Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 11
rafrænna skilríkja RAFRÆN SKILRÍKI Í SÍMANN Hægt er að setja rafræn skilríki í flestar tegundir farsíma, óháð aldri þeirra eða tegund. Þau eru vistuð á SIM-kort símtækisins. Á www.audkenni.is og fleiri vefsíðum tengdum rafrænum skilríkjum geturðu slegið inn símanúmer þitt og fengið upplýsingar um hvort SIM-kortið henti fyrir rafrænt skilríki. Ef svo er ekki pantar þú nýtt SIM-kort hjá símafélagi þínu og færð það sent heim eða afhent í verslunum símafyrirtækja og hjá endursöluaðilum þeirra. Veldu þér fjögurra til átta tölustafa leyninúmer fyrir rafrænu skilríkin. Rafrænu skilríkin fást virkjuð á næstu skráningarstöð. Mundu að taka símann með þér og gild persónuskilríki, vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini með mynd. Ljósmyndin á skilríkinu þarf að vera skýr. RAFRÆN SKILRÍKI Á DEBETKORT Nú þegar eru rafræn skilríki í mörgum debetkortum. Viðskiptabankarnir veita upplýsingar um hvort unnt sé að að virkja þau. Til þess að nota skilríkin í debetkortum þarf ákveðinn gjaldfrjálsan hugbúnað og korta- lesara sem ýmist er innbyggður í tölvur eða lyklaborð eða fáanlegur sem aukabúnaður sem tengdur er við tölvuna. RAFRÆN SKILRÍKI Í EINKASKILRÍKI Hægt er að fá rafræn skilríki á sérstöku einkakorti. Umsækjendur um leiðréttinguna geta sótt um gjaldfrjálst einkaskilríki á www.leidretting.is. Aðrir fá einkaskilríkin í gegnum www.audkenni.is. Til þess að nota einkaskilríkin hleður þú niður gjaldfrjálsum hugbúnaði og nýtir korta- lesara sem ýmist er innbyggður í tölvur eða lyklaborð eða fáanlegur sem aukabúnaður sem tengdur er við tölvuna. Þegar þú sækir um einkaskilríki velur þú í hvaða útibú viðskiptabanka þíns þú vilt fá skilríkin send. Þú færð PUK-númer sent í pósti og einkaskilríkin eru send í viðskiptabankann sem þú tilgreindir. Loks velur þú þér sex stafa PIN-númer og virkjar einkaskilríkin í skráningarstöð viðskiptabankans. Mundu að taka PUK-númerið með þér og gild persónuskilríki, vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini með mynd. Ljósmyndin á skilríkinu þarf að vera skýr. Innleiðing rafrænna skilríkja hefur staðið yfir af miklum krafti á undanförnum dögum. Tæplega eitt hundrað skráningarstöðvar, einkum í bönkum og sparisjóðum víðs vegar um landið, eru reiðu- búnar til að virkja skilríkin. Gera má ráð fyrir að á næstu mánuðum muni mikill fjöldi lands- manna verða sér úti um rafræn skilríki til þess m.a. að samþykkja skuldaleiðréttinguna sem nú hefur verið birt. Gert er ráð fyrir að tímabil samþykkis hefjist um miðjan desember og standi yfir í þrjá mánuði þaðan í frá. Mundu eftir gildum persónuskilríkjum þegar þú ferð á skráningarstöð 1 12 2 3 3 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.