Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.11.2014, Blaðsíða 57
„Myndasagan er miðill nútímans. Rammar hennar sameina orð og mynd, en ólíkt öðrum myndmiðlum er það lesandinn sjálfur sem drífur söguna áfram með því að lesa á milli rammanna og tengja þá saman,“ segir Úlfhildur Dagsdóttir sem haft hefur umsjón með myndasögudeild Borgarbókasafnsins sl. ár. tengst. Ég hef stúderað þessi tengsl út frá bæði myndlist og auglýsingum, en myndasag- an er ótvírætt skemmtilegasta útgáfan af þessum tengslum. Mér finnst sérstaklega gaman að sögum þar sem orð og myndir stangast á en nýt einnig sagna þar sem orð og myndir falla saman og orðin falla jafnvel inn í myndina, eins og í sumum japönskum sögum. Fyrir mér virkjar þetta ímyndunar- aflið á alveg nýjan hátt,“ segir Úlfhildur og undirstrikar að hún sé sér mjög meðvituð um að engir tveir einstaklingar lesi myndasöguna með sama hætti. „Fyrir mér virkja myndir ímyndunaraflið jafnmikið og orð, bara á annan hátt. Þegar myndir og orð tala saman eða sundur þá ger- ist einhver galdur. Það verða lítil skammhlaup eða leiftur í höfðinu á manni. Ég veit fátt betra en frábæra myndasögu. Ef ég fæ myndasögu sem kveikir í mér þá er það það besta sem ég kemst í tæri við,“ segir Úlfhild- ur. Beðin að nefna nokkra góða titla, bendir Úlfhildur á að hún sé mikill hrollvekjuaðdá- andi og þess sjáist merki í vali hennar á myndasögum. Innan myndasögunnar rúmast allt „Óneitanlega eru margar af mínum mestu uppáhaldssögum hrollvekjur. Ég man enn upplifunina af því að lesa From Hell eftir Al- an Moore sem fjallar um Kobba kviðristu í London. Sú saga breytti minni sýn á borgina, því ég hef aldrei séð London í sama ljósi og eftir að ég las bókina. Önnur saga sem er í gífurlegu uppáhaldi hjá mér og sömuleiðis gefur manni nýja sýn er The Arrival eftir Shuan Tan sem er nánast án orða. Höfund- urinn fjallar um innflytjendur og hvernig þeir upplifa nýju heimkynni sín þar sem þeir skilja ekki tungumálið og siði innfæddra. Hann blandar saman raunsæi og fantasíu á sérdeilis skapandi hátt. Mér finnst mjög gaman að ferðast til nýrra heima í myndasögum. Þessar tvær ólíku bækur segja mér mikið um mína skynjun og hafa breytt skynjun minni á myndasögunni. Ég er einnig mjög hrifin af seríunni Fables eftir Bill Willingham sem gerist í New York og fjallar um ævintýrapersónur á borð við Mjallhvíti, Rauðhettu og úlfinn, Fríðu og dýr- ið sem búa þar og fara huldu höfði. Auk þess get ég endalaust glatt mig yfir Hellboy- bókunum,“ segir Úlfhildur og bætir við að eitt af því fallega við myndasöguheiminn sé að flestar sögur komi út sem seríur bóka. „Myndasöguhöfundar vita að það fylgir því alltaf svo mikil sorg þegar góðri bók lýkur og þess vegna halda þeir endalaust áfram.“ Sem fyrr segir er undirtitill bókar Úlfhildar „hetjur, skrýmsl og skattborgarar“ og ekki úr vegi að biðja hana að útskýra í hvað þau heiti vísi. „Með þessum undirtitli vildi ég gefa til kynna að innan myndasögunnar rúmast allt. Það er ekkert sem er myndasögum óviðkom- andi, hvort sem það eru hetjur, sem vel flestir tengja á einhvern hátt við myndasögur, eða við venjulegu skattborgararnir. Svo varð ég að hafa skrýmslin með þar sem ég er hroll- vekjufíkill. Það er viðtekið í myndasöguheim- inum að það eru þrjár meginlínur myndasagna sem taka mið af þremur stærstu mörkuðunum. Undir evrópska markaðarinn heyra Tinni, Ástríkur, Lukku- Láki, Goðheimar og nýlegri sögur eins og Persepolis. Of- urhetjur ásamt Andrési Önd eru áberandi í bandarískum sögum, en líka frægar myndasögur eins og Maus og aðrar neð- anjarðarsögur. Þriðji markaðurinn er japanski markaðurinn sem Vesturlandabúar eru nýbúnir að kynnast að ráði. Sá markaður hefur haft gífurleg áhrif og þá sérstaklega fyrir það að hann hefur tvö- faldað lesendahóp myndasagna með því að höfða til kvenna,“ segir Úlfhildur og tekur fram að það sé kannski ekkert skrýtið að myndasagan hafi lengi framan af talist stráka- menning. „Það stafar af því að meirihluti vestrænna myndasagna er búinn til af karlmönnum með karlhetjur í fyrirrúmi. Auðvitað hafa alltaf verið til kvenlesendur. En einhvern veginn varð þetta í Bandaríkjunum fyrst og fremst strákamenning, fyrir utan mjög stutt tímabil eftir stríð sem lognaðist út af í kjölfar ritskoð- unar,“ segir Úlfhildur og bendir á að mynda- sagan hafi löngum þótt hættuleg. Þóttu hamla læsi „Á eftirstríðsárunum í Bandaríkjunum fór þýskættaði sálfræðingurinn Fredric Wertham fremstur í flokki þeirra sem töldu myndasög- una hættulega. Hann hataðist hreinlega við myndasögur,“ segir Úlfhildur og rifjar upp að Wertham hafi á sínum tíma rekið heimili fyrir vandræðaunglinga. „Hann komst að því að all- ir vandræðaunglingar læsu myndasögur, en leit framhjá þeirri staðreynd að á þessum tíma lásu allir krakkar myndasögur, vand- ræðaunglingar jafnt sem aðrir. Enda var þetta mest spennandi afþreyingin þá. Wert- ham tókst að efna til æsings gegn myndasög- unni og í kjölfarið tóku myndasöguútgefendur upp sjálfsritskoðun sem hafði mjög alvarleg áhrif á þróun myndasögunnar í Bandaríkj- unum. Wertham var mjög illa við samkyn- hneigð „element“ í myndasögunni eins og t.d. samband Batmans og Robin, sem og samfélag Amazónanna sem Wonder Woman kom frá. Þetta þótti honum allt mjög óheppilegt fyrir mjög ungar manneskjur að lesa. Myndasagan þótti kannski ekki síst hættuleg þar sem hún var ungdóms- menning og utan þess heims sem foreldrar og forráðamenn þekktu. Stundum mátti greina ákveðna uppreisn í myndasögunni þó það hafi alls ekki verið algilt. Síð- ast en ekki síst þótti myndasagan hamla læsi þar sem þetta töld- ust ekki alvöru bækur. Kenningin var sú að þar sem myndasagan innihélt svo lítinn texta myndu les- endur hennar aldrei læra að lesa. Svo var líka kvartað undan því að börn yrðu blind af því að lesa myndasögur þar sem textinn væri svo smágerður. Þetta er mjög sorgleg saga,“ segir Úlfhildur og bætir við: „Sagan sýnir líka að myndasagan er á einhvern hátt ögrandi fyrirbæri og það er bara hið besta mál. Eilífar vinsældir og rósrauð hamingja eru ekki endi- lega málið, þvert á móti, þá er mesta stuðið þegar myndasagan nær að trufla og trylla.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg * Það er ekkert sem ermyndasögum óvið-komandi, hvort sem það eru hetjur, sem vel flestir tengja á einhvern hátt við myndasögur, eða við venjulegu skattborgararnir. Andrés Önd er ein af þekktustu persónum bandarísku mynda- sögunnar. 16.11. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Á laugardag kl. 13 til 17 verður haldið málþing um rímnakveðskap í fyrir- lestrarsal Þjóðminjasafnsins. Fjallað verður um flutning rímna og leitast við að varpa ljósi á yngri og eldri hefðir. 2 Forvitnileg barnasýning án tals, Fiskabúrið, verður frumsýnd í Kúlu Þjóðleik- hússins í dag, laugardag, og eru fjórar sýningar á verkinu um helgina. Sömu listamenn standa að sýningunni og leiksýningunni Hjarta- spöðum, en sú sýning þeirra vakti mikla og verðskuldaða athygli. 4 Nýstofnað Félag filmu- ljósmyndara á Íslandi opnar sína fyrstu samsýningu, Pushed & Pulled, í Galleríi Ís- lenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17, hafnarmegin, á laugardag klukkan 14. Þar má sjá hvað áhugafólk um filmu- tækni er að fást við. 5 Myndlistarmaðurinn Jón Óskar verður á sunnudag klukkan 14 með leiðsögn um sýningu sína, Ný verk, sem opnuð var í Listasafni Íslands um liðna helgi. Þar gefur að líta kröftug og afar forvitnileg málverk og teikningar, þar sem Trítill litli, verur úr bandarískum dægurheimi og hljómsveitir eru með- al umfjöllunarefna listamannsins. 3 Degi íslenskrar tungu er fagn- að víða um land á sunnudag. Á Gljúfrasteini fjalla Atli Rafn Sigurðarson og Ólafur Egill Egilsson kl. 16 um Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness. Ásamt Símoni Birg- issyni eru þeir höfundar leikgerðar sögunnar sem verður frumsýnd í Þjóðleikhúsinu um jólin. MÆLT MEÐ 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.