Fréttablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 1. mars 2013 | SKOÐUN | 19 Einhverra hluta vegna amast mörg hinna nýju framboða til Alþingis við formönnum. Þetta á sérstaklega við um byltingar- þríeykið: Dögun, Lýðræðisvakt- ina og Pírata. Ýmist þykjast þessar stjórnmálahreyfingar alls ekki hafa formenn eða reyna að fela þá bak við orð eins og „talsmaður“, „mál- svari“ eða „vaktstjóri“. Kannski er þetta gott PR, að reyna að láta líta út fyrir að nýi stjórnmálaflokkurinn manns sé ferskur og formannslaus, ekki með þennan steinaldar- valdapíramída eins og hinir. „Hér verða sko allir jafnir!“ En það er ekkert víst að það sé sérstaklega sniðugt. Eða sér- staklega ferskt. Ég gæti nefnt ýmsa bylt- ingarmenn í upphafi seinustu aldar sem hugsuðu eins og jafnvel heil ríki þar sem þessi hugmyndafræði virtist ráðandi. Æðstu stjórnendur komm- únistaríkja voru oft hvorki forsetar né forsætisráðherrar heldur báru titla á borð við „aðalritari Sameinaða verka- mannaflokksins“ eða „for- maður þjóðarráðsins“. Deng Xiaoping hafði einn titil undir lokin: Hann var heiðursforseti kínverska briddssambandsins. Það má ef til vill saka mig um að reyna að skapa hér ódýr hugrenningatengsl: Fyrst kemur formannslaus flokkur, svo Gúlagið. Gott og vel. Ég játa að ég hef jákvæða tilfinningu fyrir hinum vestræna valdastrúktur þar sem einhver er valinn til valda og hann sannarlega veldur. Versti formaður sem hægt er að hugsa sér er formaður sem ekki er hægt að losa sig við. Og hvenær er ekki hægt að losna við formann? Jú, til dæmis ef hann þykist ekki einu sinni vera formaður. Í einni seinustu opinberu sjón- varpsræðu sem Gaddafí hélt sagðist hann ekki skilja hvað hann ætti að gera til að fara frá völdum, hann hefði jú, engin völd. Hann væri bara óbreyttur borgari! Á kantinum Þegar flokksfeður eins og Steingrímur J. segjast stíga til hliðar (svona aðeins) þá er ástæða til að hafa áhyggjur af því að þeir verði virkilega færir um það að láta aðra halda um stjórnartaumana. Ég þekki þess ekki mörg dæmi úr Evrópu eða Bandaríkjunum að fyrrum leiðtogar taki sér slíka stöðu á kantinum. Kannski að ástæður séu fyrir því. Þegar Ari hefur verið yfir- maður Bjarna í á hálfan annan áratug er Bjarni vanur að hlýða Ara. Menn venjast hlutverkum sínum. Landsfundurinn Víkjum aðeins að landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn hafði fyrir helgina þá stefnu að pása aðildarviðræðurnar og Forysta og „forysta“ kjósa svo um framhaldið. Eftir helgina hefur hann þá stefnu að hætta við og kjósa ekkert sér- staklega um framhaldið. Þar með var vikið frá ákveðinni sátt frá 2011 svo þeir sem að henni stóðu, til dæmis Ragnheiður Ríkharðsdóttir, hljóta nú vera óbundnir af henni. En gott og vel, auðvitað getur stjórnmálaflokkur haft afdráttarlausa stefnu í ESB- málum. En eitt er að fara meðal fólks og útskýra að meirihluti Sjálfstæðismanna vilji sjá Ísland utan ESB og annað er að reyna að réttlæta þá þvælu að menn vilji loka húsnæði Evrópusambandsins vegna þess að Evrópusambandið dreifi þar bæklingum um sjálft sig. Kommon. Það þarf enginn að elska Brussel. Það er samt óþarfi að láta eins og fáviti. Evrópuumræðan á lands- fundinum var reyndar mjög athyglisverð. Það var til dæmis merkilegt að sjá að þegar Evrópumálin voru rædd í Laugardalshöllinni þá töluðu formaður Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformaður gegn því að horfið yrði frá þeirri sátt sem náðst hafði fyrir tveimur árum. En salurinn fylgdi öðrum formanni, sem stóð út við hliðarvegg og fylgdist með meðan gamlir undirmenn hans fluttu málstað sinn í ræðu- púltinu. Þannig má segja að á lands- fundi hafi myndast ágreining- ur milli hinnar hálffimmtugu kjörnu forystu Sjálfstæðis- flokksins og hinnar hálfsjötugu fyrrum forystu hans. Auð- vitað mega allir mæta á fund og rétta upp hönd. En engu að síður: Björn Bjarnason, Davíð Oddson og Tómas Ingi Olrich þurfa ekki lengur að halda Sjálfstæðisflokknum saman. Þeir þurfa heldur ekki að mynda ríkisstjórn að kosningum liðnum. Engu að síður fara þeir gegn forystu flokksins, sem mun vonandi þurfa að gera hvort tveggja. Það er athyglisvert, svo ekki sé minna sagt. En ég ætla ekki að vorkenna forystum. Forystur verða bara að bíta frá sér. Það að vera í forystu snýst um það að leiða, en ekki bara um það að vera fyrstur. Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Versti formaður sem hægt er að hugsa sér er formaður sem ekki er hægt að losa sig við. Og hvenær er ekki hægt að losna við formann? Jú, til dæmis ef hann þykist ekki einu sinni vera formaður. Við fögnum góðum árangri! Landssamband sjálfstæðiskvenna Landssamband sjálfstæðiskvenna fagnar sterkri stöðu og árangri kvenna í Sjálfstæðisflokknum. Í undangengnum prófkjörum náðu konur frábærum árangri. Búast má við að konum fjölgi verulega í þingflokki Sjálfstæðisflokksins á næsta kjörtímabili. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi: › Formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því yfir að í næstu ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins verði jafn margar konur og karlar › 22 konur og 18 karlar hlutu kosningu í málefnanefndir flokksins › 7 af 8 formönnum málefnanefnda eru konur Við hvetjum konur til aukinnar þátttöku og áhrifa! Í þágu heimilanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.