Fréttablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 48
1. mars 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013 Sýningar 17.00 Elli opnar sýninguna Óþægilegar hugsanir í SÍM-salnum, Hafnarstræti 16. 18.00 Sýningin Innrím opnar í Víðihlíð við Klepp. Uppákomur 20.00 Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, flytur ávarp í samveru í Aðventistakirkjunni við Ingólfsstræti, í tilefni af alþjóðabænadegi kvenna. Dagurinn er haldinn í dag í 170 löndum eftir dagskrá sem kemur frá Frakklandi og er helguð innflytjendakonum. Málþing 12.00 Siðfræðistofnun efnir til málstofu um líffæraflutninga og ætlað samþykki í Lögbergi HÍ. Erindi flytja Runólfur Pálsson læknir, Salvör Nordal, forstöðu- maður Siðfræðistofnunar, og Héðinn Árnason MA. Allir velkomnir. Upplestur 18.00 Álfheiður Ingadóttir les 22. passíusálminn í Grafarvogskirkju í tilefni föstunnar. Tónlist 21.00 Hljómsveitin Oyama heldur tón- leika á Bar 11. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Pétur Ben kemur fram ásamt níu manna hljómsveit á útgáfutón- leikum plötunnar God’s Lonely Man í Bæjarbíói, Hafnarfirði. Hljómsveitin The Heavy Experience sér um upphitun og leynigestir gætu kíkt í heimsókn. Aðgangseyrir er kr. 2.500. 22.00 Hljómsveitin Skálmöld heldur tónleika í Hvíta húsinu á Selfossi. Tón- leikarnir eru hluti af Íslandstúr hljóm- sveitarinnar sem gengur undir yfir- skriftinni Myrkur, kuldi, ís og snjór 2013. Miðaverð er kr. 3.000. 22.00 Jóhanna Þórhallsdóttir og hljóm- sveit skemmta á Café Rosenberg. 23.00 Hljómsveitirnar Babes, Boogie Trouble og Nolo leiða saman hesta sína á tónleikastaðnum Faktorý. Aðgangseyrir er kr. 1.000. 23.00 Hljómsveitin Úlfarnir skemmtir á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Fyrirlestrar 12.30 Eyja Margrét Brynjarsdóttir heim- spekingur flytur fyrirlestur um tónlist og heimspeki. í Sölvhóli, tónleikasal tón- listardeildar Listaháskólans (gengið inn Skúlagötumegin). Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 13.00 Steingrímur Eyfjörð myndlistar- maður fjallar um verk sín og vinnuað- ferðir á opnum fyrirlestri í fyrirlestrarsal myndlistardeildar Listaháskóla Íslands að Laugarnesvegi 91. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. 20.00 Vilborg Davíðsdóttir heldur fyrir- lestur um Auði djúpúðgu og aðdraganda Íslandssögunnar í húsi Lífspekifélagsins að Ingólfsstræti 22. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Leikritið Karma fyrir fugla eftir Kristínu Eiríksdóttur og Karí Ósk Grétudóttur verður frum- sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Verkinu er lýst sem ljóðrænu og sálfræðilegu verki um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðarinnar á sálinni, ranglæti og fegurð. Verkið fjallar um Elsu, sem er kannski sautján ára stúlka sem er til sölu, kannski miðaldra vændiskona, kannski heimilislaus gömul kona, eða 100 ára búddanunna. Kannski er Karma fyrir fugla að gerast einmitt hér og nú, kannski á öllum tímum og alls staðar. Þetta er frumraun Kristínar og Karí fyrir leiksvið. Þær eru mynd- listarmenntaðar en Kristín hefur getið sér orð sem rit höfundur og gaf út skáldsöguna Hvítfeld sem kom út fyrir jól. Í samtali við Fréttablaðið á dögunum sögðu þær frá því hvernig þær unnu verkið þótt þær væru hvor í sinni heims- álfunni og skiptust á tölvupósti og ræddu saman gegnum Skype. „Umfjöl lunarefnið hefur brunnið á okkur báðum mjög lengi og okkur fannst ekki annað hægt en að verkið fjallaði einmitt um þetta.“ Kristín Jóhannesdóttir, nýbak- aður heiðursverðlaunahafi Edd- unnar, leikstýrir verkinu en hún hefur gengið í endurnýjun líf- daga á leiksviðinu á undan förnum árum, einatt í samstarfi við rit- höfunda. Árið 2008 leikstýrði hún Utan gátta eftir eiginmann sinn, Sigurð Pálsson, sem sópaði til sín Grímuverðlaunum, og árið 2011 leikstýrði hún Svörtum hundi prestsins eftir Auði Övu Ólafs- dóttur, en það fékk einnig lofsam- lega dóma. Leikarar í sýningunni eru Krist- björg Kjeld, Maríanna Clara Lúth- ersdóttir, Ólafía Hrönn Jóns dóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Hilmir Jensson, Þórunn Arna Kristjáns- dóttir og Þorsteinn Bachmann. Höfundur leikmyndar og búninga er Anna Rún Tryggvadóttir. Hall- dór Örn Óskarsson sér um lýsingu. Höfundar tónlistar eru Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Helgi Þórsson og Steinunn Harðardóttir en hópur listamanna sér um hljóðmynd. Karma fyrir fugla frumsýnt í Kassanum Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir nýju íslensku verki um afl eiðingar ofb eldis. Bændurnir Bjarni Sigurbjörnsson og Guðrún Lilja Arnórsdóttir á Eiði í Kolgrafafirði hafa alla tíð unnið hörðum höndum og láta ekki deigan síga þó umhverfisslys hafi valdið þeim megnum óþægindum síðustu vikur. Ungstirnið Jennifer Lawrence úr Hungurleikunum er á allra vörum eftir Óskarsverðlauna- hátíðina. Á hraðri uppleið „Þetta eru ekkert annað en náttúruhamfarir.“ Nú vex úr grasi heil kynslóð fólks sem þekkir ekki heiminn án veraldarvefsins og alls þess sem hann hefur upp á að bjóða. Fréttablaðið kannaði samskiptamiðlana. Félagsmiðstöðvar nútímafólksins Helgarblað Fréttablaðsins Helgarblað Fréttablaðsins, ómissandi hluti af góðri helgi Meðal efnis um helgina KARMA FYRIR FUGLA Þær Karí Ósk Grétudóttir og Kristín Eiríksdóttir, höfundar verksins Karma fyrir fugla, og Kristín Jóhannes- dóttir, leikstjóri verksins og heiðursverðlaunahafi Eddunnar. Flestir þekkja söguna um Fást, vísindamanninn snjalla sem varð leiður á takmörkunum mann- legrar visku og seldi því djöflinum sál sína í skiptum fyrir 26 ára ótæmandi kunnáttu. Í verki Gertrude Stein hefur Fástus gagngert selt sál sína fyrir rafmagnsljósið. Að samningstímanum liðnum kemur Mefistó svo til að heimta sálina og þar hefst einmitt sýn- ingin: Doktor Fástus í myrku ljósi. Meðal leikara eru Auðunn Lúthersson, sem leikur Doktor Fástus, og Rakel Björk Björns dóttir, sem nýverið sigraði í Söngkeppni Menntaskólans í Reykjavík og mun keppa fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna. Herranótt sýnir Dr. Fástus Herranótt, leikfélag Menntaskólans í Reykjavík, frumsýnir leikrit Gertrude Stein, Doktor Fástus í myrku ljósi í Tjarnarbíói í kvöld. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir. Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.