóma, jarð- arberjum og jarðarberjasósu. Matseðillinn sem fékk gullið HM Í LÚXEMBORG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.