Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014
Matur og drykkir
K
aren Lind R. Thompson náði frábærum ár-
angri í Norðurlandameistaramóti í mód-
elfitness um daginn og vann mótið. Hún þakk-
ar þjálfaranum sínum, Jóhanni Norðfjörð hjá
Fitness-akademíunni, og styrktaraðilum en saman hafa
þau unnið hörðum höndum að því að móta líkamann að
sigursætinu. Karen Lind tók þátt í sínu fyrsta móti í
nóvember árið 2011 og sér ekki eftir því. „Ég var að
skoða myndir frá bikarmótinu á þessum tíma og hugs-
aði með mér að ég gæti þetta nú alveg þar sem ég hef
alltaf verið að lyfta til þess að halda bakinu mínu heilu
eftir bílslys og því ekki að setja sér markmið samhliða
því og stíga á svið? Ég sigraði síðan í mínum flokki á
mínu fyrsta móti og varð Íslandsmeistari um páskana
árið 2012.“ Hún æfir sex sinnum í viku en í undirbún-
ingi fyrir mót æfir hún allt að 12 sinnum í viku.
En borðar fólk í líkamsrækt alltaf hollan mat? „Ég
geri það svona oftast en ég er mannleg og fæ mér al-
veg hamborgara og pitsur inn á milli eftir erfiðan dag,
en alls ekki oft. Þó svo að ég leyfi mér allt þegar ég er
ekki að undirbúa fyrir keppni þá er ég bara orðin for-
rituð í að velja rétt og hollt mataræði,“ segir Karen
Lind. „Enda er ég orðin svo meðvituð um hvað er
gott fyrir líkamann og hvað ekki. En allt er gott í
hófi. Ef ég vil hafa nammidag þá fæ ég mér alltaf
Hámark. En stundum fer það eftir skapi hvort mig
langar í súkkulaði eða bara popp með miklu salti. Ég
er algjör saltfíkill og sæki yfirleitt meira í salt en
sykur.“
Karen Lind eldar alltaf matinn sinn sjálf og hefur
ákveðið skipulag til þess að hafa allt sem einfaldast.
„Ég tek alltaf úr frystinum áður en ég fer að sofa
það sem ég ætla að elda daginn eftir,“ segir hún og
er það góður vani. Uppáhaldsrétturinn sem hún býr
til er kjúklingasalatið sem hún gefur lesendum hér
uppskrift að. „Salatið inniheldur kjúklingahakk og er
þetta mjög fljótlegur réttur og algjört lostæti, hvort
sem hann er kaldur eða heitur. Hann hentar full-
komlega í nestisboxið og hefur alla þá næringu sem
maður þarf á að halda. Einnig er auðvelt að leika sér
með réttinn og bæta ýmsu við eða bragðbæta enn
betur.“
Morgunblaðið/Ómar
ORÐIN MEÐVITUÐ UM AÐ VELJA HOLLT MATARÆÐI
Sækir meira í
salt en sykur
ÞAÐ ÞARF AÐ HUGA AÐ MÖRGU ÞEGAR KEPPT ER Í FITNESS OG ER MATARÆÐIÐ ÞAR
EKKI UNDANSKILIÐ. KAREN LIND STÓÐ UPPI SEM SIGURVEGARI Í NORÐURLANDAMEIST-
ARAMÓTI Í MÓDELFITNESS SEM FRAM FÓR UM DAGINN EN HÚN SEGIST YFIRLEITT
BORÐA HOLLAN OG GÓÐAN MAT. STUNDUM BREGÐUR HÚN ÞÓ ÚT AF VANANUM
OG SEGIR POPP MEÐ MIKLU SALTI VERA Í UPPÁHALDI.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Karen Lind sér ekki eftir því að hafa ákveðið að byrja í fitness.
Morgunblaðið/Ómar
KJÚKLINGAHAKK
1 bringa (skorin í bita)
1 hvítlauksgeiri
1 msk ólífuolía
½ tsk chilikrydd
Allt sett í matvinnusluvél
Fyrir extra bragð er gott að setja 1 msk
BBQ-sósu eða Buffalo hot wings-sósu. (Ég
nota BBQ-sósu í þetta sinn.)
Pam-sprey sett á pönnuna og hakkið steikt.
SALAT AÐ EIGIN VALI
½ gúrka
½ paprika
½ rauðlaukur
Allt smátt saxað
1 soðin sæt kartafla, smátt skorin
Mér finnst ofboðslega gott að skvetta smásí-
trónusafa yfir salötin mín. Gefur þeim svo mik-
ið extra bragð.
KJÚKLINGASALAT