Straumhvörf - 15.01.1943, Qupperneq 30
28
STRAUMHVÓRF
einstaklingnum nokkuð með öðru
móti. Okkur er auðsætt, að sérhver
einstaklingur sömu tegundar ber skýr
einstaklingsmörk, en jafnframt birt-
ast á honum einkenni, sem allri teg-
undinni a. m. k. eru sameiginleg. —
Þessi sameiginlegu auðkenni og sam-
eiginlegar þarfir tryggja félagslífið,
en sérgerð einstaklinganna skapar
auðgi þess.
Okkur er ekki ótamt að ræða fé-
lagsleg eða — eins og oftar er komizt
að orði — pólitísk efni. En félagsleg
eru, þegar skoðað er niður í kjölinn,
öll viðskipti einstaklinganna, einnig
þau, sem fyrst og fremst eru talin
einkamál manna. En það grátspaugi-
lega er, að oftast er sneitt gersamlega
hjá þeim staðreyndum, sem beinlínis
eru undirstaða alls félagslífs, þegar
rætt er um félagsleg málefni. í dóm-
um hárra og lágra virðast þau ekkert
rúm eiga innan þess ramma, sem
sniðinn er um almenn þjóðmál. Þó er
skylt að geta þess, að núverandi fé-
lagsmálaráðherra braut þessa venju
með nýársávarpi sínu, og mun mörg-
um hafa komið það kynlega fyrir
sjónir, töldu margir það ávarp alls
óviðkomandi þjóðmálunum. En ráð-
herrann kom þar að kjarna málsins,
nefnilega frumöflum þeim, er í
brjóstum manna búa, eðlishvötum
þeirra, sem máttugri eru en öll ytri
öfl í félagslegum viðskiptum manna.
Spakir menn haf lengi séð, „með
hve lítilli skynsemi mannkynið
stjórnar sér“. Þeir, sem hyggja, að
unnt sé að „skipa“ öllum félagsleg-
um málum á annan veg en að leyfa
þeim að vaxa, vilja stjórna án þess
að kunna skil á öflum þeim, er mestu
ráða um verðandi þjóðfélagsins. Þau
öfl eru fólgin í blóði manna, ef mér
leyfist að nota svo táknrænt hugtak.
-— Enn renna ráð undan rifjum. —
Verkefni þeirra manna, er um félags-
leg efni f jalla, er ekki lítið, ef vaxtar-
skilyrðunum er fullur gaumur gefinn.
Kafli sá, er hér fer á eftir, er laus-
legur útdráttur úr þætti í bók próf.
McDougalls, Social Psychology. Mc-
Dougall nýtur viðurkenningar fræði-
manna, hvar sem væri, um allt, er
lýtur að félagslegri sálarfræði. Hér
er því um mjög góðan heimildar-
mann að ræða, sem nauðsynlegt er,
þar sem kafli þessi er slitinn úr
sterku samhengi. Get ég jafnvel búizt
við, að hann verði vart skilinn til
hlítar, ef hann er ekki lesinn í upp-
runalegu samhengi, en nafn höfund-
arins á samt að tryggja ályktan-
irnar.
2. Fjölskylduhvatir.
í eðli manna búa frumhneigðir,
sem ráða mestu um farnað alls mann-
lífs og mannfélags. Sönn þekking og
skilningur á eðli og starfi þessara
frumhneigða hlýtur því að vera und-
irstaða allrar félagssálarfræði og fé-
lagslegra vísinda. Frumhneigðir þess-
ar ráða mestu um það, hver verður
skipan félagslegra mála og stofnana.
En viðfangsefnið er svo flókið og
fjölþætt, að torvelt er að glöggva sig
á einstökum atriðum til hlítar. Verð-
ur því fremur leitazt við að vekja
athygli á þeim en að bera fram
kennisetningar.
Tímgunarhvötin er að ýmsu leyti