Fréttablaðið - 01.03.2013, Qupperneq 58
1. mars 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR ÍR- ingurinn
Aníta Hinriks dóttir verður í
sviðs ljósinu í dag á fyrsta degi
á Evrópumeistaramóti fullorð-
inna í Gautaborg. Hún hefur sett
hvert Íslandsmetið á fætur öðru
á þessu innanhússtímabili og er
eini íslenski frjálsíþróttamaðurinn
sem náði lágmörkum inn á mótið
og það í tveimur greinum.
Martha Ernstsdóttir, marg-
faldur Íslandsmethafi í lang-
hlaupum, fór á mörg stórmót á
sínum tíma og ætti að geta gefið
frænku sinni góð ráð en Aníta er
dóttir systur hennar, Bryndísar
Ernstsdóttur.
„Mér líst bara vel á þetta hjá
henni. Ég hugsa að hún setji þetta
mót upp fyrst og fremst til að hafa
gaman af þessu, bæta sig og fá
reynslu. Ég get ímyndað mér að það
sé hennar markmið. Hún er að fara
í alvöruna og fær rosalega góða
keppni. Hún er enn þá unglingur
og er bara að fara út til að ná sér í
reynslu og svona. Hún er mjög góð
í þessu og lætur það ekki trufla sig
þótt að það séu einhverjir sem eru
betri en hún. Hún fer, gerir sitt og
hleypur sitt hlaup. Það er hennar
mesti kostur,“ segir Martha.
Með níunda besta tímann
Sautján keppendur eru skráðir í
greinina og er besti tími Anítu,
2:03.27 mínútur, níundi besti
tíminn. Hin breska Jennifer Mea-
dows á besta tímann sem 1:58.43
mínútur.
Martha var í sömu sporum og
frænka hennar fyrir 23 árum. „Ég
man eftir mínu fyrsta móti en það
var Evrópumeistaramót 1990 og
var reyndar utanhúss. Ég var ekki
einu sinni byrjuð að hlaupa fyrir
alvöru á hennar aldri og var þá
bara að hlaupa úti og leika mér. Ég
byrjaði ekki fyrr en seinna. Ég var
sennilega 25 ára og orðin móðir og
allt hvað eina þegar ég fór á mitt
fyrsta stórmót,“ segir Martha.
Aníta hefur verið að bæta
Íslandsmetið keppnislaust en
það er hætt við því að það verði
þrengra um hana á brautinni í
Gautaborg í dag.
„Þetta er innanhúss, hringur-
inn er bara 200 metrar og það eru
fleiri keppendur. Það má alveg
reikna með því að það verði stymp-
ingar. Það er bara að fara af stað
og gera sitt besta. Hún mun örugg-
lega gera það og ég hef fulla trú á
því,“ segir Martha.
Aníta hefur verið spör á viðtöl
við fjölmiðla og látið verkin tala á
hlaupabrautinni. Áhuginn á henni
er þó mikill enda stelpan að gera
frábæra hluti og fyrir löngu komin
í sérflokk meðal millivegahlaup-
ara á Íslandi.
Gaman að fylgjast með henni
„Það er rosalega gaman að fylgjast
með henni en við fjölskyldan henn-
ar viljum stilla þessu í hóf og vera
ekki að ýta undir of miklar vænt-
ingar og passa upp á utanaðkom-
andi pressu. Við viljum leyfa henni
að þroskast sem heilbrigðum ung-
lingi. Þá eru meiri líkur á að þetta
gangi þannig að hún finni ekki
alltaf fyrir þessari ofboðslegu
pressu því það getur bara eyðilagt
óharðnaðan venjulega ungling,“
segir Martha og bætir við:
„Ef við ætlum að leyfa henni að
þroskast þá getum við ekki enda-
laust verið með væntingar til
hennar. Hún þarf að fá að þroskast
sem íþróttamaður og þarf að læra
að takast á við athyglina. Hún er
bara nýorðin sautján ára gömul,“
segir Martha.
Aníta hefur æft frjálsar íþrótt-
ir hjá ÍR frá tíu ára aldri, fyrst í
stað undir stjórn Harðar Gunnars-
sonar, þar sem hún æfði allar
greinar frjálsíþrótta, en eftir því
sem sérhæfð þjálfun hefur auk-
ist síðustu tvö ár hefur Gunnar
Páll Jóakimsson einnig komið að
þjálfun Anítu og er nú hennar aðal-
þjálfari og fylgir henni til Gauta-
borgar.
Martha vill að blaðamenn passi
upp á efnilegustu hlaupakonu
landsins og leyfi henni að forðast
athyglina vilji hún það sjálf.
„Ég vil endilega ítreka það
að menn virði það við hana. Við
höfum séð svo oft mikið af efni-
legum unglingum sem hafa verið
blásnir of mikið upp. Það er mjög
erfitt að fá svona pressu á sig sem
óharðnaður unglingur og getur
alveg bugað hvern sem er. Við
fjölskyldan og þjálfararnir líka
erum öll mjög upptekin við að
vera vakandi fyrir þessu og leyfa
henni bara að vera eðlilegur ung-
lingur sem kann að hlaupa,“ segir
Martha.
Mörg mót eru fram undan hjá
Anítu en aðalmarkmiðið er þó lík-
lega að vera í fremstu röð á heims-
meistaramóti 17 ára og yngri í
Donetsk í Úkraínu og á Evrópu-
meistaramóti 19 ára og yngri í
Rieti á Ítalíu.
Blés ekki úr nös
Martha sá þó snemma hæfileik-
ana hjá stelpunni enda búin að
fylgjast með henni frá barnæsku.
„Þegar við vorum að fara með
hana sem krakkann okkar upp á
Esju eða eitthvað annað þá flaug
hún áfram. Það var bara eins og
fiðrildi sem flaug áfram og blés
ekki úr nös. Það var alveg greini-
legt að hún var með þetta. Hún
er líka mjög einbeitt og leggur
sig fram. Það skilar sér,“ segir
Martha.
Aníta hefur keppni í undanrásum
klukkan fimm í dag. „Hún verður
í sviðsljósinu um helgina og Darri
sonur minn verður úti í Gautaborg
og ætlar að horfa á frænku sína.
Þetta verður bara gaman.
Þetta verður góð reynsla fyrir
hana og hún er í góðum höndum
hjá sínum þjálfara,“ sagði Martha
að lokum.
ooj@frettabladid.is
Eins og fi ðrildi upp Esjuna
Fjölskylda Anítu Hinriksdóttir vill passa upp á það að hún fái að þroskast eins og eðlilegur unglingur en
þessi 17 ára stelpa keppir á sínu fyrsta stórmóti fullorðinna á Evrópumeistaramótinu í Gautaborg í dag.
Frænka hennar, Martha Ernstsdóttir, var í sömu sporum fyrir 23 árum en þá orðin 25 ára gömul.
Á FLEYGIFERÐ Aníta Hinriksdóttir sést hér hlaupa í Laugardalshöllinni og á minni
myndinni er hún með Mörthu frænku sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Guðbjörg Gunnars-
dóttir, landsliðs markvörður
í fótbolta, mun fara með
íslenska landsliðinu til Algarve
í næstu viku en hún hefur
verið að glíma við veikindi og
lá á sjúkrahúsi í marga daga í
síðustu viku.
Nú er komið í ljós að Guðbjörg
var með heilahimnubólgu en hún
er öll að braggast og verður því
með í Algarve-bikarnum. Guð-
björg mun æfa undir leiðsögn
Reynis Björnssonar læknis og
verður vonandi orðin leikfær
í leik þrjú og fjögur. Guðbjörg
staðfesti þetta við Fréttablaðið í
gær.
Tveir aðrir markverðir eru í
hópnum, Þóra Björg Helgadóttir
og Birna Kristjánsdóttir. Þóra
hefur verið aðalmarkvörður
landsliðsins og Guðbjörg hefur
ekki fengið mörg tækifæri, nema
þá helst í Algarve-bikarnum þar
sem hún hefur spilað 13 af 21
landsleik sínum til þessa. - óój
Guðbjörg fer
til Algarve
GUÐBJÖRG Æfir undir leiðsögn læknis
í Portúgal. NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir
og félagar hennar í slóvakíska
félaginu Good Angels Kosice
komust eins og kunnugt er í átta
liða úrslitakeppni Euroleague á
dögunum og nú er ljóst hvaða lið
verða í riðli með Góðu englunum
á úrslitahelginni.
Good Angels Kosice er í riðli
með gestgjöfum Ekaterinburg
frá Rússlandi, Galatasaray frá
Tyrklandi og Polkowice frá
Póllandi. Good Angels Kosice
vann sinn riðil og sló síðan út
Perfumerias Avenida frá Spáni.
Helena er komin í úrslitakeppni
Euroleague fyrst íslenskra
körfuboltakvenna.
Leikir í riðlinum fara
fram frá 18. til 20. mars
og tvö efstu
liðin komast
í undan-
úrslitin
sem verða
spiluð 22.
mars. Úrslita-
leikurinn fer
síðan fram 24.
mars. - óój
Riðillinn klár
hjá liði Helenu
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone | Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000
FÖSTUDAGSKVÖLD
20:10
SPURNINGABOMBAN
FRÍSKASTI OG FYNDNASTI
SPURNINGAÞÁTTURINN!
Fyndnustu spurningarnar, frægustu keppendurnir og
fáránlegustu svörin. Ekki spurning, það er bannað að
missa af Spurningabombunni með Loga!
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Við höfum séð svo
oft mikið af efnilegum
unglingum sem hafa
verið blásnir of mikið
upp. Það er mjög erfitt
að fá svona pressu á sig
sem óharðnaður ungling-
ur og getur alveg bugað
hvern sem er.
Martha Ernstsdóttir