Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 48
Viðtal 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.11. 2014 Í köldu stríði - Barátta og vin- átta á átakatímum er heiti bókar eftir Styrmi Gunn- arsson, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, sem kemur út hjá bókaforlaginu Veröld í næstu viku. Styrmir upplýsir ýmsa hluti í þessari bók, sem áður hafa ekki verið á margra vitorði, svo sem það að hann, tók að sér að beiðni Eyjólfs Konráðs Jónssonar (Eykons), þáverandi ritstjóra Morgunblaðsins, að gerast tengilið- ur við félaga í Sósíalistafélagi Reykjavíkur og aflaði upplýsinga úr röðum sósíalista og kommúnista á árabilinu 1961 til 1968, skrifaði skýrslur þar um, sem afhentar voru Bjarna Benediktssyni heitn- um, þá dómsmálaráðherra, Geir Hallgrímssyni, þá borgarstjóra og – að því er hann telur – bandaríska sendiráðinu. Styrmir skrifaði frétt- ir í Morgunblaðið byggðar á þeim upplýsingum sem voru í skýrsl- unum um innanflokksátök komm- únista, en þegar þetta starf hófst var hann við laganám í Háskóla Ís- lands og hóf ekki störf á Morg- unblaðinu fyrr en fjórum árum seinna. Hann upplýsir að faðir hans, Gunnar Árnason, og fleiri í hans föðurfrændgarði voru taldir hallir undir nasisma, en þau sögðu sig vera íslenska þjóðernissinna. Þetta, ógnir kalda stríðsins sem Íslend- ingar voru þátttakendur í um fjög- urra ártatuga skeið og vináttuna við vinahóp úr ólíkum áttum frá bernsku- og æskuárum ræðir Styrmir í samtali við Morgun- blaðið. - Styrmir. Það er óhætt að segja að þær séu ýmsar djúpsprengj- urnar sem þú varpar í nýrri bók þinni, Í köldu stríði. Samstarf þitt við innsta kopp í búri Sósíalista- félags Reykjavíkur um sjö ára skeið, þar sem hann var beinlínis njósnari á þínum og Morgunblaðs- ins vegum. Þú ert á reglulegum kvöld- og næturfundum með njósn- aranum, 1961-1968, og skrifar í kjölfar fundanna skýrslur um frá- sagnir hans sem voru svo nýttar til þess að skrifa fréttir af átökum í Sósíalistaflokknum og hjá her- stöðvaandstæðingum. Þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins, Eyjólfur Konráð Jónsson (Eykon), fékk þig til þess að taka þetta að þér og uppljóstrarinn fékk greiðslur fyrir upplýsingarnar sem hann veitti. – Finnst þér í dag að svona vinnubrögð sæmi blaðamanni? Djúpsprengjur varla réttnefni „Í fyrsta lagi, Agnes. Mér finnst þessar lýsingar þínar á efni bók- arinnar vera svolítið ýktar. Ég lít ekki svo á að það sé um einhverjar djúpsprengjur að ræða í þessari bók. Þetta er frásögn af ákveðnum þáttum í kalda stríðinu hér á Ís- landi fyrir hálfri öld. Það eru þá mjög gamlar djúpsprengjur, ef hægt er að nota það orð um þá frásögn. Í öðru lagi er það ekki rétt að tala um að viðmælandi minn í Sósí- alistafélagi Reykjavíkur hafi verið innsti koppur í búri, þó hann hafi verið félagsmaður í Sósíalistafélagi Reykjavíkur og þar af leiðandi haft aðgang að fundum þar. Í þriðja lagi finnst mér þessar umræður um blaðamennsku og grundvall- arþætti í blaðamennsku, sem komu líka upp í sambandi við bók sem ég skrifaði um átökin í Sjálfstæð- isflokknum í formannstíð Geirs Hallgrímssonar, vera svolítið hæpnar, af þeirri einföldu ástæðu að það er verið að leggja mæli- kvarða dagsins í dag á samfélag sem var fyrir fimmtíu árum og er löngu horfið. Í raun og veru er mjög erfitt að koma því til skila hvers konar samfélag það var sem var hér til staðar á Íslandi og ann- ars staðar á árum kalda stríðsins. Að auki er rétt að benda á að ég var ekki blaðamaður á Morgun- blaðinu þegar ég tók þetta verkefni að mér. Ég var hins vegar virkur í Heimdalli FUS. Við brugðumst við aðstæðum eins og þær voru þá og það hefur ekkert með að gera þau sjónarmið sem uppi eru í dag. Það er svo aft- ur annað mál, sem ég ætla ekkert að fara út í, að auðvitað getum við rætt ýmislegt um blaðamennsku og grundvallarþætti blaðmennsku sem er nú ekki jafn háfleyg eins og margir blaðamenn vilja vera láta í dag. En út í það ætla ég ekki að fara á þessari stundu.“ Allt getur orkað tvímælis - Engu að síður, maðurinn er þarna á ykkar vegum, hann þiggur greiðslur fyrir þær upplýsingar sem hann veitir þér, en það hefur nú verið prinsipp hjá Morgun- blaðinu frá því að ég byrjaði að vinna hér fyrir meira en 30 árum að Morgunblaðið greiðir ekki fyrir upplýsingar. Skýrslurnar sem þú skrifar fara til Bjarna heitins Benediktssonar, þáverandi dóms- málaráðherra, Geirs heitins Hall- grímssonar, þáverandi borg- arstjóra, og í bandaríska sendiráðið, auk þess sem Eykon fær að sjálfsögðu eintak. Orkar þetta ekki tvímælis? „Allt getur orkað tvímælis út frá sjónarmiðum dagsins í dag. Ég bendi á það í sambandi við greiðslur, að þessi maður sem veitti mér upplýsingarnar lagði á sig mikla vinnu fyrir okkar málstað í kalda stríðinu. Það var engin ástæða til að gera kröfu til þess að sú vinna sem stóð yfir í sjö ár, væri unnin án einhvers endur- gjalds. Hann hafði að auki tölu- verðan kostnað af þessu starfi og ósköp eðlilegt að sá kostnaður væri greiddur. Ég sé þannig ekkert at- hugavert við þennan þátt málsins. Þú segir að Morgunblaðið hafi aldrei borgað fyrir upplýsingar og það er alveg rétt hjá þér. Morgunblaðið borgaði ekki fyrir þessar upplýsingar, nema bara rétt undir blálokin. Þeir peningar komu úr öðrum áttum og í bókinni segist ég telja að peningarnir hafi framan af komið úr bandaríska sendi- ráðinu, á síðari stigum frá Sjálf- stæðisflokknum og í lokin frá Morgunblaðinu. Auðvitað er ég í hlutverki sendisveinsins í þessari upplýsingaöflun. Ég er ekki í neinu lykilhlutverki. Ég er svona lítill sendisveinn á milli manna og ber upplýsingar á milli.“ Vorum aðilar að stríði „Mér finnst hins vegar að þessir þættir málsins séu hliðarmál, hálf- gert aukaatriði. Grundvallaratriðið og ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þessa bók er auðvitað allt annað. Það stóð yfir í Evrópu í 40 ár kalt stríð. Það var ekki stríð sem háð var með vopnum á vígvöll- um – en það var stríð. Við Íslend- ingar vorum aðilar að því stríði. Þetta stríð fór líka fram hér á landi. Morgunblaðið var raunveru- Klíkan og kalda stríðið STYRMIR GUNNARSSON, FYRRVERANDI RITSTJÓRI MORGUNBLAÐSINS, HÖFUNDUR NÝRRAR BÓKAR SEM KEMUR ÚT Í NÆSTU VIKU, Í KÖLDU STRÍÐI, VILL EKKI KALLA ÞAÐ DJÚPSPRENGJUR SEM BLAÐAMAÐUR SEGIR Í SAMTALI VIÐ HANN AÐ HANN VARPI Í BÓKINNI. ÞÆR SÉU ÞÁ MJÖG GAMLAR DJÚP- SPRENGJUR, EF HÆGT SÉ AÐ NOTA ÞAÐ ORÐ UM ÞÁ FRÁSÖGN. STYRMIR UPPLÝSIR M.A. AÐ HANN AFLAÐI UPPLÝSINGA ÚR RÖÐUM SÓSÍALISTA OG KOMMÚNISTA Á ÁRUNUM 1961 TIL 1968 OG SKRIFAÐI SKÝRSLUR ÞAR UM. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.