Fréttablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 18
 | 2 15. maí 2013 | miðvikudagur Fróðleiksmolinn Myndin sýnir hlutfallsbreytingu á neysluverðsvísitölu, sem Hagstofa Íslands mælir, og gengisvísitölu krónunnar, sem Seðlabanki Íslands birtir, á mánaðar- legum grunni frá árinu 2000. Þegar gengisvísitala hækkar er gengi krónu að veikjast og öfugt. Eins og sést á myndinni fellur krónan árið 2008 (gengis- vísitala hækkar) og vísitala neysluverðs hækkar. Frá janúar 2009 til og með apríl 2013 hefur gengi krónu sveiflast nokkuð. Gengisvístalan hefur styrkst á tímabilinu um 1,9% en verðlag innanlands almennt hækkað um tæp 23%. Gengisþróun og verðlag Sé prósentubreyting gengisvísitölunnar skoðuð nánar fyrir tímabilið janúar 2009 og til með apríl 2013 og borin saman við prósentubreytingar á ýmsum neysluflokkum sem mældir eru í vísitölu neysluverðs kemur eftirfarandi í ljós. Neysluflokkurinn „Ferðir og flutningar“ hefur hækkað um 48% frá janúar 2009, „Drykkjarvörur“ um 37%, „Símaþjónusta“ um 34%, „Húsgögn og heimilisbúnaður“ um 23% og „Matvara“ um 21%. Að meðaltali hefur vísitala neysluverðs hækkað um 23% á þessu tímabili og laun á almennum vinnumarkaði um 28%. Gengisþróun, verðbreytingar og laun ■ Vísitala neysluverðs ■ Gengisvísitala (meðaltal mánaðar) 160 120 80 40 0 -40 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 % 70 60 50 40 30 20 10 0 -10 -20 -30 2009 2010 2011 2012 2013 % Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands | Skoða nánar: http://data.is/13uOjn4 Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands | Skoða nánar: http://data.is/13uNgU1 Blóðbankinn stækkaði pakkann og bætti við sig vörudreifingu Póstsins www.postur.is Hafðu samband við Fyrirtækjalausnir Póstsins í síma 580 1090 eða í fyrirtaekjalausnir@postur.is. Þú getur líka skoðað þær lausnir sem í boði eru á postur.is. Við viljum gera meira fyrir viðskiptavini okkar og aðstoða þá við að bjóða viðskiptavinum sínum réttar lausnir og hagræða í rekstri – það köllum við að stækka pakkann. Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins Miðvikudagurinn 15. maí ➜ Fjármál ríkissjóðs á greiðslugrunni ➜ Peningalegar eignir og skuldir ríkissjóðs ➜ Útboð ríkisbréfa ➜ Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans kynnt ➜ Peningamál Seðlabankans gefin út Fimmtudagurinn 16. maí ➜ Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu ➜ Fiskafli í apríl ➜ Stjórnir og framkvæmdastjórar fyrirtækja Föstudagurinn 17. maí ➜ Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis ➜ Samræmd vísitala neysluverðs í apríl Þriðjudagurinn 21. maí ➜ Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum janúar til febrúar 2013 ➜ Vísitala byggingarkostnaðar fyrir júní 2013 Miðvikudagurinn 22. maí ➜ Vinnumarkaðsrannsókn apríl 2013 ➜ Verðmæti sjávarafla janúar til febrúar 2013 Fimmtudagurinn 23. maí ➜ Viðskipti með atvinnuhúsnæði í apríl Föstudagurinn 24. maí ➜Vísitala lífeyrisskuldbindinga í apríl ➜Vísitala kaupmáttar launa í apríl ➜Greiðslujöfnunarvísitala í júní ➜Mánaðarleg launavísitala í apríl Þriðjudagurinn 28. maí ➜Fjöldi útgefinna vegabréfa HLUTABRÉFAMARKAÐUR Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is Fimm ný félög hafa verið skráð á hlutabréfamarkað Kauphallar Ís- lands síðastliðna tólf mánuði. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar- innar, segist eiga von á öðrum eins fjölda skráninga næstu tólf mánuði. N1 og Reitir stefna að skráningu í haust og Advania og Sjóvá á næsta ári. „Við vitum af þó nokkrum fé- lögum sem eru að vinna að skrán- ingu. Þetta lítur því ágætlega út og ég reikna með fjórum til sjö skráningum á næstu tólf mán- uðum. Það eru allar aðstæður til þess en nákvæm tímasetning ein- stakra skráninga er óviss,“ segir Páll. Mikill áhugi hefur verið á hluta- fjárútboðum í tengslum við síð- ustu skráningar, svo sem skrán- ingar VÍS og TM í apríl og maí. Páll segir að sá mikli áhugi á hlutabréfamarkaðnum sem komið hafi í ljós ætti að ýta undir fleiri og hraðari skráningar. „Mér finnst líklegt að það verði ein af niðurstöðum þessa áhuga sem er jákvætt því fleiri skrán- ingar eru auðvitað ein lausn á þeim vanda sem felst í skorti á fjárfestingartækifærum á Ís- landi. Okkur vantar bæði stærri og smærri fyrirtæki á markað,“ segir Páll og bætir við: „Markað- urinn hefur sem stendur mjög fáa fulltrúa höfuðatvinnugreina þjóð- arinnar; sjávarútvegsins, orkunn- ar, bankageirans og ferðamanna- iðnaðarins. Þá höfum við verið að sjá stærri hóp fjárfesta en áður taka þátt í þessum síðustu útboð- um sem gerir það að verkum að skráning á markað verður meira spennandi kostur fyrir smærri fyrirtæki.“ Frá bankahruni hafa sex félög verið skráð á hlutabréfamarkað hér á landi. Hagar riðu á vaðið í desember 2011 og þá hafa Reg- inn, Eimskip, Vodafone, VÍS og TM bæst í hópinn síðastliðna tólf mánuði. Meðal þeirra félaga sem helst hafa verið orðuð við skráningu á næstu misserum má nefna N1, Reiti og Advania. Eggert Bene- N1 og Reitir næst í röðinni í Kauphöllina Búist er við því að allt að sjö ný félög verði skráð á hlutabréfamarkað á næstu tólf mánuðum. N1 og Reitir stefna að skráningu í haust og Advania og Sjóvá gætu komið inn á næsta ári. Mörg önnur félög að skoða málið. ■ Ferðir og fl utningar ■ Drykkjavörur ■ Símaþjónusta ■ Húsgögn og heimilisbúnaður ■ Matvara ■ Gengisvísitala (meðaltal mánaðar) SKRÁNING HAGA Það hefur verið álag á bjöllunni í Kauphöllinni frá því að Hagar voru skráðir á markað í desember 2011. Á síðustu tólf mánuðum hafa fimm ný félög bæst í hópinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA dikt Guðmundsson, forstjóri N1, segir félagið stefna að skráningu í haust og að litið hafi verið til októ- ber eða nóvember. Þá segir hann skráningarvinnu farna af stað hjá félaginu. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir að félagið stefni enn að skráningu seint á þessu ári. „Við stefnum að því en það eru ljón í veginum sem hafa svo sem áður verið til umfjöllunar opinberlega. Þau lúta að erlendri fjármögnun félagsins og skoðun Seðlabank- ans á því hvort ákveðnir lána- skilmálar hafi lagalegt gildi. En við erum að vinna að því á fleygi- ferð að slétta úr þeim hrukkum,“ segir Guðjón. Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, segir að hann telji að fé- lagið geti verið tilbúið til skrán- ingar á markað á næsta ári. Loka- ákvörðun um skráningu liggi hins vegar hjá eigendum en ekki stjórn- endum. Stærsti eigandi Advania er Framtakssjóður Íslands með 75% eignarhlut. Þá hefur Sjóvá opinberað að fé- lagið stefni að skráningu á næsta ári þótt ekki hafi verið tekin loka- ákvörðun um dagsetningu. Meðal annarra félaga sem orðuð hafa verið við skráningu má nefna Pró- mens (sem Framtakssjóðurinn á 49,5% í), Skeljung, Marorku og MP banka. Páll Harðarson segir að fyrir utan þau félög sem rætt hafi skráningu opinberlega hafi Kaup- höllin átt í viðræðum við nokkur félög til viðbótar. „Ég á þó ekki von á því að þau fari alla leið á undan fyrstu félögunum sem lík- leg eru til að ganga frá skráningu á næstunni. En í þessum hópi eru bæði stór og smá félög,“ segir Páll og bætir við að lokum að hann eigi ekki von á annarri nýskráningu fyrr en í haust. Þegar verið skráð á markað: Félög sem orðuð hafa verið við skráningu: Hagar (desember 2011) Reitir (haust 2013) Reginn (júní 2012) N1 (haust 2013) Eimskip (nóvember 2012) Advania (2014) Vodafone (desember 2012) Sjóvá (2014) VÍS (apríl 2013) Skeljungur (?) TM (maí 2013) Prómens (?) Marorka (?) MP banki (?) SKRÁNINGAR Á HLUTABRÉFAMARKAÐ FRÁ HRUNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.