Straumhvörf - 15.01.1943, Page 16

Straumhvörf - 15.01.1943, Page 16
14 STRAUMHVÖRF tvíræð skylda ríkisvaldsins að koma í veg fyrir, að slíkur þjóðhættulegur einkarekstur geti haldizt við. Ef nokkur leyfir sér að draga í efa réttmæti þess, að stríðsgróði falli í hlut einstakra manna, er jafnan viðkvæðið, að öfundazt sé yfir því, er hlutaðeigendur bera úr býtum. Slíkt er markleysa ein. Það skal ekki talið eftir, þótt atvinnurekendur, sem inna af höndum þjóðnýtt starf, hafi góðar tekjur. Þeir eiga heimtingu á því. Hitt er aftur á móti ekki hægt að láta óátalið, að menn raki til sín gróða, sem ekki er í neinu hlutfalli við unn- in störf. Engir einstakir menn geta gert neitt tilkall til stríðsgróða. Hann er ekki einkamál þeirra, sem hreppa hann, heldur félagslegt vandamál, sem viðkemur öllum þjóðfélagsþegn- um og fyrst og fremst ríkisvaldinu. Öll rök hníga að því, að stríðsgróði megi ekki falla i hlut einstakra manna. í fyrsta lagi hefir verið sýnt fram á, að ekki sé hægt að færa fram nein þjóðhagsleg rök því til réttlæt- ingar, að stríðsgróðinn falli í einka- eign. Þetta er í fullu samræmi við þá niðurstöðu, sem nú hefir verið komizt að um hina almennu réttlætishlið málsins. Stríðsgróði í einkaeign getur ekki samrýmzt lýðfrelsi og mannrétt- indum. Almennar siðgæðisreglur, sem nú eru viðurkenndar í orði, gera þá kröfu, að einstaklingunum sé gert jafn hátt undir höfði hvað viðkemur laun- um fyrir unnin störf í þágu þjóðfé- lagsins. Nú er um það að ræða, hvort þessar siðgæðisreglur eru viðurkennd- ar á borði. Bregðist það, hafa for- réttindin gengið með sigur af hólmi. Það er ckki til neitt sjálfsagðara en að stríðsgróðinn renni til hins opin- bera, sem fulltrúa þjóðarheildarinnar, og hann á að fara þangað óskertur. Samtímis þessari réttlætiskröfu hlýtur að koma fram önnur, sem sé sú, að tekin verði upp ábyrg fjár- málapólitík. Það verður að skjóta loku fyrir það, að þessi mikli hagn- aður, sem fallið hefir landinu í skaut, verði að eyðslueyri. Bæði hið opin- bera og borgararnir verða að læra að gæta fengins fjár. Annars er við- búið, að af litlu verði að taka til við- reisnar atvinnulífinu eftir stríðið. — Gróðann á síðarmeir að festa í fram- leiðslutækjum. Það ætti ekki að nota nema lítinn hluta hans til kjarabóta nú, svo að hann geti síðar farið til þess að koma fjárhagsafkomu þjóð- arinnar varanlega á traustan grund- völl. IV. Hér hefir verið leitazt við að skýra forsendur og eðli stríðsgróðans. En því fer fjarri, að hann sé einstakt fyrirbrigði í þjóðfélagi okkar.Stríðs- gróði er sama og forréttindi einstakra manna, en það má ekki loka augunum fyrir því, að til eru margs konar önn- ur efnahagsleg forréttindi. Nú er svo komið, að sama er, hvert litið er, alls staðar í viðskiptalífinu verða fyrir manni séraðstöður, sem einstakir menn notfæra sér meira eða minna harðhent, allt eftir því, hve forrétt- indaaðstaðan er sterk og þeir aðilar innrættir, sem yfir þeim ráða. Það var mjög áberandi þáttur í efnahags- þróun fyrirstríðsáranna, að menn

x

Straumhvörf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.