Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 31
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Fyrir aðdáendur Friends-þáttanna
er gagnlegt að rifja upp að fyrir rétt
tæpum tveimur áratugum kom út
matreiðslubókin Cooking with
Friends en í henni eru ýmsar upp-
skriftir að mat sem vinirnir gæddu
sér á í þáttunum.
Bókin er fáanleg á kaupvefnum
Amazon fyrir tæpa tíu dali, eða um
1.200 krónur íslenskar (við þá upp-
hæð bætist svo einhver sending-
arkostnaður). Einnig er hægt að
kaupa bókina notaða á sama vef,
sem og á eBay, fyrir talsvert lægri
upphæð.
Það hlýtur að teljast vel við hæfi
að gefin hafi verið út matreiðslubók
í tengslum við þættina á sínum tíma
enda er ein af aðalpersónunum,
Monica Geller, matreiðslumeistari. Í
síðari hluta þáttanna er hún meira
að segja yfirkokkur á fínum veit-
ingastað á Manhattan.
Uppskriftirnar í bókinni munu
vera fjölbreytilegar og heitin oft
óvenjuleg. Sem dæmi má nefna rétt
með enska heitinu Mashed Potato-
es for the Broken-Hearted. Á ís-
lensku mætti kalla þennan rétt
Kramdar kartöflur fyrir kramin
hjörtu. Hver vill ekki gæða sér á
slíku góðmeti?
Fáir þættir hafa notið viðlíka vinsælda
og Friends. Matreiðslubókin með
réttum úr þáttunum hlýtur að vera
þess virði að elda upp úr.
Vinir að
snæðingi
Matreitt með Vinum er vinaleg mat-
reiðslubók og vekur góðar minningar
um þættina sem einu sinni voru það
allra heitasta í sjónvarpi.
Jólavörurnar eru
komnar í Álnabæ
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: Virka daga 10 til 18 og til jóla laugardaga frá 11 til 14
Jólagardínur, jóladúkar og jólaefni
Líttu við og
skoðaðu úrv
alið
Þegar hátíð sykurs og reykts kjöts gengur í
garð taka því margir feginshendi að fá léttari
máltíðir inn á milli. Þannig er ítalskur matur
kjörinn á þessum tíma árs og fljótlegt að útbúa
einföld pastasalöt þegar allir eru á þeytingi auk
þess sem þau gefa góða orku. Gott er að hafa
þau sem allra ferskust og sleppa rjómasós-
unum. Til þess er kjörið að nota hinu ýmsu
osta og hér eru nokkrar hugmyndir að góðum
pastaréttum sem tekur ekki nema 10 mínútur
að útbúa.
Rífið heilan ferskan parmesanost yfir past-
að og eitt bréf af hráskinku. Bætið við kon-
fekttómötum, skornum í helminga, og hellið
svo smávegis af góðri jómfrúarolíu yfir. Saltið
pínulítið og piprið.
Myljið heilan piparost yfir heitt pastað svo
að hann bráðni örlítið saman við. Saxið búnt
af ferski kryddjurt yfir að eigin vali. Fjalla-
steinselja eða basilíka er tilvalin. Rífið niður ½
poka af döðlum og stráið yfir. Sterka bragðið
af ostinum og það sæta úr döðlunum passar
mjög vel saman.
Steikið 1 box af sveppum að eigin vali í
nokkrar mínútur við vægan hita upp úr 2-3
msk. af ólífuolíu meðan pastað sýður. Sneiðið
niður tvær stórar kúlur af ferskum mozarella-
osti, sneiðið 1 rauðlauk í fínar sneiðar. Kreist-
ið safa úr einni appelsínu yfir og blandið saman
smá balsamediki og ólífuolíu og hellið ca. 3
msk. af þeim vökva yfir. Hellið ½ bolla af
muldum gráðosti yfir allt saman í lokin.
Pastaréttir eru kjörnir á aðventunni því fljótlegt er að útbúa þá og þá eru þeir góð tilbreyting frá
þyngri máltíðum. Sniðugt er að eiga nokkra pakka af pasta til í hillunum næstu vikur.
Morgunblaðið/ÞÖK
Pastaréttir á 10 mínútum