Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014 E in áhugaverðasta skáld- saga ársins er Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson. Ófeigur er höfundur nokkurra skáldsagna og ljóðabóka og fékk árið 2011 Bókmenntaverðlaun Evrópusam- bandsins fyrir skáldsögu sína um Jón Steingrímsson eldklerk, sem bar hinn langa titil Skáldsaga um Jón og hans rituðu bréf til barns- hafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur og und- irbjó komu hennar og nýrra tíma. Og nú kemur Öræfi, gríðarlega metnaðarfullt verk, saga um ógnir og fegurð og dramatíska atburði í öræfunum. Aðalpersóna bók- arinnar er Bernharður Fingur- björg, austurrískur örnefnafræð- ingur, sem kemur til Íslands árið 2003 til að halda í rannsóknarleið- angur inn á Vatnajökul og vitja um vettvang glæps sem framin var tuttugu árum fyrr og tengdist móður hans. Spurður hvernig hugmyndin að bókinni hefði kviknað segir Ófeig- ur: „Ég hef áhuga á íslenskri al- þýðumenningu og hef legið í gömlum skrifum og smám saman vatt þessi áhugi minn upp á sig og fór að blandast inn í skáld- skapinn eins og þegar ég skrifaði bókina um Jón Steingrímsson. Fyrsta hugmyndin að þessari bók var mjög einföld. Ég hafði veður af villifé austur í Öræfum og vildi skrifa um það skáldsögu og láta það speglast við líf mannsins, ég fór því að leita að öllum rituðum heimildum um þetta villifé. Ég heyrði að villtar kindur hefðu sést inni í þjóðgarðinum á áttunda áratugnum lengst inni á fjöllum. Þá var gerður út leiðangur og féð skotið á færi. Þarna var einstakt náttúrufyrirbæri; villt fé sem hafði snúið á mannheiminn og lif- að frjálst árum saman í fjöll- unum, engum til ama. En lögin banna slíkt þótt siðferðið segi annað. Á svipuðum tíma og ég var að vasast í þessu kom upp villifjármál í Tálknafirði og þá var víkingasveitin kölluð út og féð skotið úr þyrlu með öflugum vopnum. Þá leið mér eins og ég væri staddur á annarri plánetu. Þessi áhugi minn varð til þess að ég fór í rannsóknarferð austur í Öræfi og heimsótti í leiðinni hundrað ára gamlan einbúa á Núpsstað og spurði hann út í hið fræga villifé sem Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson minnast á og til eru svo margar þjóðsögur um. Ég ætlaði upp í fjöllin að skoða það. Var það sama féð og í þjóð- garðinum? Þá kom mæðusvipur á hann og hann sagði: Æ, það fauk allt saman fram af klettunum hér ofan við bæinn í miklu óveðri seint á 19. öld. – Þá fannst mér botninn detta úr þeirri hugmynd minni að skrifa skáldsögu um villifé. En svo sagði hann: Annars er búið að skrifa og segja svo mikla vitleysu um þetta villifé að þú mátt alveg skrifa það sem þér sýnist. Þar með var skáldaleyfið komið og þá opnuðust nýjar gátt- ir. Smám saman minnkaði áhersl- an á þetta frjálsa villifé sem ým- ist fauk eða var skotið en það varð eins og innsti kjarninn í sögu sem vatt upp á sig og varð að þessari bók.“ Maðurinn vill gera allt að sínu Ertu kunnugur í Öræfunum? „Já, æskuvinur minn er Öræf- ingur þannig að ég á bandamann þar. Ég var aldrei í sveit þarna sem vinnumaður eða í barna- þrælkun en kom oft í heimsókn frá Reykjavík og dvaldi nokkrar vikur eða mánuð í senn, og var lítið til gagns. Fyrir mér voru þessir tímar í Öræfunum stans- laus ævintýri og svaðilfarir, að þvælast í fjöllunum eða úti á sandinum, vinur minn sagði mér frá alls kyns skrítnum atburðum sem ég man auðvitað vitlaust. Í kjölfarið fékk ég áhuga á því hvernig sögur rata til manns, þær koma í gegnum svo margar síur, skekkjast og breytast í meðförum og sjálfur er ég mikill meng- unarvaldur á sögur.“ Þú hefur greinilega unnið mikla heimildarvinnu við vinnslu þess- arar bókar, þarna eru brot úr annálum og alls kyns lýsingar sem tengjast liðnum tíma og þú byggir á frægu morðmáli og læt- ur það tengjast fjölskyldu aðal- persónunnar. „Í heimildarvinnu verð ég dálít- ið manískur og finnst ég verða að ná utan um allt, sem er auðvitað ómögulegt. Ég varð ekki í rónni fyrr en ég mér fannst ég vera búinn að lesa allt sem ritað er um Öræfin og hreifst mjög af héraðstímaritum, eins og Skaftfell- ingi, sem sveitungarnir skrifuðu í, þar var mikinn fjársjóð að finna. Ég vildi að heimildirnar rötuðu í verkið og sýna hvaðan allt kemur, þannig að þegar til dæmis verið er að lesa upp úr annálum í bók- inni þá eru þær upplýsingar raunverulega úr annálum, þótt ég hafi unnið þær og gert að mínu. Ég fjalla þarna um raunveru- legt morðmál og er ekki að fela það eða skálda það upp nema að hluta. Þarna varð raunveruleg ógn sem var ólýsanlegt áfall vegna þess að í öræfunum er svo mikil friðsæld og fegurð og tær- leiki. Atburður sem þessi er eig- inlega óhugsandi á svona stað því allir sem þangað koma verða upp- numdir og gleðjast. Svo var nokk- uð sérstakt hvernig málið birtist í fjölmiðlum. Meðan morðingjans var leitað lýsti annað fórn- arlambið því sem gerst hafði og sú lýsing birtist í blöðum, þannig að almenningur vissi nákvæmlega hvað hafði gerst og hvernig, skref fyrir skref. Sýslumaðurinn sem stjórnaði rannsókninni og leitinni var mjög opinskár og svaraði öllu sem hann var spurður um. Hann var ekki í neinum feluleik heldur öryggið uppmálað. Þar sem köld grafísk lýsing á þessum glæp birtist þjóðinni í gegnum fjölmiðla vildi ég hafa sama anda í skáld- sögunni. Ég tel að skáldskapurinn eigi alltaf að vera í þjónustu- hlutverki fyrir siðferðið, að halda því lifandi og koma í veg fyrir að það staðni, því þá er voðinn vís. Þess vegna er allt mannlegt nauðsynlegt í skáldskap.“ Við lestur bókarinnar er ljóst að þú hefur áhyggjur af því að við séum að leggja undir okkur náttúruna í alltof miklum mæli. „Það þyrmir stundum yfir mig við tilhugsunina hvar þetta muni enda, þetta fer auðvitað bara á einn veg. Fólksfjölgunin hefur verið eins og hamfarir og jörðin þolir ekki endalausan átroðning. Um leið er ómóralskt að vonast eftir fólksfækkun því auðvitað fagnar maður öllu lífi. Þannig að maður lendir í ákveðinni klemmu þegar maður hugsar um fólks- fjölgunina og yfirganginn sem náttúrunni er sýndur. Maðurinn vill gera allt að sínu. Um leið og við viljum varðveita hið ósnortna vilja allir eigna sér það í formi verðmæta og traðka þar af leið- andi á því. Sú gamla trú lifir sterkt í mér að ef maður gangi illa um náttúruna þá vofi refsing yfir manni, enda hefur það alltaf verið raunin.“ Gerði tilraun til að vera á facebook Í bókinni eru sögur inni í sögu og alls konar persónur segja frá. Af hverju valdirðu þessa frásagn- araðferð? „Ég vildi að frásögnin væri marglaga eins og hraun á hraun ofan, og taka síðan af henni snið eða sneiðmynd. Þessi frásagn- araðferð hjálpaði mér einnig við að átta mig á því hvernig sögur verða til. Þannig fjallar bókin líka um eðli skáldskaparins. Það er oft svo langur vegur frá uppsprettu atburða þar til sögur af þeim rata til lesenda eða áheyrenda. Ég vildi reyna að gera þetta gegnsætt. Í rauninni eru persónur sögunnar nokkuð keimlíkar höf- undinum í anda þannig að það á ekki að skipta mjög miklu máli hver er að segja frá. Ég held að það sé óhætt að segja að ég deili skoðunum allra persóna í bók- inni.“ Ertu þá líka sammála langri skammarræðu í bókinni um leið- indin sem farsíminn hefur kallað yfir okkur? „Já. Það er auðvitað smágrín líka. En ég er mjög íhaldssamur og gamaldags og á í miklu hat- urssambandi við farsímann, það er frekasta samskiptatæki sem til er. Flest sem ætlað er að bæta líf okkar er til hins verra og ráðskast með mann, og það sem á að færa okkur nær hvert öðru færir okkur í raun fjær hvert öðru.“ Ég hlýt þá að spyrja þig hvort þú sért á facebook? „Nei, en ég gerði tilraun til að vera á facebook í fyrra því þrýst- ingurinn var svo mikill. Þegar ég var búinn að vera mánuð á face- book áttaði ég mig á því að líf mitt hafði ekki batnað heldur versnað með því, ég var svo upp- tekinn af þessu. Það er ekki auð- velt að skrá sig út af facebook, það var eins og að reyna að kom- ast út úr helvíti eða hætta heró- ínneyslu, en þegar það loksins tókst var það mikill léttir. En svo er maður álitinn viðrini að vera Allt mann- legt er nauð- synlegt í skáldskap ÓFEIGUR SIGURÐSSON ER HÖFUNDUR HINNAR METNAÐARFULLU OG ATHYGLISVERÐU SKÁLDSÖGU ÖRÆFA. ÓFEIGUR RÆÐIR UM NÝJU SKÁLDSÖGUNA, ÖRÆFIN, NÁTTÚRUNA OG VILLIFÉ OG ÞÁ LÖNGUN MANNSINS AÐ GERA ALLT AÐ SÍNU. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.