Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 17
*Ef þú hefur kjarkinn til að byrja á því, þáhefur þú kjarkinn til að ljúka því. Leiftur McQueen 16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 … að bómullarfatnaður er hinn versti ferða- félagi. Bómullin verður þung þegar hún blotnar og auk þess köld. Best er að vera í föðurlandi, næst húð. Vissir þú … Töfraflautan eftir Mozart verð-ur flutt í NorðurljósasalHörpu 16. nóvember í nýrri og styttri útgáfu, sérstaklega fyrir börn. Leikstjóri er Ágústa Skúla- dóttir, Edda Austmann er höfundur texta og syngur einnig hlutverk Paminu og Magnús Ragn- arsson stjórnar hljómsveit. Töfra- flautan er eitt frægasta óperu- verk í heimi og hefur gjarnan verið notað til þess að kynna óperur fyrir börnum enda höfðar það vel til þeirra. „Það þarf að setja upp óperuverk fyrir börn reglulega og leyfa þeim að kynnast óperunni,“ segir Magnús Ragnarsson, stjórn- andi Töfraflautunnar. „Við styðj- umst við þýska útgáfu sem er búin að fara skóla á milli víða í Þýska- landi. Sýningin er stytt í rúma klukkustund en sagan heldur sér þrátt fyrir að vissri tónlist sé sleppt. Hljómsveitin er minnkuð niður í átta manna sveit og þurfa sumir söngvararnir að bregða sér í nokkur hlutverk, en gera það mjög vel.“ Mozart samdi tónlist sína af mikilli nákvæmni og því ákveðinn galdur að koma henni vel til skila. „Tónlist- in þarf að vera hárnákvæm og má ekki bregða neitt útaf með hana. Þýska útgáfan, sem við notum, studdist við píanóleik en við fengum Steingrím Þórhallsson til að útsetja þetta fyrir átta manna hljómsveit og kemur það afar vel út.“ Magnús segir það dýrt að setja upp óperu hér á landi en með styttri útgáfu sé hægt að hafa sýn- inguna á viðráðanlegu verði. Töfra- flautan fyrir börn er samstarfsverk- efni milli óperunnar, Hörpu og Töfrahurðarinnar, sem er í umsjón Pamelu De Sensi og hefur verið sýnd reglulega í Kópavogi. Sýningin hentar börnum á öllum aldri og einnig er séð til þess að hún sé áhugaverð fyrir foreldrana líka. „Þegar verið er að setja upp svona sýningar er ákveðin kúnst að ná að halda athygli barnanna en einnig að kunna að skemmta for- eldrunum,“ segir Magnús. „Þessi ópera er alveg einstök. Grípandi og skemmtileg fyrir krakka og alveg stórkostleg tónlist og ævintýri fyrir foreldrana líka.“ Rísandi stjarna í sýningunni Aríur næturdrottningarinnar voru ekki í þýsku útgáfunni en ákveðið var að hafa aðra þeirra í þessari út- gáfu. „Við bættum henni við bara fyrir nokkrum vikum. Það verður að segjast að við erum með topp- söngvara á öllum vígstöðvum en við erum einnig með leynda stjörnu sem syngur næturdrottninguna. Það er Rósalind Gísladóttir. Mig minnir að það hafi verið Mozart sjálfur sem sagði að það væri að- eins ein söngkona á öld sem réði við þetta hlutverk, því hún syngur svakalega hátt og mikið af hröðum nótum. En Rósalind ræður alveg við þetta og þótt það væri bara fyr- ir söng næturdrottningarinnar þá myndi ég hvetja fólk til þess að koma og sjá.“ Uppselt er á báðar sýningar á sunnudag en Magnús vonar að þær verði fleiri. „Vonandi getum við sýnt þetta sem oftast, við þurfum bara að sjá hvernig geng- ur.“ ÁKVEÐIN KÚNST AÐ HALDA ATHYGLI BÆÐI BARNA OG FORELDRA Töfraflautan fyrir börn MAGNÚS RAGNARSSON, STJÓRNANDI TÖFRAFLAUTUNNAR, SEGIR ÞAÐ MIKILVÆGT AÐ LEYFA BÖRNUM AÐ KYNNAST ÓPERUNNI. UPPSELT ER Á TÖFRAFLAUTUNA SEM VERÐUR SÝND Á SUNNUDAG EN VONAST ER TIL ÞESS AÐ VERÐI FLEIRI SÝNINGAR. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Töfraflautan eftir Mozart er eitt frægasta óperuverk í heimi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús Ragnarsson Sy ru sson Hönnunar hús Síðumúla 33 Syrusson alltaf með lausnina Slakaðu á með Slaka um jólin! Slaki hægindastóll verð frá 219.500,-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.