Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 96
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
Halla Bára Gestsdóttir
Gunnar Sverrisson
homeanddelicious.com
1. Perubaka með Gorgonzola-osti
Ljúffeng baka með gæðaosti.
Samsetning peru og Gorgonzola er
sérlega góð.
4 meðalþroskaðar perur, skornar í báta
safi úr hálfri sítrónu
2 msk. flórsykur
1 msk. hveiti
100 g hrásykur
200 g Gorgonzola-ostur*
mjólk til penslunar
tilbúið bökudeig, eða hefðbundið
Hitið ofn í 180 gráður. Veltið perum
upp úr sítrónusafa, stráið flórsykri yfir
og látið standa í 30 mínútur. Þerrið
perurnar, setjið í skál, stráið hveiti
yfir og veltið upp úr hveitinu. Stráið
hrásykri yfir perurnar og blandið vel
saman. Myljið helminginn af Gorgon-
zola-ostinum saman við.
Takið bökudeigið og þrýstið því létt
niður í bökuform. Hellið perunum yfir
bökudeigið og dreifið jafnt úr þeim.
Lokið með deiginu sem stendur út af.
Stráið afganginum af ostinum yfir per-
urnar sem ekki eru þaktar deigi. Bakið
í um 45 mínútur eða þar til osturinn
er vel bráðinn og deigið gullið. Berið
bökuna fram heita en hún er ekki síðri
við stofuhita.
*Nota má gráðaost og jafnvel hræra
rjómaost saman við hann til að
minnka saltbragðið.
2. Ítalskur brauðréttur með
ferskum aspas
Gæðahráefni í sparilegri brauðrétti
en maður skellir í venjulega.
8 egg
8½ dl mjólk
4 msk. graslaukur, fínt saxaður, má nota
vorlauk í staðinn
16 ferskir aspasstönglar, skornir á lang-
veginn, má nota niðursoðinn, langan
aspas*
16 sneiðar hráskinka
200 g Ísbúi eða Cheddar-ostur, rifinn
gróft niður
8 brauðsneiðar af vænu og hvítu
gæðabrauði að eigin vali, skerið sjálf í
sneiðar
Hitið ofn í 180 gráður. Smyrjið
ofnfast mót með olíu. Hrærið saman
egg, mjólk og graslauk þar til létt
og froðukennt, kryddið með salti og
pipar. Leggið 8 aspasstöngla í botn-
inn á mótinu, 4 hráskinku sneiðar
fara yfir aspasinn, stráið ¼ af
ostinum yfir hráskinkuna og leggið
brauðsneiðarnar yfir allt saman
(jafnvel of margar sneiðar, fer eftir
stærð á fati). Hellið helmingnum
af mjólkur- og eggjablöndunni
yfir og þrýstið létt á brauðið svo
vökvinn síist inn í það. Endurtakið
með aspas og hráskinku en hellið
afganginum af vökvanum þá yfir
og hafið afganginn af ostinum sem
efsta lagið. Látið réttinn standa í
a.m.k. 30 mínútur áður en hann er
settur í ofninn, en hann getur beðið
í ísskáp í allt að sólarhring. Bakið í
25-30 mínútur þar til rétturinn er
gullinn og bullar upp með hliðunum.
Ath. að um nokkuð væna uppskrift
er að ræða.
*Hér má nota niðursoðinn aspas,
óskorna stöngla, en þá þarf ekki að
skera þá eins og þann ferska, betra
að halda þeim heilum. Mæli þó ein-
dregið með ferskum.
3. Gráðaostafondú
185 ml hvítvín
1 hvítlauksrif, marið
400 g gráðaostur, brotinn niður
2 msk. kartöflumjöl, hrært í 2 msk. af
vatni
¼ tsk. múskat
safi úr ½ sítrónu
1 msk. graslaukur eða vorlaukur,
saxaður
Meðlæti
Radísur
Ferskur aspas, soðinn
Litlar gulrætur
Snjóbaunir
Kirsuberjatómatar
Brauðstangir
Bagetta í sneiðum
Sjóðið saman hvítvín og hvítlauk
í potti, látið malla í 5 mínútur.
Myljið ost saman við og látið bráðna,
hrærið þar til mjúkt og kekkjalaust.
Hellið kartöflumjölsblöndunni í
mjórri bunu saman við ostinn og
hrærið þar til blandan tekur að
þykkna. Bætið múskati, sítrónusafa
og graslauk saman við. Berið fram
heitt með góðu grænmeti og brauði
sem hugmyndir eru gefnar að hér.
*Ath. að hér gengur mjög vel að
nota annan ost en gráðaost.
4. Bakaður ostur
1 Stóri-Dímon, Kastali eða Camembert
2 msk. púðursykur
1 msk. balsamedik
4 sneiðar hráskinka
2 msk. ristaðar furuhnetur
3 þurrkaðar fíkjur, skornar í strimla
Hitið ofn í 200 gráður. Hrærið
saman púðursykri og balsamediki.
Leggið þann ost á álpappír sem
valinn er og hellið sykurblöndunni
yfir hann, veltið ostinum upp úr
henni báðum megin. Vefjið hann
þétt með hráskinku og dreifið
fíkjum og furuhnetum yfir. Pakkið
ostinum inn í álpappírinn. Setjið í
ofn í 10 mínútur, takið þá ostinn út
og opnið álpappírinn. Stingið aftur
í ofn í 5 mínútur. Berið ostinn fram
heitan með bagettusneiðum eða
góðu kexi.
Ostur á ólíkan hátt
Ef eitthvað er klassík að bjóða upp á í boðinu, þá eru það ostar. Hér eru ostar notaðir á ólíkan
hátt en eru samt aðalatriðið í frekar sparilegum brauðréttum.
RÓAR OG VERNDAR HÚÐINA
Ilm
efn
a
Vatns
Litarefna Rot
va
rn
ar
ef
n
aÁN
HÚÐVÍSINDI SEM SJÁST!
Aquaphor er græðandi krem sem flýtir fyrir endurnýjun
húðarinnar. Aquaphor mýkir og verndar mjög þurra, sára,
sprungna og pirraða húð. Hentar einnig sem kuldakrem.
Nýlega hóf störf hjá
Táp ehf. sjúkraþjálfun,
Birna Hrund Björnsdóttir
löggiltur sjúkraþjálfari.
Við bjóðum hana
velkomna til starfa.
Birna Hrund
1 2
4
3