Stígandi - 01.07.1945, Blaðsíða 45

Stígandi - 01.07.1945, Blaðsíða 45
STIGANDI SAGAN AF SUNNEFU FÖGRU 219 I>eir, sem næstir sátu Þórhildi húsfreyju, sögðu, að hún hefði verið þung á brúnina, gamla konan. Nú var hún ekki lengur nein Suð- urdalasól. Þegar borð voru upp tekin, var farið að dansa. Aldrei hafði verið meira fjör í dansi í Suðurdöliún. Stóra stofan í Stóru-Skriðu lék á reiðiskjálfi. Inn við stafn stóð Þórarinn fiðlungur, hár og föl- leitur, og lét bogann dansa yfir fiðlustrengina. Þykkt, kolsvart hárið féll frarn yfir augu honum. Þau sá enginn. En þegar dansinn stóð sem hæst, þagnaði allt í einu fiðluleikurinn með hásum, sog- andi ekka. Og áður en fólk hafði áttað sig, hafði Þórarinn fiðlung- ur stungið fiðlu sinni undir hönd sér og skálmað út. Fólk horfði furðu lostið hvert á annað. Og hvar var Sunnefa fagra? Einnig hún var horfin. Enginn hafði fyrr veitt því eftirtekt. Sigurður brúðgumi áttaði sig fyrst og snaraðist út á eftir Þórarni. Það var tunglsljós úti og Sigurður sá Þórarin stefna niður í Litlagerði, hjáleiguna, sem Sunnefa fagra bjó í. „Þórarinn, Þórarinn!" hróp- aði hann. „Spilaðu fyrir okkur, þú eignast hana samt. Hún vildi þig, en ekki mig,“ bætti hann \ ið, og röddin var hás og torkenni- leg. En Þórarinn anzaði ekki og hélt áfram niður el'tir. Sigurður hélt á eftir. Þannig gengu þeir heim í hjáleiguna. Sunnan undir bæjarveggnum fundu þeir hana. Hún sat á litlu grasþrepi og hall- aðist upp að veggnum, eins og hún svæfi. I höndum sér hélt hún á lítilli einigrein, sent hún þrýsti að brjóstum sér. Það fara engar sögur af því, hvernig ungu mönnunum varð við, er þeir áttuðu sig á því, að Sunnefa fagra var látin. Hún virtist hafa orðið bráð- kvödd, hvernig sem á þ\ í stóð, eins ung og hún var. En enn þann dag í dag lifir sagan af Sunnefu fögru í Suðurdölum, og þegar hún er sögð, er aldrei gleymt að segja frá jarðarförinni, þegar fiðlan hans Þórarins fiðlungs grét svo í höndunum á honum, að öllum viðstöddum fannst, að hjarta þeirra mundi springa af harmi.“ Þannig hafði móðir Tuma sagt honurn söguna af' Sunnefu fögru og liann hafði álitið liana eins og hvert annað ævintýri, unz hann áf tilviljun heyrði kvöld citt á tal móður sinnar og æskuvinkonu hennar. Þær höfðu ekki vitað af honum í næsta herbergi. Þá komst hann að því, að sagan var að mestu sönn, nerna sögulok- unum hafði móðir hans breytt. Sagan var líka næsta ný af nálinni. „Vissu rnenn, hvers vegna Sigurði snerist svo fljótt hugur?“ hafði vinkonan spurt. i „Móðir hans mun hafa talið honum trú um, að Sunnefa elskaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.