Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Side 51
Fyrsta fréttin byggð á skýrslum Styrmis Gunn- arssonar eftir uppljóstrara úr röðum kommúnista birtist á baksíðu Morgunblaðsins 21. mars 1962 undir fyrirsögninni „Róstur í Kommúnistaflokkn- um“ og undirfyrirsögnin var „Flokkurinn hefur glatað tiltrú verkalýðsins, segja kommúnistar sjálf- ir“. Fréttin olli miklu uppnámi í röðum sósíalista og kommúnista, sem töldu augljóst að „njósnari“ á vegum Morgunblaðsins væri í þeirra röðum. „Þetta var mikil vinna og stundum annar kostn- aður og okkar maður fékk greitt fyrir þá vinnu og þau útgjöld. Ég tók við peningaseðlum úr hendi Ey- kons og afhenti okkar manni. Hvaðan komu pen- ingarnir? Ég tel, en hef ekki vissu fyrir því, að fram- an af og lengst af hafi þeir komið úr bandaríska sendiráðinu,“ segir Styrmir í bók sinni Í köldu stríði. (bls. 110) UPPNÁM HJÁ KOMMÚNISTUM Fyrsta fréttin Á baksíðu Morgunblaðsins 16. júní 1964 birtist frétt undir fyrirsögninni „Íslendingur fékk leyfi Kommúnistaflokksins til að gifta sig“. Í fréttinni segir m.a.: „Í bréfi, sem Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri Sameiningarflokks alþýðu, Sósíal- istaflokksins hefur ritað miðstjórn kommúnistaflokksins í Austur-Þýzkalandi kemur fram að blessun beggja komm- únistaflokkanna þarf til þess að Íslendingur, sem verið hef- ur við nám í Austur-Þýzkalandi, megi giftast þarlendri stúlku. Í bréfinu segir að íslenzki kommúnistaflokkurinn hafi ekkert á móti giftingunni og heimili Íslendingnum að kvænast.“ Í bók Styrmis kemur fram að þessar upplýsingar eru ekki frá uppljóstrara hans komnar, heldur komu þær úr annarri átt, og er fréttin birt beinlínis til þess að vernda heimildarmann Styrmis, sem mjög var farið að hitna undir í Sósíalistaflokknum. ÞURFTI LEYFI BEGGJA KOMMÚNISTAFLOKKANNA Fékk leyfi til að gifta sig töluðum um hér áðan og vináttu tengdaföður míns og Bjarna frá þeirra æskuárum.“ Óþægilegar spurningar - Þú ert ómyrkur í máli gagnvart aronskunni í bók þinni. Helminga- skiptin, sem byrjuðu á stríðs- árunum milli SÍS og einka- framtaksins undir verndarvæng Sjálfstæðisflokksins, fengu nýja vídd. Byrjuðu peningarnir ekki að taka yfir pólitíkina á þessum ár- um? Hefði þessi háttur nokkurn tíma verið hafður á með svo mikla gjaldtöku af varnarliðinu, ef að- ferðin hefði ekki notið meirihluta- stuðnings í Sjálfstæðisflokknum? „Ég þekki ekki til upphafsins. Ég var 12 eða 13 ára gamall þegar þetta byrjar. Ég vissi aldrei ára- tugum saman um það hvernig þetta raunverulega var. Það kom ekki fram fyrr en fyrir um aldar- fjórðungi hvernig þetta var og hvað þessi verktakafélög á Keflavíkurflugvelli voru að hagnast mikið á þessari starfsemi fyrir varnarliðið. Að vísu hafði bryddað á því við og við í fréttum áður að það hefðu komið óþægilegar spurningar í bandarískum þingnefndum um kostnað við framkvæmdir á Kefla- víkurflugvelli. En þegar þetta var upplýst, þá tók Morgunblaðið mjög harkalega við sér, eins og þú veist, því þú varst starfandi hér þá og af- staða blaðsins fór ekkert á milli mála. Ég lít svo á, eins og fram kemur í þessari bók, að þessi gróðasöfnun hafi verið svartur blettur á baráttu okkar og að hafi svona miklir fjármunir orðið að verða til í kringum þessa starfsemi á Keflavíkurflugvelli, þá hefðu þeir fjármunir átt að fara til þjóð- arinnar allrar, en ekki örfárra manna.“ Matthías lykilmaður - Morgunblaðið náði sögulegum sáttum við Nóbelsskáldið. Hvernig gerðist það? „Ég þekki þá sögu ekki. Þú verður að spyrja Matthías Johann- essen um það. Matthías var hér ungur blaðamaður á árunum milli 1950 og 1959. Hann hafði aðrar skoðanir en margir höfðu á þeim tíma. Hann átti að vinum menn eins og Þórberg og Stein Steinarr og það tókst mjög náið samband á milli Matthíasar og Halldórs Lax- ness. Ég lít svo á að Matthías hafi verið lykilmaður í því að ná ákveðnum sáttum í menningarlífinu á Íslandi á tímum kalda stríðsins og raunverulega byrjað á því starfi löngu fyrr. Matthías lá undir ákveðinni gagnrýni í okkar röðum fyrir það hvað hann lagði mikla áherslu á að rækta tengsl við vinstri menn í menningarlífinu, strax fyrir mörgum áratugum. Mér er það minnisstætt, þegar kalda stríðinu var að ljúka og Berlínar- múrinn var að falla, fyrir réttum aldarfjórðungi, og allt var að bresta hjá okkar andstæðingum, að þá vildum við Björn Bjarnason, sem þá starfaði hér á Morgun- blaðinu, láta kné fylgja kviði og hefja mikið uppgjör við komm- únista. En Matthías var algjörlega á móti því og við Björn áttum eng- an annan kost en að hlíta hans fyr- irmælum í þeim efnum og það hófst ekkert uppgjör af hálfu Morgunblaðsins við kommúnista á þeim árum.“ - Telur þú að það muni fækka í vinahópi þínum eftir að bókin er komin út? „Hvað áttu við?“ - Að þeir vinir þínir, sem ósáttir eru við hluta þeirra upplýsinga, sem þú birtir í bókinni, snúi við þér baki? „Nei, við erum orðnir svo gamlir og þroskaðir að þótt það séu ein- hverjir vina minna þeirrar skoð- unar að ég eigi ekki að gefa þessa bók út og ég eigi ekki að segja frá þessu máli, eins og reyndar kemur fram í formála bókarinnar, þá hef- ur það engin áhrif á vináttu sem staðið hefur nánast alla ævi.“ * Ég lít svo á að þessi gróðasöfnun hafi verið svart-ur blettur á baráttu okkar og að hafi svona miklirfjármunir orðið að verða til í kringum þessa starfsemi á Keflavíkurflugvelli, þá hefðu þeir fjármunir átt að fara til þjóðarinnar allrar, en ekki örfárra manna. 16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 „Þegar Geir H. Haarde forsætis- ráðherra fékk í hendur end- anlega tilkynningu um brottför varnarliðsins árið 2006 kallaði hann okkur Þorstein Pálsson, sem þá var ritstjóri Fréttablaðs- ins, til sameiginlegs fundar, sem var ekki bara óvenjulegt heldur engin fordæmi fyrir svo mér sé kunnugt um, þar sem við rædd- um um framsetningu málsins hér heima fyrir og það sem við mundi taka. Í bók Bents Jensen um kalda stríðið í Danmörku kemur hins vegar fram að slíkt samstarf ritstjóra blaða var ekki óþekkt þar í málum, sem snertu kalda stríðið. Þar komu við sögu Terkel M. Terkelsen og Svend Aage Lund frá Berlingske Ti- dende, Peder Tabor frá Social- Demokraten og Eigil Steinmetz frá Dagens Nyheder. Eins og sú saga sem hér hefur verið rakin sýnir hafði ýmislegt farið á milli okkar hér á Íslandi, sem studdum Bandaríkjamenn í kalda stríðinu, og þeirra. Við töldum – og það með réttu að mínu mati – að við gætum ætlast til meira samráðs um hvernig brottflutningi varnarliðsins yrði háttað og hvenær hann færi fram en raun varð á. Innan bandaríska stjórnkerf- isins var viðurkennt að þeir hefðu getað sýnt gamalli banda- lagsþjóð meiri virðingu en þeir sýndu undir lokin. Út á við hefur það aldrei verið gert. Hins vegar hafa orðið veðra- brigði á nýjan leik í samskiptum þessara tveggja þjóða. Fyrstu vís- bendingar um það mátti sjá á móttökum sem Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fékk í Washington í apríl 2014. Heim- sókn Victoriu Nuland, aðstoð- arráðherra í bandaríska utanrík- isráðuneytinu, sem hefur með Evrópumál að gera, til Íslands í lok júní 2014 var svo eins konar staðfesting á því. Óróinn í kring- um Rússland, hernaðaruppbygg- ing þeirra á norðurslóðum og þrýstingur Kínverja á Ísland og Grænland hafa vakið áhuga Bandaríkjamanna á Íslandi á ný.“ (Í köldu stríði bls. 256-257) GÁTU SÝNT MEIRI VIRÐINGU Brottför varnarliðsins „Sumir þeirra sem hafa lesið þetta handrit yfir hafa haft orð á því að hlutur Morgunblaðsins sé gerður mikill í þessari sögu og kannski of mikill. Af því tilefni skal sagt að það er ekki fyrst og fremst vegna þess að bókarhöf- undur starfaði þar í 43 ár heldur er raunveruleikinn sá að Morg- unblaðið var – ásamt örfáum einstaklingum innan Sjálfstæð- isflokksins – í fremstu víglínu í þessum átökum. Sú saga er einn af mögnuðustu þáttunum í 100 ára sögu þess merka dagblaðs. Í samfélagi okkar hefur nánast alla tíð verið til staðar rótgróin andúð á Morgunblaðinu hjá til- teknum hópum, þótt það hafi notið hylli hjá öðrum. Þessi and- úð hefur á stundum birzt þeim sem starfað hafa á blaðinu sem hatur. Það var lífsreynsla út af fyrir sig að verða ásamt öðrum skotspónn þess haturs. En ég skil það. Ég skil það vegna þess, að þegar eiginkona mín og systkini hennar voru lítil börn var aftur og aftur hreytt í þau ókvæð- isorðum – kommúnistar, komm- únistar!“ (Í köldu stríði bls. 12) HLUTUR MORGUNBLAÐSINS Einn magnaðasti þátturinn „Mér finnst jafnframt að ég geti ekki komið minni eigin afstöðu til skila nema segja frá því pólitíska umhverfi sem ég ólst upp í á barns- og unglingsárum og hafði auðvitað viss áhrif á mig. Eitt sinn undir lok 20. aldar sátum við Matthías Johannessen á fundi með fólki, sem hafði ýmislegt við Morgunblaðið að athuga. Á þeim fundi vísaði ég í léttum dúr til þeirrar fortíðar minnar. Að fund- inum loknum bað Matthías mig þess lengstra orða að nefna þá fortíð aldrei á nafn aftur. Það gæti skaðað Morgunblaðið. Hver var sú fortíð? Í fjölskyldu minni var fólk, sem var hallt undir málstað Þýzkalands í heimsstyrj- öldinni síðari. Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaður sendi mér bók sumarið 2012. Þá skildi ég fyrst, kominn á áttræðisaldur, sumt af því fólki sem að mér stóð. Bókin heitir á ensku The Meaning of Hitler og er eftir þýzkan gyðing, Sebastian Haffner, sem vitnar í Joachim Fest, sem skrifað hefur ævisögu Hitlers. Joachim Fest set- ur fram það sjónarmið að hefði Hitler dáið eða verið drepinn á árinu 1938 væri hann talinn eitt stærsta nafnið í þýzkri sögu. Þá áttaði ég mig á að þeir Ís- lendingar sem voru við nám eða önnur störf í Þýzkalandi áður en stríðið skall á höfðu fyrst og fremst orðið vitni að uppgangi Þýzkalands á fyrstu árum valda- tíma Hitlers. Sú staðreynd átti verulegan þátt í viðhorfi þeirra til hans. Þau voru farin þegar ósköp- in byrjuðu að ráði eða komu í ljós … (Í köldu stríði bls. 11-12) Um það bil sem ég kom í 11 ára bekk A í Laugarnesskólanum var mér orðið ljóst að verulegur hluti fjölskyldu minnar hafði verið eða gat talizt hafa verið nazistar. Þau mótmæltu því að vísu og sögðust vera íslenzkir þjóðern- issinnar, sem hefðu engin tengsl haft við Þýzkaland. Sögðu hins vegar að aðrir í hreyfingunni hefðu haft slík tengsl.“ (Í köldu stríði bls. 27-28) UPPVAXTARÁR HÖFUNDAR Sögðust vera íslenskir þjóð- ernissinnar – ekki nasistar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.