Stígandi - 01.07.1945, Blaðsíða 20

Stígandi - 01.07.1945, Blaðsíða 20
194 SKÓLARNIR OG NÁTTÚRUFRÆÐIN STÍGANDI mér að arnast við fýsi manna að læra erlend mál, enda þótt ég telji mikið vafamál, hvort rétt sé að einbeita kröftum skólanna jafnmikið og gert er í því efni. En hitt er mér fullljóst, að það er áreiðanlega eins vænlegt til þroska hverjum manni að læra staf- róf náttúrufræðinnar og byrja að stafa sig áfrarn í hinni miklu bók náttúrunnar eins og að læra þau byrjunaratriði í erlendu máli, sem nægja til þess að gera sig skiljanlega ferðalöngum eða lesa létta reifara, en öllu lengra nær ekki málakunnátta fjölda manna, sem þó telja sér hana nauðsynlega og hafa nokkru fórnað til þess að afla sér hennar. En ekki tjáir aðeins að sakast um það sem er, heldur ef unnt er að leita orsaka og úrræða. Það væri áreiðanlega mikilsvirði, ef unnt væri að vekja fleiri Islendinga til áliuga og umhugsunar um þá náttúru, sem vér lifum og hrærumst í, og það hlýtur að verða viðfangsefni skólanna í landinu, ef á annað borð nokkuð er unnt að gera í þessum efnum. Því verður ekki neitað, að skóla- tími hér á landi er mjög óheppilegur náttúrufræðinámi. A vetr- um er þess sáralítill kostur að fara með nemendurna út og sýna þeim hlutina eins og þeir eru í raun og veru. Veður eru óhagstæð og land snævi hulið. Þá eru og margir skólar þannig settir, að fátt eitt er að skoða í næsta nágrenni þeirra, en ef fara jxirí lengra en ein kennslustund nægir til, Jiá trufla slíkar ferðir um of kennsluna í öðrum greinum, svo að þessa leið er ekki unnt að fara nema að litlu leyti. En hitt er jafnvíst, að engin leið er vísari til að vekja áhuga nemenda á jDessum fræðum en sú aðfarameðjíá og sýna jDeim jDau undur, sem náttúra landsins býr yfir, en leggja um leið bækurnar á hilluna. Til nokkurra úrbóta í Jaessu efni hafa skólaferðir Menntaskólanna eflaust verið hugsaðar. Enda verður Jdví ekki neitað, að í þeim hefir oft gefizt færi á að skoða marga merkilega hluti, svo að nemendur hafa verið sýnu fróðari eftir, en jafnoft hefi ég óskað Jress, að kostur hefði verið að fara Jiá ferð fyrr á skólaævi þeirra nemenda, því að í V. bekk, sem J^ær ferðir fer, er að mestu lokið námi í náttúrufræði, og með öllu í Jreim greinum, sem slíkar ferðir koma mest að haldi, en Jiað eru jarðfræði og grasafræði. En Iiér er um að ræða hluti, sem ekki verður breytt að nokkru ráði. Skólana verðum vér að halda á vetrum, og allar ástæður mæla gegn Jdví að lengja skólatímann nokkuð sem heitir fram á sumarið, Joá yrði t. d. sumaratvinna alls þorra nemenda eyðilögð, og um leið torvelduð skólavist allra nema nokkurra efnamanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.