Stígandi - 01.07.1945, Qupperneq 41

Stígandi - 01.07.1945, Qupperneq 41
STIGANDI SAGAN AF SUNNEFU FOGRU 215 Ja, jæja. Hví skyldi luin flýta sér heim í þrældóminn og helgi- dagsbrotið? Bezt að fara sér liægt. Merkilegt, hvað Jórunn lét Sig- urð, þennan hrosshaus og helvítismat, ráða einu og öllu á heim- ilinu. Einu sinni hafði hún þó verið góð og guðhrædd stúlka, að minnsta kosti þegar hún var að biðja guð þess grátandi, að gefa sér hann Sigga, hí, hí. Og nú var það komið eins og komið var. Allt í hönk og vitleysu, ekkert nema þögnin og þumbaraskapur- inn. Og drottinn vissi af hverju. Nógur var efnahagurinn, efnileg voru börnin, myndarlegar voru manneskjurnar. A-jæja, það er kalt, þar sem kærleikurinn er ekki. Kynlegt annars með Sigurð, livað hann minnti hana þó alltaf á hann. Enn fann hún jafnvel til þessa ljúfa magnleysis í hnjáliðunum, er hann leit á hana eða gekk nærri henni, og var hún þó „svo gömul, sem á grönum mátti sjá“, hí, hí. Ó, mikil skelfing höfðu dagarnir verið dásamlegir, áður en myrkrið kom. Hún þar, og hún hér, og þar sem hún var, þar var liann. Hár, grannur, með dökkt hár og tinnusvört augu. Aldrei hafði hún séð þvílíka bæn og þrá í augum nokkurs manns. Hún hefði ekki getað neitað lionum um nokkuð — en hanri bað hana aldrei um neitt — það voru aðeins augun. Og hún liafði þótzt svo viss, því að augu eru aldrei sögð Ijúga. En það var líka satt, hún var alin upp í hjáleigunni, hann stórbóndasonur. Og svo — — Hvar hafði hún hætt? Og svo-----Æ, nú mundi lnin það ekki. Og svo-----? Sigga Sunnefa horfði tómlátlega í kringum sig, eins og hún sæi ekki það, sem hún hafði fyrir augum. En svo kipraði hún allt í einu munninn hæðnislega. Þarna blöstu Ashildarstaðir við, þriggja bursta steinhús, hvítmálað með dumbrauðu þaki; reisuleg útihús; stórt rennislétt tún; víðáttumiklar engjar; brött hlíð að baki, neðar áin lygn og breið; kílar, starartjarnir. Þarna sá líka ofan á bæjarhúsin í Leyningi, þar sem Tóni sérvitri átti heima. En þar var öðruvísi búið. Léleg bæjarhús, útihúsin greni, túnið lítið og þýft, engjarnar líka reytingssamar. Leið Siggu Sunnefu lá fram hjá vallargarðinum í Leyningi, þar sem Tóni og Tumi voru að snúa töðuflekk rétt innan við. Tóni hafði þá orðið þessu fyrri heim, farinn að snúa með Tuma trítli, léttastráknum reykvíska, þeim skollakoll. Hann hét nú raunar ekki trítill, en Tóni gamli kallaði hann aldrei annað, og nú hafði nafnið festst við hann. Mátulegt nafn á þessum litla rindli, sem ekkert var nema goggurinn og gaflaðið! „Þú ert þá kominn!" heilsaði Tóni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Stígandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.