Stígandi - 01.07.1945, Blaðsíða 43

Stígandi - 01.07.1945, Blaðsíða 43
STÍGANDI SAGAN AF SUNNEFU FOGRU 217 „Nei, ekki mamma. Mammaer úr Suðurdölum,“ svaraði Tumi og hoífði eftirvæntingarfullur á Tóna gamla. ,,Og hvers dóttir?" „Þorvarðsdóttir." „Þorvarðsdóttir, ójá. Dóttir Þorvarðs í Hlíð,“ muldraði Tóni gamli fyrir raunni sér. „Og heimurinn cr þá svona 1 ítil 1! “ „En leikur þú á fiðlu?“ spurði Tumi. „Og hverjum kæmi það við?" anzaði Tóni. „Kannske er Tóni sérvitri Þórarinn fiðlungur í álögum?" sagði Tumi glettinn, en forvitnin logaði í augum hans. Tóni sérvitri snéri sér snöggt við, enda kom húshóndinn út í þessu og kvað mál að taka saman. Tumi gat því ekki svalað for- vitni sinni meir en orðið var, enda Tóni ekki vanur að láta lokka út úr sér fleira en honum gott þótti. En Tuini gat ekki hætt að velta þessu nýja viðfangsefni fyrir sér. Hann hafði lengið það eitt að vita um Siggu Sunnefu, að hún var talin undarleg, hafði alltal' dvalið á vegum Áshildarstaða- hjónanna, enda flutzt með þeim í þessa sveit, og að hún lét aldrei lijá líða að fara til kirkju. Tóni sérvitri, hafði honum verið sagt, að héti Þórarinn, væri aðfluttur vestan úr sýslum og hefði fengið auknefni sitt vegna sérlyndis síns. Einnig hann fór ætíð til kirkju. En þegar Tóni gamli liafði nefnt Sunnefu fögru, hafði Tumi allt í einu minnzt ævintýris, sem móðir hans hafði eitt sinn sagt honum, sögunnar af Sunnefu fögru. Honum hafði orðið það fyrst og fremst minnisstætt vegna el'tirmála \ ið það, sem hann heyrði, en átti ekki að heyra. „Það var einu sinni lítil stúlka", halði móðir hans sagt, „sem hét Sunnefa. Hún hjó í hjáleigu hjá loreldrum sínum, sem voru ákaflega fátæk. Þau voru svo fátæk, að suma daga var varla nokk- ur brauðbiti til í kotinu, en samt sem áður fannst þeim þau vera rík, því að þau áttu hana Sunnefu litlu, sem var svo fallegt barn og svo góð og kát. Hjáleigan, sem foreldrar Sunnefu bjuggu í, lá undir stóra jörð, sem hét Stóra-Skriða, og hjáleigurnar voru margar, eða Gerðin eins og þau voru kölluð í daglegu tali, því að nöfn þeirra allra enduðu á gerði. Bóndinn í Stóru-Skriðu hét Björn og var kallaður Björn ríki, því að hann var svo ríkur og voldugur, en þó stóð Gerðisbúum enn meiri ógn af konu hans, Þórhildi, sem kölluð hafði verið Suður- dalasól, meðan hún var ung og ógefin í föðurgarði. Sonur þeirra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.