Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2013, Qupperneq 106

Fréttablaðið - 16.03.2013, Qupperneq 106
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 74 „Það var ákveðið strax morguninn eftir að við unnum Söngvakeppnina að hafa lagið á íslensku og það hefur aldrei verið nein spurning. Síðan þá erum við samt búnir að fara í tugi viðtala og segjast ekki vita neitt enn þá, því við vildum halda í spennuna,“ segir Eurovision-farinn Eyþór Ingi kátur í bragði. Myndbandið við lagið Ég á líf, framlag okkar Íslendinga í Euro- vision-söngvakeppnina, var frum- sýnt í gær og kom sú ákvörðun að halda laginu á okkar ylhýra mörg- um á óvart. Þetta er í fyrsta skipti sem við syngjum á íslensku í keppn- inni frá því að reglunum var breytt árið 1999, en þá var öllum gert heimilt að flytja lög sín á hvaða tungumáli sem er. Þar sem við fengum ekki að taka þátt árið 1998 er þetta því fyrsta lagið sem er flutt á íslensku í keppninni frá því að Páll Óskar keppti með Minn hinsti dans árið 1997, eða í sextán ár. „Við vorum allir með hnút í maganum yfir frumsýningunni en viðbrögð- in eru búin að vera ótrúlega jákvæð hingað til,“ segir Eyþór Ingi. „Mér finnst tungumálið okkar eiga skilið að njóta sín í þessum fallega texta hans Péturs,“ segir hann og á þar við Pétur Örn Guðmundsson, annan höfund lagsins. „Það er bara þann- ig að maður tjáir tilfinningar sínar alltaf best á eigin móðurmáli og ef einlægnin er til staðar þá nær hún alveg til fólks þó það skilji ekki endilega textann.“ Hinn höfundur lagsins, Örlygur Smári, hefur látið hafa eftir sér að til sé texti á fjórum tungumálum og staðfestir Eyþór það. „Það er fólk alls staðar að úr heiminum búið að senda okkur texta á mismun- andi tungumálum. Það er gaman og gleðilegt hversu margir virðast hafa skoðanir og áhuga á þessu,“ segir hann. Lag með íslenskum texta hefur hæst náð fjórða sætinu í Euro vision hingað til, þegar Stjórnin fór út með Eitt lag enn árið 1990. Spurður hvort stefnan sé sett á að toppa þann árangur segir Eyþór þá félaga lítið hafa velt slíku fyrir sér. „Lagið virð- ist þegar vera búið að fanga hjörtu landsmanna og það er stærsti sigur- inn. Við förum svo til Svíþjóðar og gerum auðvitað okkar besta og höfum gaman,“ segir hann. Sviðsframkoman hefur ekki verið endanlega útfærð enn þá en Eyþór getur þó gefið það upp að með honum á sviðinu verða Buff-bræð- ur Péturs, þeir Hannes Heimir Frið- bjarnarson og Einar Þór Jónsson, Eurovision-reynsluboltinn Krist- ján Gíslason og tónlistar maðurinn Bergþór Smári, sem er bróðir Örlygs Smára. „Það kemur svo í ljós hvað við gerum við þá, það eru nokkrar hugmyndir á lofti,“ segir hann lúmskur. Hann segist heldur ekki vera búinn að ákveða í hvaða jakka hann ætli að vera á sviðinu. „Kannski verð ég bara í kjól,“ segir hann og hlær. Íslenskan er alltaf einlægari Í fyrsta sinn í 16 ár sem íslenska heyrist í Eurovision Í gegnum tíðina hefur reglum keppninnar verið breytt nokkrum sinnum hvað það varðar hvort syngja megi á hvaða tungumáli sem er. Frá 1956 til 1965 mátti syngja á hvaða tungumáli sem er en árið 1966 var reglunum breytt og hverju landi gert að syngja á móðurmálinu. Reglurnar héldust þannig í sjö ár en árið 1973 var þeim breytt aftur. Frelsið var þó stutt því þremur árum seinna, árið 1977, voru takmarkanirnar settar á aftur. Það ár fengu Þjóðverjar og Belgar þó undanþágu þar sem bæði löndin höfðu þá valið sitt lag, sem var með enskum texta, þegar reglurnar voru settar á. Stjórnendur keppninnar virtust þá loksins hafa ákveðið sig hvað þessi mál varðaði, því þær héldust óbreyttar í 21 ár. Árið 1999 var þeim þó breytt aftur og hafa keppendur haft frelsi til að flytja lag sitt á hvaða tungumáli sem er síðan, eins og við höfum nýtt okkur á hverju ári hingað til. Reglur um tungumál síbreytilegar MEÐ HNÚT Í MAGANUM Örlygur Smári, Eyþór Ingi og Pétur Örn voru allir með hnút í maganum þegar myndbandið við Eurovision-lagið Ég á líf var frumsýnt í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MENNIRNIR Á BAK VIÐ MYND- BANDIÐ Hákon Sverrisson, Jón Tómas Einarsson, Sævar Guðmundsson og Guðmundur Þór Kárason eru mennirnir á bak við tónlistarmyndband Ég á líf. VERÐUR Á SVIÐI Söngvarinn og Buff- meðlimurinn Hannes Friðbjarnarson verður með Eyþóri á sviði í Malmö í maí. Hér er hann með Birni Víglunds- syni. Mér finnst tungu- málið okkar eiga skilið að njóta sín í þessum fallega texta Péturs. Eyþór Ingi Laugavegi 13, 101 Reykjavík, Dunhaga 5, 107 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.