Fréttablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 30
Harry Selfridge er bandarískur fjölskyldufaðir
sem flytur með fjölskyldu sína frá Chicago til
að kenna breskum konum að kaupa tískufatnað
í alvöru vöruhúsi. Auk þess tók hann upp ýmsar
nýjungar í verslunarrekstri sem þykja vanalegar
í dag. Til dæmis var hann sá fyrsti sem taldi að
snyrtivörur og ilmvötn ættu að vera á fyrstu hæð
í stórverslunum. Enn í dag er Selfridge‘s vinsæl
verslun í London.
Þættirnir eru byggðir á ævisögu Harrys Sel-
fridge sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1856.
Faðir hans stakk af frá fjölskyldu sinni og tveir
bræður Harrys létust ungir. Harry ólst því einn
upp hjá móður sinni sem síðar flutti með honum
til London. Hann var oft kallaður mömmustrákur
vegna sterkrar vináttu þeirra.
Saga Selfridges er merkileg, ekki síst vegna
bakgrunns hans. Hann hætti í skóla 14 ára og fór
að bera út blöð til að létta undir í heimilisrekstri.
Síðan hóf Selfridge störf í banka í Michigan eða
þangað til hann fékk vinnu hjá stórversluninni
Marshall Field í Chicago. Þar starfaði hann í
25 ár, eignaðist hlut í fyrirtækinu og er þekkt-
ur fyrir að hafa fundið upp ýmis slagorð tengd
verslun. Hann hvatti fólk til innkaupa fyrir jólin
með ýmsum nýstárlegum slagorðum og fann upp
setninguna að viðskiptavinurinn hefði alltaf rétt
fyrir sér.
Selfridge‘s opnaði árið 15. mars 1909 og var
brautryðjandi á margan hátt í verslunarrekstri
í Englandi. Í fyrsta skipti hafði verslun upplýsta
glugga á nóttunni og mikilfenglegar glugga-
skreytingar. Harry Selfridge átti stórmerkilega
en sorglega ævi en hann lést í maí 1947, þá 91 árs.
Bandaríski leikarinn Jeremy Samuel Piven,
fæddur 1965, fer með hlutverk Selfridges í þátt-
unum. Hann hefur leikið í fjölda kvikmynda en
er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Ari Gold
í sjónvarpsþáttaröðinni Entourage. Hann hlaut
bæði Golden Globe og Emmy-verðlaun fyrir leik
sinn í þeim þáttum.
Lokaþáttur Mr Selfridge verður sýndur næsta
sunnudag kl. 19.55.
Mr Selfridge snýr aftur á Stöð 2 næsta vetur
en búist er við nýrri þáttaröð í desember.
Brautryðjandinn
Herra Selfridge
Margir hafa fallið fyrir Mr Selfridge sem Stöð 2 hefur sýnt
undanfarið en áframhald verður á þáttunum næsta vetur.
Hversu vel þekkir þú nágranna þína?
Þessari spurningu neyðist Weaver-fjöl-
skyldan til að svara í gamanþáttaröð-
inni The Neighbors sem hefur göngu
sína á Stöð 2 á laugardagskvöld.
Weaver-fjölskyldan fl ytur inn í nýtt
hverfi í New Jersey. Staðurinn er
líkastur paradís á jörð, í þessu litla
samfélagi hjálpast allir að auk þess
að hafa aðgang að golfvelli og hverju
sem hugurinn girnist. Smám saman
kemst Weaver-fjölskyldan að því að
þau skera sig talsvert úr í nýja hverf-
inu, þau eru einu íbúarnir sem ekki
eru geimverur.
The Neighbors fékk góðar viðtök-
ur á sjónvarpsstöðinni ABC í vetur
og er ein af fáum nýjum gamanþátta-
röðum sem ákveðið hefur verið
að halda áfram framleiðslu á næsta
vetur.
Mér þykir mikið skemmtilegra
að vinna á Stöð 2 en RÚV. Hér
fæ ég frelsi til að gera það sem
mig langar til á lifandi og dýnamískum vinnustað. Á Stöð 2 eru líka
aðeins meiri fíflalæti. Ég á hins vegar góða vini á RÚV og finnst
alltaf gaman að koma þangað,“ segir Logi um Spurningabombuna,
sem hann telur langskemmtilegasta verkefni sitt.
„Föstudagskvöld eiga að vera skemmtileg og því er Spurninga-
bomban skemmtiþáttur frekar en spurningaþáttur. Þess vegna eru
grínistar og skemmtilegt fólk uppistaðan í gestaflórunni en í nær
hverjum þætti situr nýr gestur,“ segir Logi sem á sinn eftirlætisgest.
„Þorsteinn Guðmundsson er í mestu upp-
áhaldi því hann kemur alltaf á óvart og er
fyndinn á átakalausan hátt. Anna Svava er
líka í dálæti, Gunnar Hansson, Villi naglbít-
ur og Hugleikur Dagsson, sem er alltaf pínu-
lítið óviðeigandi sem er gaman en líka dálítið
erfitt,“ segir Logi hlæjandi og öllu vanur.
„Sumir gesta minna hafa tekið yfir þáttinn
en það er bara hluti af fjörinu. Það er ekkert
atriðið fyrir mig að hafa stjórn á þættinum
og nóg af svoleiðis fólki í sjónvarpi.“
Grunnur Spurningabombunnar var sóttur í þáttinn Big Fat Quiz
of the Year á Channel 4. „Síðan höfum við bætt við mörgum atriðum
sem Channel 4 hefur tekið upp á eftir okkur og er bæði fyndið og
skemmtilegt,“ segir Logi sem semur flestar spurningarnar sjálfur.
„Ég hef mesta ánægju af bleikum og bjánalegum spurningum og
hef þá skoðun að spurningar verði að vera fyndnar. Mér finnst næst-
um ófyrirgefanlegt að gera leiðinlega spurningaþætti og nauðsyn að
fá að klára spurningar svo áhorfendur geti svarað þeim líka,“ segir
Logi sem þykir flest leyfilegt sé ætlunin að vera fyndinn.
„Eitt skemmtilegasta augnablik vetrarins var þegar Friðrik Ómar
var bókaður í óheppilega tvífarakeppni sem innihélt hann sjálfan og
tröllið úr Goonies. Sem betur fer hafði Friðrik húmor fyrir sjálfum
sér þegar tvífari tröllsins kom í ljós en var sjáanlega brugðið sem var
afskaplega fyndið en sláandi fyrir okkur og áhorfendur.“
Áhorfendur Spurningabombunnar bíða í ofvæni eftir óborganlegum
spurningadansi Rúnars Freys Sigurðssonar leikara. „Rúnar er senu-
þjófur en það er bara fínt. Á meðan fólk skemmtir sér vel er mér
alveg sama hvort ég sé í aðalhlutverki eða ekki,“ segir Logi.
MR. SELFRIDGE
Kl. 19.55 sunnudagur
THE NEIGHBORS
Kl. 19.20 laugardögum
SPURNINGABOMBAN
Kl. 20.05 föstudag
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR6
NÝIR NÁGRANNAR Á STÖÐ 2
PÍNULÍTIÐ
ÓVIÐEIGANDI
Logi Bergmann er þögull sem gröfin yfir
óvæntum endalokum Spurningabombunnar.
Óvenjuleg og bráðkemmtileg gamanþáttaröð frá Disney.
Ég hef mesta
ánægju af bleik-
um og bjánaleg-
um spurningum og
hef þá skoðun að
spurningar verði að
vera fyndnar.
KIEFER SUTHERLAND SNÝR AFTUR Í 24
Spennuþáttaröðin 24 mun snúa aftur á Stöð 2 á næsta ári. Ákveðið hefur verið að
hefja framleiðslu á nýrri þáttaröð um hörkutólið Jack Bauer, sem Kiefer Suther-
land leikur. Á árunum 2001-2010 voru framleiddar 8 þáttaraðir um Jack Bauer og
baráttu hans við hryðjuverkamenn, alls 192 þættir og ein sjónvarpsmynd.