Fréttablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 28
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og annað frábært. Tíska, hönnun og hugmyndir. Spjallið. Veruleiki. Heilsa og hamingja. Spjörunum úr og matur. 2 • LÍFIÐ 1. MARS 2013 Umsjón blaðs: Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is Umsjón nets/Lífið Ellý Ármanns elly@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Stefán Karlsson Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid Förðun Hönnu Stínu Fríða María með MAC Hár Hönnu Stínu Fríða María með label.m Lífi ð Hamingja, fólk og annað frábært HVERJIR HVAR? Sigrún Edda Eðvarðs- dóttur, fyrrverandi versl- unarstýra í KronKron, lofar mörgum gull molum og góðri stemmingu á fatasölunni á Kexi hosteli um helgina en síðustu vikur hefur hún verið að fara í gegn- um fataskápinn og segir heimilið undirlagt af kjólum og skóm. „Ef maður hefur ekki notað fötin í hálft ár til ár þá er kominn tími til að leyfa öðrum að njóta,“ segir Sigrún Edda Eðvarðs dóttir, fyrrverandi verslunarstýra í KronKron, sem er ein af þeim sem standa fyrir fatasölu á Kexi hosteli á morgun. Sigrún hefur fengið til liðs við sig góðan hóp af fólki en alls munu níu manns standa vakt- ina allan morgundaginn og selja gullmola úr fataskápum sínum. Á boðstólum verða kvenmanns- og karlmannsföt, barnaföt, fylgi- hlutir og aðrir munir. Sigrún segist allajafna vera ein af þeim sem sitja á flíkum of lengi án þess að nota þær og hefur ekki tímt að selja fyrr en núna. „Ég er búin að vera hörð við sjálfa mig og hef látið margt fjúka í fatasöluna. Þegar maður hefur verið að vinna í þessum fatageira í langan tíma sankar maður að sér ýmsu, sumt er meira að segja enn þá með verðmiðanum á,“ segir Sig- rún og bætir við að það sé mjög gott fyrir sálartetrið að hreinsa til. „Maður kemst að ýmsu um sjálfan sig á meðan maður fer í gegnum fataskápinn. Ég hef til dæmis komist að því að ég hef tilhneigingu til að kaupa mér pils sem ég nota svo aldrei. Verð með að minnsta kosti þrjú stykki sem eru enn þá með verð- miðanum á til sölu.“ Það verður því mikið um dýrðir á morgun á Kexi hosteli fyrir fataunnendur en Sigrún lofar smekkfatnaði og merkja- vöru í bland við annað. „Ég verð til dæmis með Miu Miu skó frá árinu ´97 sem ættu að falla í kramið hjá einhverjum enda lýsa þeir því tímabili í tískunni vel. Ég er ekki búin að verðleggja allt en verðið verður á breiðum skala, margt ódýrt en annað kannski aðeins dýrara. Þetta verður stuð.“ alfrun@frettabladid.is FATASALA GOTT FYRIR SÁLARTETRIÐ AÐ HREINSA TIL Sigrún Edda Eðvarðsdóttir hefur sankað að sér gullmolum í fataskápinn í gegnum tíðina en nú er hún loksins tilbúin til að láta eitthvað af hendi. Því ætlar hún, ásamt öðrum úr tískuheiminum, að blása til allsherjar fatasölu á Kexi hosteli á morgun þar sem kennir ýmissa grasa. ÞESSI ERU AÐ SELJA FÖTIN SÍN Á KEX ● Sigrún Edda Eðvarðsdóttir ● Bára Hólmgeirsdóttir ● Stefán Svan Aðalheiðarson ● Svanhildur Einarsdóttir ● Hildur Björk Yeoman ● Rósa Birgitta Ísfeld ● Sæunn Þórðardóttir ● Melkorka Huldudóttir ● Ragnheiður Helen Eðvarðsdóttir Nafn Aðalbjörg Árnadóttir. Aldur 33 ára. Starf Leikkona. Maki Hannes Óli Ágústs- son. Börn Engin. Áhugamál Sviðslistir, fót- gangandi ferðalög með allt á bakinu, matarmenning og blak. Hvað stendur upp úr í vikunni Heimsókn Leik- listar skóla LA á æfingu. Þau gáfu okkur góðar nótur sem hjálpuðu okkur á lokasprettinum. Hvað á að gera um helgina Frumsýna Kaktusinn hjá Leikfélagi Akur eyrar og fá loksins Fífu vinkonu mína í einka-dekur heimsókn. Eitthvað að lokum Komdu í sólina, fjallið og leikhúsið fyrir norðan. Hitakóf - Svitakóf Hita- og svitakóf er oft fylgikvilli breytingarskeiðs kvenna Chello hefur bætt líðan fjölda kvenna á þessu annars frábæra tímaskeiði. Chello er náttúrulegt efni og fæst í þremur tegundum: Chello fæst í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillum stórmarkaðanna Náttúruleg lausn á breytingarskeiðinu www.gengurvel.is facebook: Chello fyrir breytingarskeiðið P R E N T U N .IS Grænn án Soja Rauður fyrir konur yfir fimmtugt Blár fyrir konur undir fimmtugt VINIR OG VANDAMENN Hermanns Fannars Valgarðssonar, sem einnig er þekktur sem útvarpsmaðurinn Hemmi feiti, hittust á föstudaginn var til að minnast hans. Hann hefði orðið 33 ára þann dag en Hermann Fannar lést langt fyrir aldur fram í nóvember árið 2011. Meðal þeirra sem tróðu upp á föstudaginn voru Jón Mýrdal, bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór, en þeir eru frændur Hemma, og Þorgeir Ást- valdsson sem söng Ég fer í fríið við mikla kátínu viðstaddra. Hver er maðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.