Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 27
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 Listamaðurinn Sæþór Örn Ásmundsson bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni um jafnlaunamerki og hlýtur hann eina milljón króna í verðlaun. Aðgerðahópur stjórn- valda og samtaka aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og Hönnunarmiðstöð stóðu fyrir samkeppninni um hönnun á nýju jafnlaunamerki fyrir vottun á jafn- launakerfum fyrirtækja og stofnana en alls bárust 156 tillögur í keppnina. „Merkið er smekkfullt af myndmáli, í grunninn er því skipt í 2 jafna helminga af karli og konu, brosandi út að eyrum. Einnig hefur merkið skírskotun í 10 króna mynt, rúnir og stimpil,“ sagði Sæþór þegar hann tók við verðlaununum á Hótel Hilton Nordica hinn 13. nóvember síð- astliðinn. Í dómnefnd sátu þau Benedikt Þór Valsson, Sambandi íslenskra sveit- arfélaga, og Guðný Ein- arsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu, bæði tilnefnd af aðgerða- hópi stjórnvalda og samtaka aðila vinnu- markaðarins um launajafnrétti, Birna Geir- finnsdóttir, fagstjóri í grafískri hönnun í LHÍ, Örn Smári Gíslason, grafískur hönn- uður, og Sóley Stefánsdóttir, grafískur hönnuður, öll tilnefnd af Hönnunarmiðstöð Íslands. „Merkið sameinar þá þætti sem end- urspegla inntak jafnlaunastaðalsins. Í merk- inu má sjá mynd sem sýnir skífurit, stimpil, rúnir og brosandi andlit tveggja ólíkra ein- staklinga. Í lögun minnir merkið á mynt eða pening og gefur þannig til kynna að einstaklingarnir sem þar sjást eru metnir jafnir að verðleikum. Merkið býður upp á alþjóðlega notkun, er einstakt og lýsandi fyrir verkefnið. Það hentar vel til notkunar, stórt sem smátt,“ segir í umsögn dóm- nefndar. Sigraði í hönnunarsamkeppni um nýtt jafnlaunamerki Sæþór Örn Ásmundsson Húsgögnin eru sögð þægilegri en þau líta út fyrir að vera. Rick Owens hannar húsgögn Stóll úr spónaplötu og elgshorni. Fatahönnuðurinn Rick Owens hóf að hanna húsgagnalínu fyrir heimili sitt og tókst svo vel til að hann ákvað síðar að sýna línuna í París árið 2007. Nú er ný lína hönnuðar- ins til sýnis í New York á sýning- unni Salon: Art + Design fair á Park Avenue Armory. Húsgögnin eru skemmtilega hrá, mínímalísk og notast hönnuðurinn við heldur óhefðbundin húsgagnahráefni eins og spónaplötur og elgshorn. „Húsgögnin eru öll mjög hagnýt. Stólarnir eru með flötum sætum og elgshornin eru nýtt sem bak. Það kemur á óvart hvað þeir eru í raun þægilegir, form hornanna beygjast þannig að þau virka eins og nokkurskonar faðmur,“ sagði Jessica Witkin, forstöðumaður gallerísins Salon 94, sem sér alfarið um húsgagnalínu Owens. Við tökum svefninn alvarlega. Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni, góðu handverki, stöðugum prófunum og vandlega völdum efnum. Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn á meira en 85 ára rannsóknum og þróun. duxiana.is DUXIANA Reykjavik, Ármúla 10 / Sími 5 68 99 50 Gæðiogþægindi síðan1926 D U X a n d D U X IA N A a re re g is te re d tr a d e m a rk s o w n e d b y D U X D e si g n A B 2 0 12

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.