Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 15
„Sú gamla trú lifir sterkt í
mér að ef maður gangi illa
um náttúruna þá vofi
refsing yfir manni, enda
hefur það alltaf verið
raunin,“ segir Ófeigur.
Morgunblaðið/Kristinn
* Ég tel að skáldskapurinn eigi alltaf aðvera í þjónustuhlutverki fyrir siðferð-ið, að halda því lifandi og koma í veg fyrir
að það staðni, því þá er voðinn vís.
ekki á facebook og fólk spyr:
Hvernig veist þú þá hvenær ein-
hver á afmæli? Ég svara: Afmæli
voru til fyrir daga facebook og
það er hægt að vita það með öðr-
um leiðum, eins og til dæmis með
því að tala við fólk.“
Hekla kannski næst
Þú fékkst Bókmenntaverðlaun
Evrópusambandsins fyrir skáld-
sögu þína um Jón Steingrímsson.
Skiptu verðlaunin máli fyrir þig?
„Verðlaunin voru hvatning fyrir
mig og veittu mér aukið sjálfs-
traust. Það er gott til þess að
vita að einhver kunni að meta
það sem maður er að gera. Það
er yfirlýst markmið þessara verð-
launa að fara inn fyrir múr met-
sölulistans, vekja athygli á höf-
undum sem eru taldir efnilegir,
seilast inn í menningu hverrar
þjóðar í Evrópu og verðlauna
bækur sem myndu ekki endilega
verða þýddar. Verðlaunin veita
líka forgang í styrktarferli fyrir
útgefendur þannig að þeim þykir
fýsilegt að gefa verðlaunabókina
út. Bókin um Jón hefur komið út
á ungversku, búlgörsku, er vænt-
anleg í Tékklandi og Slóvakíu,
Portúgal og hjá Gyldendal í Dan-
mörku. Þetta hefði ekki gerst án
verðlaunanna.“
Hvenær ákvaðstu að verða rit-
höfundur?
„Ég fór í íslenskunám í Há-
skóla Íslands og fór síðan um tví-
tugt í myndlistarnám til Kaup-
mannahafnar en hætti í því námi
þegar ég ákvað að verða rithöf-
undur. Þar sem mér fannst ég
vera frekar illa að mér í bók-
menntum fór ég snemma á
morgnana á landsbókasafnið í
Kaupmannahöfn og í fjóra mánuði
las ég kerfisbundið öll þau ís-
lensku skáldverk sem til voru á
safninu. Þegar ég kom frá Dan-
mörku fór ég í heimspekinám í
Háskóla Íslands.
Ég held að ég hafi farið í bók-
mennta- og heimspekinám vegna
blöndu af metnaði og minnimátt-
arkennd. Mér fannst ég ekki geta
gert það sem ég vildi gera án
þess að þekkja íslenska bók-
menntasögu og vestræna hug-
myndasögu vel. Það nám var eins
og undirbúningsferli fyrir það að
verða rithöfundur. Ég gaf út fjór-
ar ljóðabækur áður en fyrsta
skáldsaga mín Áferð kom út árið
2005. Þróunin varð því þannig að
myndlistin varð að ljóðagerð og
ljóðagerðin að skáldsagnagerð.
Núna er ljóðagerðin og myndlistin
eins og tómstundaáhugamál þegar
ég hvíli mig á skáldsagnaskrifum
eða handrit er í yfirlestri. Ég get
ekki unnið ljóð og skáldsögu á
sama tíma. Þetta er alveg sitt
hvor deildin í heilanum.“
Nú ertu búinn að senda frá þér
þessa stóru skáldsögu, Öræfi.
Kveiðstu móttökum eða varstu
mjög öruggur með bókina?
„Ég er öruggur gagnvart sjálf-
um mér en hafði áhyggjur af því
að það sem mér þykir óskaplega
skemmtilegt þætti öðrum öm-
urlega leiðinlegt. En svo lifir
maður í voninni um að gleði höf-
undarins skíni í gegnum textann.
Yfirleitt er það þannig að ef höf-
undar hafa ánægju af því sem
þeir eru að gera þá skilar það
sér út í verkið, og mér leiddist
ekki að vinna þessa bók.“
Ertu farinn að huga að næstu
bók?
„Já, nokkrar hugmyndir eru að
takast á, nú hef ég skrifað um
Kötlu og Öræfajökul, svo ætli
Hekla sé ekki næst.“
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
– hágæða ítölsk hönnun
NATUZZI endurspeglar fullkominn
samhljóm og kjarna ítalskrar hönnunar.
NATUZZI umhverfi,staður þar sem fólki líður vel.
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Komið og upplifið NATUZZI gallerýið okkar
NATUZZI MODEL 2811 TRATTO
Sófi L207 D89 H75 Leður Ct.10 kr. 398.000 Áklæði Ct. 83 kr. 299.000
Stóll B82 D89 H75 Leður Ct.10 kr.199.000 pr.stk. Áklæði Ct. 83 kr.179.000 pr.stk.