Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 18
Ferðalög
og flakk
AFP
*Sjónvarpsþættir geta gert kraftaverk fyrirferðamannaiðnaðinn á ólíklegustu stöðum.Aðdáendur hins afar vinsæla sjónvarpsþáttar„The Walking Dead“ streyma nú til Atlanta íGeorgíuríki til þess að kynna sér söguslóðirpersónanna og þeirra uppvakninga sem þærhrella. Margar skoðunarferðir eru farnar á
dag og leiðsögumennirnir hafa birst í þætt-
inum sem uppvakningar.
Elta uppvakninga til Atlanta
Dólómíta-Alparnir á Norður-Ítalíu eru svipsterkir og him-
inháir. Leið Íslendinganna lá upp á fjallið Sasso Pordoi sem er
2.950 metra hátt og þó eru mörg í klasanum hærri. Ekið var
upp í fjöllin um hlykkjóttar brautir og staðnæmst þar sem kom-
ið var í 2.240 metra hæð. Þar var stigið um borð í kláf sem flaug
um vírstengina upp á fjallið á örfáum mínútum. Suma sundl-
aði ofurlítið í fluginu. Það var þó fljótt að gleymast því útsýnið
á toppnum er lygilegt og kannski eitthvað svipað því sem gerist
í himnaríki. Því er ósköp skiljanlegt að staður þessi njóti vin-
sælda en árlega fara um 170 þúsund manns á ári upp á fjallið
með kláfferjunni sem sett var upp fyrir liðlega hálfri öld.
Sigurður Bogi Sævarsson
Kláfurinn nánast flaug um vírstrengina upp á toppinn sem er 2.950 m hár. Hótelið og Sasso Pordoi í baksýn.
Lygilegt himnaríki
Póstkortsritari á Alpaslóð í haust.
PÓSTKORT Ú
R DÓLÓMÍTA
-ÖLPUNUM
D
raugabæir og eyðibýli
búa yfir sterku og
leyndardómsfullu að-
dráttarafli. Það er eitt-
hvað við eftirstandandi minnis-
varða um það sem áður var, þeir
umbreytast í glugga inn í fortíðina
en segja okkur um leið eitthvað
um það hvernig við lifum í dag.
Hverfulleiki tilverunnar birtist
sjaldnar með kraftmeiri hætti en í
hrörlegum rústum híbýla fólks,
brotnum rúðum, yfirgefnum bíl-
flökum. Hugurinn tekur að reika
og sjá fyrir sér lífið sem áður lýsti
upp þessa staði og hvernig brott-
flutningnum var háttað, hvað olli
honum og hvenær. Slíkir staðir
eru jafnframt vinsælir áfangastaðir
ferðamanna og hér að neðan er að
finna yfirlit yfir fimm slíka, sem
nýlega var fjallað um í The Gu-
ardian.
Pyramiden, Svalbarða
Hafir þú áhuga á því að leika á
píanó eins norðarlega og hugsast
getur, gæti ferð til Pyramiden, yf-
irgefins rússnesks námubæjar á
Svalbarða, verið eitthvað fyrir þig.
Í bænum er að finna tröllaukinn
sovéskan kirkjuturn, leikvöll fyrir
börn, íþróttahöll og nokkur píanó.
Síðustu kolamolarnir voru fluttir
þaðan árið 1998 og í dag er hægt
að heimsækja bæinn með ferju eða
á snjósleða. Trust Arktikugol, fyr-
irtæki sem heldur úti starfsemi á
eyjunum í kring, hefur að und-
anförnu staðið fyrir endurbótum
til þess að gera svæðið og ýmsa
staði þar í kring túristavænni.
Teufelsberg, Berlín
Hlustunarturnarnir á Djöflatindi
í því sem áður var Vestur-Berlín
voru reistir af bandarísku þjóðarör-
yggisstofnuninni og voru notaðir til
þess að njósna um hernaðarleg
samskipti í austrinu. Turnarnir eru
tættir og illa farnir í dag en hægt
er að fara í skoðnarferð um golf-
boltakenndar hvelfingarnar þar sem
öðlast má góða tilfinningu fyrir of-
sóknaræðinu sem ríkti í kalda stríð-
inu. Það mun vera magnþrungin
reynsla að gaumgæfa veggjakrotið
inni í turnunum og þá götulist sem
veitir rústunum töfrandi blæ. Út-
sýnið við sólsetur er sömuleiðis
engu líkt.
Ríkisfangelsið í Missouri,
Bandaríkjunum
Þessi drungalega stofnun, sem
starfrækt var á árunum 1836-2004,
er þekkt fyrir að hafa hýst alla
verstu glæpamenn Missouri-ríkis og
þar á meðal þá fanga sem dæmdir
höfðu verið til dauða. Nú er hægt
að fara í sögulega skoðunarferð um
fasteignina, þ.e. þegar ferðamenn
eru búnir að skrifa undir afsal allra
réttinda vegna mögulegs líkams-
tjóns. Hægt er að skoða vist-
arverur á kvennadeild, kynna sér
híbýli fanga sem biðu dauðans og
jafnframt að grannskoða gasklefana
sem notaðir voru við dauðarefs-
ingar. Þá geta hugrakkir ferða-
menn tekið þátt í rannsóknum yfir
nótt á yfirskilvitlegu athæfi sem
sagt er að fyrirfinnist þar.
Tyneham, Bretland
Þorpið Tyneham er þekkt undir
heitinu „bærinn sem dó fyrir Eng-
land“. Þar var að finna lítið
sjávarpláss við Dorset-strandlengj-
una fram til ársins 1943. Þá
ákváðu stjórnvöld að leggja hald á
bæinn og nýta hann í undirbún-
ingsskyni fyrir D-day, daginn sem
Bandaríkjamenn gerðu innrás í
Normandí í síðari heimsstyrjöld.
Ólíkt öðrum bæjarfélögum sem
hlutu sömu örlög var íbúum Tyne-
ham ekki heimilt að snúa aftur til
heimkynna sinna að stríðinu loknu.
Svo lengi sem bærinn er ekki
heimsóttur á meðan heræfingar
standa yfir, er heimilt að kynna
sér þorpið og ráfa þar um.
St. Elmo, Colorado,
Bandaríkjunum
Þessi draugabær er afar vel
varðveittur og þykir vera sterk
táknmynd um gullæðis-tímabilið í
Bandaríkjunum. Fyrstu íbúarnir
komu sér þar fyrir árið 1880 og
bærinn lifði til ársins 1922 þegar,
líkt og heimildir herma, allir íbúar
bæjarins tóku síðustu lest í burtu.
Í dag þykir bærinn dæmigerður
fyrir hugmyndir fólks um Villta
vestrið þar sem viðarhúsum hefur
verið raðað upp hlið við hlið á að-
algötu í miðju einskismannslandi.
Mögulegt er að gista yfir nótt og
þjónustustarfsemi er rekin þar
fyrir ferðamenn yfir sumartímann.
SKOÐUNARFERÐIR UM YFIRGEFNA BÆI
Leyndardómsfullt aðdráttarafl
DRAUGABÆIR OG EYÐIBÝLI ERU Í SENN GLUGGI INN Í
FORTÍÐINA OG ÁMINNING UM HVERFULLEIKA TILVER-
UNNAR. ÞEIR GETA VERIÐ HEILLANDI ÁFANGASTAÐIR OG
HVERJUM MANNI ER HOLLT AÐ KYNNA SÉR MINJAR LÍFS
SEM ÁÐUR VAR.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Frá Pyramiden á Svalbarða. Þar var löngum rússneskur námubær en hann var yfirgefinn árið 1998.