Fréttablaðið - 15.05.2013, Page 54

Fréttablaðið - 15.05.2013, Page 54
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30 Kröfulisti Nicks Cave „Það er ekki búið að reka okkur út,“ segir rithöfundurinn Ævar Örn Jóseps- son. Hann er einn þeirra sem standa á bak við spurningakeppnina Drekktu betur sem hefur verið haldin á Bar 46 við Hverfisgötu undanfarin þrjú ár. Keppn- in hafði þar áður verið á Grand rokki sáluga í sjö ár, en keppnin var með þeim fyrstu af slíkum spurningakeppn- um til að ná fótfestu í skemmtanalífi borgarbúa. Nýir eigendur eru að taka við staðnum með nýjar áherslur, sem gæti þýtt endalok keppninnar þar. „Það eru að koma ungir og sprækir strákar sem hafa hugsað sér að gera breytingar sem henta ekki þessu ráðsetta, íhalds- sama nördagengi sem sækir þessa keppni,“ segir Ævar Örn. „En þetta er allt í góðu og þetta eru ágætisdrengir. Við erum bara að skoða landslagið og athuga hvort það er til annar staður þar sem væri hægt að gera þetta áfram á föstudags- kvöldum með svipuðu sniði og verið hefur.“ Ævar Örn tekur fram að dvölin á Bar 46 hafi verið farsæl. „Það hefur ekki dottið úr föstudagur nema það hafi verið föstudagurinn langi eða eitthvað slíkt. Þetta er alveg einstök keppni. Þátttakendur spyrja sjálfir þannig að spurningarnar eru mjög ólíkar í hverri viku, sem gefur þessu mikla fjölbreytni,“ segir hann. - fb Spurninganördar í húsnæðisleit Spurningakeppnin Drekktu betur fl ytur líklega frá Bar 46 eft ir þriggja ára dvöl. 511 Drekktu betur verður haldin í 511. sinn á Bar 46 næsta föstudagskvöld. „Þetta er pínu leiðinlegt. Við vitum að það eru margir krakkar að bíða eftir þessu og maður hafði heyrt út undan sér að Kvikmyndasjóður ætti að einblína svolítið á barnamynd- ir,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi. Hætt hefur verið við framleiðslu á kvikmyndinni Algjör Sveppi og Gói bjarga málunum því hún fékk ekki styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands. Ákvörðunin kom Sveppa og félögum í opna skjöldu því síðustu þrjár myndir í seríunni hafa allar fengi styrki frá sjóðnum. Þær hafa einnig notið mikilla vinsælda hjá ungu kynslóðinni og seldust um 30 þúsund miðar á síðustu mynd. Fréttablaðið greindi frá því fyrir mánuði að undirbúningur fjórðu myndarinnar væri í fullum gangi, tökur ættu að hefjast í lok maí og frumsýning væri fyrirhuguð í sept- ember. Anna Svava Knútsdótt- ir hafði einnig ákveðið að leika í myndinni en núna verður ekkert af tökunum. „Maður lærir vonandi af þessu að fara ekki af stað fyrr en svarið er komið,“ segir Sveppi og á við svarið frá Kvikmyndasjóði. Skipulagning Sveppa-myndanna, í leikstjórn Braga Hinrikssonar, hefur verið í föstum skorðum und- anfarin ár og því hefur stefnan verið sett á að gera aðra tilraun á næsta ári. „Við viljum taka upp í maí og júní og eiga möguleika á að frumsýna í september. Við erum með suma leikara sem eru í leik- húsum og þess vegna hefur verið ágætt að gera þetta þegar þau eru að klárast.“ Aðspurður segist Sveppi ekki vita nákvæmlega hvað sótt var um mik- inn styrk. „Við höfum alltaf fengið eitthvað smá, allavega nóg til þess að fara af stað. Þetta er alltaf svo- lítið dýrt og við viljum vera með fleiri tæknibrellur en í myndinni á undan.“ freyr@frettabladid.is Hætt við tökur á Algjörum Sveppa 4 Kvikmyndasjóður Íslands ákvað að styrkja ekki fj órðu Sveppamyndina. Alls hafa 100 þúsund miðar selst á Sveppa- myndirnar þrjár síðustu ár. Rúmlega 30 þúsund miðar seldust á Algjöran Sveppa og leitina að Villa árið 2009, tæplega 40 þúsund seldust á Algjöran Sveppa og dularfulla hótel- herbergið árið 2010 og rúmlega 30 þúsund á Algjöran Sveppa og töfraskápinn 2011. Hún var jafnframt vinsælasta íslenska myndin það árið. 100 þúsund miðar seljast á Sveppa GLAÐUR Á FRUMSÝNINGU Sveppi glaður í bragði á frumsýningu þriðju myndar- innar fyrir tveimur árum. Anna Svava Knútsdóttir átti að leika í nýju myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Nick Cave and The Bad Seeds eru á meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á tónlistarhátíðinni All Tomorrow‘s Parties sem fram fer helgina 28. til 29. júní. Líkt og venja er hefur tónlistarmaðurinn lagt fram kröfulista fyrir komu sína og segir Tómas Young, skipuleggjandi hátíðarinnar, að listinn sé hvorki langur né óraunhæfur. Nick Cave spilaði síðast á Íslandi árið 2006 og varð þá uppi fótur og fit þegar í ljós kom að gleymst hafði að kaupa koníak handa söngvaranum. Tómas þekkir söguna vel en tekur fram að hún muni ekki endurtaka sig í sumar. „Árið 2006 gleymdist að kaupa koníakflösku fyrir hann og það varð tíu mín- útna seinkun á tónleikunum á meðan verið var að hafa upp á réttu flöskunni. Þegar hún fannst var henni hent upp í leigubíl og ekið upp í Laugardals- höll. Nick fékk sér nokkra sopa, lét braka í fingr- unum og sagðist svo vera tilbúinn. Ég ákvað að vera með vaðið fyrir neðan mig og er búinn að kaupa flöskuna sem er af tegund- inni Rémy Martin,“ segir Tómas og hlær. Nick Cave er á tónleikaferðalagi um þess- ar mundir og kemur fram á Glastonbury hátíðinni daginn eftir tónleikana í Ásbrú. Með honum í för er um tuttugu manna fylgdarlið og er hópurinn sá fjölmenn- asti sem kemur til landsins í tengslum við hátíðina. „Hljómsveitin sjálf er fjölmenn og því eðlilegt að hópurinn sé stór,“ útskýrir Tómas. - sm Búinn að kaupa koníakið fyrir Nick Cave Tómas Young, skipuleggjandi All Tomorrow’s Parties, er kominn með kröfulista söngvarans Nicks Cave. GLEYMIST EKKI Tómas Young hefur þegar keypt koníaks- flösku sem var á kröfulista Nicks Cave. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ■ Ávextir ■ Vatn ■ Kex ■ Kaffi og te ■ GosdrykkirNICK CAVE Save the Children á Íslandi „Ég er bara með matreiðslubækur á náttborðinu núna og ein af þeim er mjög fín eftir hina sænsku Leilu Lindholm.“ Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, matar- bloggari og nemi BÓKIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.