Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 41
16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
É
g var eiginlega alveg búin
að gleyma hvað það er
notalegt að eiga stundir í
ró og næði með vinkonum sínum
án þess að hversdagslegar at-
hafnir trufli stemninguna.
Það má alveg velta því fyrir
sér hvort það að eyða helgi með
vinkonum sínum jafnist ekki á
við marga sálfræðitíma. Þótt
konur séu mjög margslungnar
og geti sett sig inn í mál líðandi
stundar á mettíma er nauðsyn-
legt af og til
að fá tíma til
að fara yfir
ársfjórðungs-
uppgjörið í
næði. Og þá
er ég ekki að
tala um að
sturta í sig
áfengi í sum-
arbústað og
hringja hell-
aðar úr heit-
um potti í
beina útsend-
ingu hjá miðaldra stuðpinna.
Nei, við erum að tala um
vandaða samkomu kvenna þar
sem alvöruafslöppun er í for-
gunni. Það er nefnilega fátt
betra en að fara yfir heimsmálin
með gúrkusneiðar á augnlok-
unum og maska í andlitinu. Með
því að ræða málin með lokuð
augun fá lyktar- og heyrn-
arskynið aukið vægi og því er
ekkert í umhverfinu sem truflar
sjónsviðið. Nútímakonan þarf því
miður bara stundum á því að
halda til að fá næði fyrir dag-
legum athöfnum.
Best er að liggja út af þegar
málin eru rædd, annaðhvort í
sófa eða hjónarúmi, svo kven-
peningurinn nái að hvíla útlimina
á meðan heilinn er á yfirsnúningi
við að leysa lífsgátuna.
Einhver hefði líklega haldið að
undirrituð væri að flytja á Vest-
firðina þegar hún var búin að
pakka niður því allra nauðsyn-
legasta fyrir ferðalag síðustu
helgar. Tvær vinkonur lögðu af
stað til að heimsækja þá þriðju
og auðvitað mátti ekkert vanta.
Að sjálfsögðu var sloppurinn
það fyrsta sem fór í töskuna,
sundfötin og gönguskórnir, nátt-
fötin, nærfötin og sparikjóllinn
(ef eitthvað óvænt myndi ger-
ast), dúnkápan, vettlingarnir og
húfan. Svo voru baðskáparnir
ryksugaðir áður en lagt var af
stað. Það er náttúrlega ekki
hægt að fara á Vestfirði án þess
að vera með Clairasonic-
húðhreinsitækið meðferðis og
alls ekki hægt að leggja af stað
án djúpnæringar, hárolíu, húð-
dropa, hárbursta, hrukkukrems,
kókósolíu, fótakrems, farða,
andlitsmaska, plokkara, nef-
hárasnyrtis, háreyðingardóts og
naglalakks.
Ég þakkaði mínum sæla fyrir
allan farangurinn sem við vor-
um með því ég er viss um að
hann þyngdi Baldur töluvert
þegar við sigldum þvert yfir
Breiðafjörðinn í miklum öldu-
gangi. Þótt við vinkonurnar höf-
um báðar ýmsa fjöruna sopið
var okkur öllum lokið þegar
þernan mætti með ælupoka.
Það hefði verið svolítið erfitt að
vinna með slagorðið „stay
classy“ ef hádegismatnum hefði
verið skilað með þessum hætti.
Ekki veit ég hvort það var
svona extra slæmt í sjóinn eða
hvort áhöfnin var bara að reyna
að vernda innréttingarnar í
Baldri …
Að lokum komust þessar
spariguggur á leiðarenda án
þess að æla í poka eða villast af
leið. Alla helgina létu þær eins
og unglingsstúlkur. Létu meira
að segja þriðju vinkonu sína og
eiginmann hennar stjana við
sig. Ég veit ekki hvort spari-
guggunum verður boðið aftur …
það verður bara að koma í ljós.
martamaria@mbl.is
Agúrkur draga úr þrota og fríska upp augnsvæðið.
Með ælupoka
í Baldri
Clairasonic-húðhreinsitækið
Fæst í helstu apótekum
brokkoli.is
15. stk. freyðitöflur í stauk – skellt út í vatnsglas – þegar þér hentar
C VÍTAMÍN/1000 mg
+ BROKKOLÍ
+ GRÆNT TE
+ BIOFLAVONOIDS
+ ZINK
Drekktu í þig hollustuna!
Bragðgóður og frískandi heilsudrykkur
– fyrir alla daga !
Jarðaberjabragð Grape og sítrónubragð
C-VITA +
STYRKIR ÓNÆMISKERFIÐ
Fjölþætt viðurkennd innihaldsefni
fyrir heilsubætandi áhrif.
Fæst í Fjarðakaup, Melabúðinni og helstu apótekum
brokkoli.is
Ertu þreytt á að vera þreytt?
Getur verið að þig vanti járn?
Magnaðar járn- og
bætiefnablöndur
úr lífrænt ræktuðum jurtum
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum