Morgunblaðið - 25.11.2014, Page 16

Morgunblaðið - 25.11.2014, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 2014 að eiga sér stað í hverju tilviki. „Ís- lenskir dómstólar munu þurfa að líta til allra atvika, til dæmis hvort viðkomandi lántaki teljist almennur neytandi, sem er ágætlega upplýst- ur, athugull og forsjáll“, eins og kemur fram í 94. málsgrein álitsins. Jafnvel þó svo að neytandi hafi ekki fengið tilskildar upplýsingar verður að meta hvort hann hefði átt að vita betur. Það getur til dæmis skipt máli hvort neytandi hafi áður tekið verðtryggt lán.“ Að sama skapi verði neytandi í viðkomandi máli að sanna tjón sitt, jafnvel þótt talið verði að fram- kvæmd lánsins sem slík sé röng. „Við getum lítið sagt fyrir um umfangið fyrr en við fáum skýrari mynd af málinu,“ segir Már. „Vissar vísbendingar eru þó um að umfang- ið sé ekki eins mikið og fólk heldur við fyrstu sýn.“ Loks bendir Már á að almenn neytendalán séu yfirleitt óverðtryggð hér á landi. Fasteignalán undanskilin Að sögn þeirra lögfræðinga sem Morgunblaðið hefur rætt við er ótvírætt að fasteignalán eru undan- skilin beinum orðum í tilskipun 87/ 102 um neytendalán. Nær álitið því aðeins til verðtryggðra neytenda- lána, sem ekki eru húsnæðislán. Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki sendu allir frá sér til- kynningu vegna álitsins, þar sem þeir benda á að fjárhagsstaða þeirra sé sterk, eigið fé mikið og eiginfjár- hluthall hátt. Eigið fé bankanna myndi því uppfylla eiginfjárviðmið Fjármálaeftirlitsins, þó svo að end- anleg niðurstaða íslenskra dómstóla hefði áhrif á gildi verðtryggingar- ákvæði lánssamninga. Stjórnvöld bíða og sjá Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir mikilvægt að skorið sé úr um réttarstöðu neyt- enda. Eins sé mikilvægt að stór álitamál á borð við þau sem um ræðir vofi ekki yfir fjármálakerfinu til lengri tíma. „Að vissu leyti er jákvætt að tekið sé af skarið með verðtrygginguna í þessu áliti. Við erum enn í nokkurri óvissu um þýðingu þeirrar fram- kvæmdar í lánaviðskiptum að miða við 0% verðbólgu.“ Aðspurður segir hann enga ákvörðun hafa verið tekna um við- brögð vegna álitsins. Beðið verði þar til íslenskir dómstólar komist að niðurstöðu. „Við þurfum að bíða og sjá hvað íslenskir dómstólar telja rétt viðbrögð við þessu ráðgefandi áliti. Það er í sjálfu sér ekki bind- andi fyrir íslenskra dómstóla en reynslan er sú að álitin eru höfð til hliðsjónar.“ Um 66 milljarðar í neytenda- lánum gætu legið undir Verðtrygging Stærstu bankarnir þrír segja eiginfjárviðmið ekki í hættu. Almenn neytendalán » EFTA-dómstóllinn segir 0% verðbólgu í verðtryggðum lánasamningum ekki standast neytendatilskipun ESB. » Tilskipunin undanskilur fasteignalán. » Íslenskir dómstólar meta hvaða áhrif röng upplýs- ingagjöf hefur og hvaða úrræð- um skuli beita, að teknu tilliti til allra málsatvika.  Áhrif álits EFTA-dómstóls væntanlega minni en við fyrstu sýn, segir seðlabankastjóri Már Guðmundsson Bjarni Benediktsson FRÉTTASKÝRING Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Að sögn seðlabankastjóra nemur umfang verðtryggðra neytendalána, þar sem fasteignaveðlán og námslán eru undanskilin, um 66 milljörðum króna, en EFTA-dómstóllinn birti í gær álit um 0% verðbólgu í lána- samningum um verðtryggð almenn neytendalán. Þó verði íslenskir dómstólar að meta heildarumfang lána sem eru undir. Í ráðgefandi áliti EFTA-dóm- stólsins segir, að sé lánssamningur bundinn við vísitölu neysluverðs sé það andstætt ESB-tilskipun 87/102 um neytendalán að miðað sé við 0% verðbólgu í greiðsluáætlunum eða lánaskilmálum verðtryggðra neyt- endalána, sé þekkt verðbólgustig á verðbólgudegi ekki 0%. Dómstóllinn segir það landsdóm- stólsins að meta, að teknu tilliti til málsatvika, hvaða áhrif röng upp- lýsingagjöf af þessum toga hefur og hvaða úrræðum sé hægt að beita, að því gefnu að þeirri vernd sem til- skipunin veitir, eins og dómurinn skýrir hana, sé ekki stefnt í hættu. Álitið segir ekki til um umfang Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri bendir á að álit dómstólsins dugi ekki til að leggja mat á end- anlegt umfang lánanna sem liggi undir. Eins er ekki ljóst hvort mögulegur misbrestur í innleiðingu tilskipunarinnar dugi til að dæma verðtryggingu af þeim lánum. Ítrekar hann að íslenskum dóm- stólum sé falið að meta áhrif rangr- ar upplýsingagjafar og til hvaða úr- ræða beri að grípa. Þá verði einstaklingsbundið mat                                     !" #! #$"$ ! "" ! ! #%% ! $  &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 %  %  #! #"$ !$ "" $$! #$ !#! %"   % # #$#$ !%# "" ! ## !% #$ #!#" Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hagnaður samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur nam 7,9 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Hagnaður- inn var 5,8 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) drógst saman á milli ára, nam 11,3 milljörðum en var 12,8 milljarðar á fyrstu níu mán- uðunum í fyrra. Tekjur samstæðunnar hafa minnkað á milli ára vegna lágs ál- verðs framan af þessu ári. Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins var í lok tímabilsins 31,1%. Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að eiginfjár- hlutfallið hefur tvöfaldast frá efna- hagshruni þegar það fór lægst niður í 14%. Hagnaður OR 7,9 millj- arðar fyrstu 9 mánuðina ● Verðbólga er drifin af verðhækk- unum á húsnæði og þjónustu um þess- ar mundir, en hún var 1,9% í október. Sé neysluvísitölunni skipt upp í liði er verðbólga í húsnæðisliðnum 6,8% und- anfarna 12 mánuði. Í opinberri þjónustu er hún 4,3% og í annarri þjónustu 3,4%. Innfluttar vörur hafa hins vegar lækkað um 1,8% undanfarna 12 mán- uði og innlendar vörur hafa lækkað um 0,1% á sama tíma. Þetta kemur fram í Morgunpunktum Íslandsbanka. Verðbólgan drifin af húsnæði og þjónustu STUTTAR FRÉTTIR ... Hagnaður N1 nam 932 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi, sem er um 35% meiri hagnaður en á sama fjórðungi í fyrra. Framlegð nam 3.083 milljónum og jókst um 1,1%. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði (EBITDA) var 7,8% hærri en á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 1.329 milljónum króna. Fram kemur í tilkynningu félags- ins til Kauphallar að reksturinn á þriðja ársfjórðungi hafi verið í sam- ræmi við áætlanir. Umsvif séu jafn- an nokkru meiri á öðrum og þriðja fjórðungi ársins en á þeim fyrsta og fjórða. Af því leiðir að bókfært verð rekstrartengdra eigna og skulda er hærra að jafnaði í lok september en í árslok. Hlutafé greitt út Vaxtaberandi skuldir námu sam- tals 6,7 milljörðum króna í lok tíma- bilsins en hreinar vaxtaberandi eignir voru samtals 2,3 milljarðar króna. Eigið fé var 14,8 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfall N1 52% í lok september. Á hluthafafundi 21. október var samþykkt tillaga um að lækka hlutafé félagsins um 30%. Í tillög- unni felst að hlutafé verður fært nið- ur um 300 milljónir að nafnverði auk þess sem yfirverðreikningur hluta- fjár verður færður niður um tæp- lega 3.560 milljónir. Þetta gerir samtals 3.860 milljónir króna. Síð- asti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hluta- fjár er á miðvikudaginn og viðmið- unardagur er á föstudaginn. Lækk- unardagur er svo 1. desember og greiðsludagur 5. desember. Lækkun hlutafjár Eggert Benedikt Guðmundsson er forstjóri N1. N1 hagnast um 932 milljónir  Hluthöfum greiddir 3,8 millj- arðar í næstu viku 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.