Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014
Fjölskyldan Hvar og hvenær? Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4, laugardag kl.11-17.
Nánar: Eydalalilja er netverslun sem selur barnaföt úr náttúrulegri
bómull.
Pop up-verslun
Eyrún Eggertsdóttir, frum-kvöðull og tveggja barnamóðir, stofnaði fyrirtækið
RóRó árið 2011 og hefur síðan þá
verið að þróa mjúka tuskudúkku úr
bómull. Dúkkan er með sérstaka of-
næmisprófaða fyllingu inni í sér og
einnig er þar tæki sem spilar upp-
töku af andardrætti og hjartslætti.
Dúkkan líkir þannig eftir nærveru
annarrar manneskju. Um þessar
mundir er dúkkan í framleiðslu en
hefur nú þegar vakið mikla lukku
og meðal annars verið fjallað um
hana í stórum tímaritum á borð við
Vogue.
Vildi hjálpa vinkonu
„Ég fékk þessa hugmynd þegar ég
var í fæðingarorlofi með yngri
strákinn minn. Ég hef alltaf verið
mjög meðvituð um hvað nærvera er
góð fyrir börn og ég svaf með
drengina mína hjá mér og var mikið
með þá í burðarpokum og fleira,“
segir Eyrún sem er með BA-próf í
sálfræði. „Á þessum tíma eignaðist
vinkona mín fyrirbura, sem var
ákveðið áfall. Hún hringdi í mig eft-
ir að hún fékk að fara heim eftir
fæðingu en segir mér að barnið
þurfi að vera á spítalanum yfir nótt
í nokkrar vikur. Þetta var henni
erfitt og auk þess var planið hjá
okkur að njóta þess að vera með
börnin okkar saman í fæðing-
arorlofi. Daginn eftir hringir hún í
mig í angist og segir mér að barnið
hennar hafi hætt að anda þrisvar
sinnum um nóttina og sé nú í alls
konar prófunum. Ég mundi þá eftir
að hafa lesið um mikilvægi nærveru
fyrir nýfædd börn í sálfræðinni og
hugsaði með mér að kannski hefði
þetta ekki gerst ef vinkona mín
hefði fengið að vera hjá barninu
sínu. Ég ákvað að fletta upp í bók-
um og leita á netinu fyrir vinkonu
mína og gá hvort það væri eitthvað
þar til þess að aðstoða hana. Ég
fann ekkert sem líkja mætti við
nærveru en þá small þessi hug-
mynd saman úr mörgum þáttum.“
Úr varð dúkkan Lúlla sem á að
líkja eftir foreldri í slökun. Dúkkan
gerir börnin stöðugri og hjálpar
þeim að sofa lengur í senn. „Rann-
sóknir sýna fram á að þegar börn
eru nálægt slíkum öndunar- og
hjartsláttarhljóðum stillast þau og
fara að fylgja taktinum sem þau
heyra og fyrir vikið kemst meira
jafnvægi á þeirra hjartslátt og and-
ardrátt og þau taka síður hlé í önd-
un, sem er algengt hjá ungbörnum.
Í alvarlegustu tilfellum getur það
leitt til vöggudauða, en það er mjög
sjaldgæft. Í minna alvarlegum til-
vikum leiðir það til truflunar í
svefni.“
Vogue heillaðist af dúkkunni
Eyrún segir fólk gjarnan rugla
dúkkunni saman við SleepSheep,
sem er bangsi sem lítur út eins og
lamb og er hugsað sem svæfinga-
tæki. Það spilar hljóð í ákveðið
langan tíma og slekkur svo á sér.
„Dúkkan er hugsuð til að sofa með
barninu heila nótt eða heilan blund
og vera í gangi allan tímann. Hún
er bæði ætluð til að hjálpa barni að
sofna en einnig að sofa lengur í
senn.“ Góðvinkona Eyrúnar, Guð-
rún Theódóra Hrafnsdóttir, jóga-
kennari og fjögurra barna móðir, er
á upptökunni í dúkkunni. „Við vild-
um fá andardráttinn og hjartslátt-
inn sem náttúrulegastan og heil-
brigðastan og alls ekki búa til í
tölvu. Þetta er tekið upp á sama
tíma og ég vildi hafa þetta svona
langt. Hér er verið að reyna að
herma eftir móður náttúru og þá er
best að taka sem mest þaðan.“ Ey-
rún og hennar teymi sóttu vörusýn-
ingu í Bretlandi í sumar sem er
ætluð fólki og fyrirtækjum í barna-
vöruiðnaðinum. Þar fékk teymið góð
viðbrögð við dúkkunni frá aðilum á
sýningunni. „Við skildum síðan eftir
svona „presskit“ inni í herbergi sem
ætlað var fjöl-miðlum. Þeir gátu svo
valið það sem þeim fannst spenn-
andi og haft samband við viðkom-
andi. Um viku síðar hafði Vogue
samband við okkur og bauð okkur
að vera í auglýsingagrein hjá þeim,
sem heitir Vogue’s Picks og er erf-
itt að komast í nema vera valin sér-
staklega. Þetta var því mjög
skemmtilegt.“ Auk þess verður um-
fjöllun um Lúlla-dúkkuna birt í
blöðunum Tatler og Elle Magazine í
Bretlandi á næsta ári.
Forsala hafin á netinu
Dúkkan er í framleiðslu um þessar
mundir og er sala á henni hafin á
ww.indiegogo.com, sem er fjár-
mögnunarsíða. „Við erum að safna
fyrir seinni hluta framleiðslukostn-
aðarins með því að forselja dúkkuna
á góðum kjörum. Þeir sem kaupa
hana með þessu móti fá dúkkuna
fyrstir og fá hana ódýrari með því
að koma svona snemma inn og
hjálpa okkur. Nú þegar er búið að
selja um 140 dúkkur síðast þegar
ég athugaði og er mikið af því frá
Íslandi en alltaf eru erlendir aðilar
að bætast við. Nú þegar erlend um-
fjöllun um dúkkuna fer að aukast
þá vonandi eykst salan á indiegogo
líka. Í Bandaríkjunum þekkir fólk
vel þetta fyrirkomulag og er það því
góður vettvangur til að selja dúkk-
una.“
Eyrún segir að stutt sé vel við
bakið á frumkvöðlum hér á landi og
þeim sem eru að taka sín fyrstu
skref á því sviði. Lúlla dúkkan vann
Gulleggið árið 2011 og hefur í kjöl-
farið hlotið ýmsa styrki frá Tækni-
þróunarsjóði, Atvinnumálum kvenna
og Nýsköpunarmiðstöð Íslands og
fleiri vígstöðvum. „En stundum
hugsa ég með mér: Hvað er ég að
pæla? Af hverju er ég að vesenast
með einhverja dúkku, finnst fólki
þetta eitthvað spennandi?“ segir
Eyrún og hlær. „En þá mæti ég á
viðburði tengda frumkvöðla-
starfsemi og fæ mikla hvatningu til
að halda áfram, sem er mjög gott.“
HEFUR VAKIÐ ATHYGLI ERLENDRA FJÖLMIÐLA
Líkir eftir
nærveru
foreldra
DÚKKA ÚR NÁTTÚRULEGRI BÓMULL SPILAR UPPTÖKU AF
RAUNVERULEGUM ANDARDRÆTTI OG HJARTSLÆTTI FOR-
ELDRIS Í SLÖKUN. DÚKKAN Á AÐ GERA UNGBÖRN STÖÐ-
UGRI Í ÖNDUN OG HJÁLPA ÞEIM AÐ SOFA BETUR .
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Dúkkan á að vera fyrir bæði kyn og er því bæði bleik og blá. Eins á hún að vera
fyrir alla litarhætti og er hún því millibrún á lit.
Eyrún Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri RóRó, ásamt Birnu Bryndísi Þorkelsdóttur, sem sér um alla hönnun og mynda-
töku, og Sólveigu Gunnarsdóttur, sem sér um sölu og markaðssetningu.
* Hér er verið aðreyna aðherma eftir móður
náttúru og þá er
best að taka sem
mest þaðan.
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður