Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 2
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Úlfur, úlfur, úlfur? „Já, og úlfurinn er kominn.“ Úlfur H. Hróbjartsson, formaður Siglingasam- bands Íslands. Siglingamenn vara sterklega við mörgum stórum göllum og hættum sem fylgi fyrirhugaðri göngu- og hjólabrú yfir Fossvog. HEILBRIGÐISMÁL Rúmlega tólf- hundruð einstaklingar voru á biðl- istum fyrir skurðaðgerð á auga- steini í febrúar samkvæmt úttekt Landlæknisembættisins. Sam- kvæmt heimildum blaðsins fjölg- ar jafnt og þétt í hópi þeirra sem bíða. Um sjötíu prósenta fjölgun hefur orðið á biðlistum frá því á sama tíma í fyrra. Aðeins eru gefin leyfi fyrir ákveðnum fjölda niðurgreiddra aðgerða ár hvert. Tvö fyrirtæki eru í samningi við ríkið auk Landspítalans, Sjónlag og Lasersjón. „Við sjáum fram á að klára okkar kvóta í júní. En vildum gjarnan þjónusta fleiri. Þetta eru mjög þakklátar aðgerðir og þörf- in brýnni nú en áður,“ segir Eva María Gunnars- dóttir, skrif- stofustjóri hjá Lasersjón. Kostnaður við aðgerð af þessu tagi er um hundrað og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvor t auga . Fólki stendur til boða að kaupa þjónustuna án aðkomu ríkisins. Kristinn Ólafs- son, framkvæmdastjóri hjá Sjón- lagi, segir að slíkt sé ekki þróun í rétta átt. „Það býður upp á misskiptingu sem við viljum ekki sjá innan heil- brigðiskerfisins. Meðalaldur þjóð- arinnar hækkar og við verðum því að horfast í augu við nýjar leiðir til þess að viðhalda lífsgæðum fólks,“ segir Kristinn. Hann bendir jafnframt á að með nýjum reglum Sjúkratrygginga, sem innleiddar voru síðasta sumar, leyfist fólki aðeins að skrá aðgerð á einu auga á biðlista. Breytingarn- ar hafi í för með sér verulega skert lífsgæði þeirra sem bíði aðgerðar á hinu auganu og dæmi eru um að allt að ár líði á milli aðgerða hjá sömu manneskjunni. „Fólk þarf meðal annars að fá ný gleraugu á meðan það bíður og slíkt hefur ákveðinn kostnað í för með sér. Fyrir utan álagið sem fylgir því að hafa bara um hálfa sjón,“ segir Kristinn. Athygli vekur að fjöldi aðgerða á ári hefur dregist saman um þrjá- tíu og sex prósent frá árinu 2010. Samkvæmt skýrslu Landlæknis- embættisins má rekja það til sam- einingar St. Jósefsspítala og Land- spítala. Á St. Jósefsspítala voru gerðar 673 skurðaðgerðir á auga- steini árið 2010. Aðgerðum á Land- spítala hefur hins vegar ekki fjölg- að eftir sameiningu. „Við erum með sérhæft starfs- fólki og fullkomna skurðstofu sem við notum einu sinni í viku. Það er ömurleg nýting,“ segir Kristinn. maria@frettabladid.is Efnameira fólk hefur forgang í augnaðgerðir Þeim sem bíða skurðaðgerðar á augasteini hefur fjölgað um sjötíu prósent á einu ári. Hvorki skortir tækni né starfsfólk til að sinna þessum fjölda, aðeins aukin framlög frá ríkinu. Fólk getur þurft að bíða í allt að tvö ár eftir aðgerð á augum. MARGIR BÍÐA NÝRRA AUGASTEINA Í febrúar í 2012 voru 710 einstaklingar á biðlista eftir aðgerð á augasteini, borið saman við þá rúmlega 1200 sem nú bíða. Er um sjötíu prósent fjölgun að ræða. KRISTINN ÓLAFSSON AUGNAÐGERÐ Fjöldi aðgerða hefur dregist saman um 36% frá árinu 2010. FJÖLMIÐAR Frétta- stofur 365, ritstjórn Fréttablaðsins og fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunn- ar verða sameinaðar í eina öfluga frétta- stofu 365. Jafnframt hefur verið ákveðið að fella allan sjón- varpsrekstur annan en þjónustu frétta- stofu undir eina stjórn, bæði dag- skrársetningu og eigin framleiðslu fyrir opna og lokaða dagskrá Stöðvar 2 og sportstöðva og fylgi- stöðva Stöðvar 2, sem eru Krakk- ar, Gull, Bíórásin og PoppTV. Freyr Einarsson mun stýra sjónvarps- rekstri fyrirtækisins. Loks eru rekstrarmál sem snúa að húsnæði, bifreiðum o.fl. færð frá fjármálasviði og undir stjórn Svans Valgeirssonar sem stýrir þróunar- og rekstrarmálum. Sameinaðri ritstjórn stýra núver- andi ritstjórar Fréttablaðsins. Mikael Torfason verður aðalritstjóri og leiðir sameiningarferlið og Ólaf- ur Þ. Stephensen verður ritstjóri. Áfram verða svo starfandi frétta- og vaktstjórar einstakra miðla. „Sameinuð fréttastofa 365 verð- ur sú öflugasta á landinu,“ segir Mikael en sameiningin er rökrétt framhald á aukinni samvinnu rit- stjórna undanfarin ár. Yfir hundr- að manns vinna á nýrri sameinaðri fréttastofu. Breytingin mun hafa í för með sér að talsverður hópur frétta- manna vinnur fréttir fyrir alla miðla fyrir tækisins jöfnum hönd- um. Þá verður til svigrúm fyrir aðra til að fara dýpra í málin í ein- stökum miðlum. Sameiningin þjón- ar þannig því meginmarkmiði að viðskiptavinir miðla 365 fái betri fréttaþjónustu. Ritstjórn Fréttablaðsins, fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis: Fréttastofur 365 sameinaðar ÞÝSKALAND Kvenréttindasamtök mættu á Alexandertorg í Berlín með brennandi dúkku á krossi við opnun á nýju draumahúsi Barbie þar í borg. Mótmælendur hrópuðu „það er skítalykt af bleiku“ og voru mun fleiri en aðdáendur þessarar frægu leikfangadúkku en innandyra er líkt eftir vistarverum Barbie. Mótmælin snúa að því, að í húsinu sé haldið á lofti gömlum klisjum um hlutverk karla og kvenna. Þetta er annað Barbie-húsið sem er opnað, en annað slíkt var opnað nýlega í Flórída í Bandaríkjunum. Húsið í Berlín verður opið fram í ágúst þangað til það leggur í sýningarferð um Evrópu. - shá Brenndu dúkku á krossi í mótmælum í Berlín: Barbie fékk kaldar móttökur HÍBÝLI Mótmælendur kölluðu „það er skítalykt af bleiku.“ FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem grunaður er um að hafa numið stúlku á ellefta ári á brott með valdi og brotið gegn henni kyn- ferðislega ber við minnisleysi í yfirheyrslum hjá lögreglu. Hann situr nú í einangrun á Litla- Hrauni en hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí næst- komandi. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er maðurinn rúmlega þrí- tugur faðir. Hann er tæknimennt- aður og mun hafa mætt til vinnu morguninn sem brotið var framið. Atburðarás dagsins er enn nokk- uð óljós en lögreglan rannsakar meðal annars hvort meint minn- isleysi mannsins geti stafað af eiturlyfjaneyslu, sé af geðrænum toga eða einfaldlega blekking. Tekin var blóðprufa úr mann- inum og rannsakað verður hvort hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn á sér sögu um fíkni- efnabrot en hefur ekki komið áður við sögu lögreglu vegna ofbeldis. Maðurinn er sakaður um að hafa numið stúlkuna á brott með valdi er hún labbaði heim úr skóla á þriðjudag. Hann á að hafa ekið með hana á stað í útjaðri borgarinnar og brot- ið gegn stúlkunni á grófan hátt. Stúlkan mun hafa getað gefið greinargóða lýsingu á ferðum bifreiðarinnar sem og útliti og klæðaburði mannsins. Dómari mun taka skýrslu af stúlkunni í dag. - hó Lögreglan bíður niðurstöðu blóðprufu úr manninum sem grunaður er um níðingsverk gegn stúlku: Rannsakar hvort fótur sé fyrir minnisleysi MIKAEL TORFASON, aðalritstjóri 365 frétta. FREYR EINARSSON, nýr sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. ÓLAFUR STEPHENSEN, ritstjóri 365 frétta. LÖGREGLAN Tekin var blóðprufa úr manninum og rannsakað verður hvort hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna. BANDARÍKIN Móðir stúlku í Alb- uquerque í Nýju-Mexíkó í Banda- ríkjunum horfði á þegar maður reyndi að taka dóttur hennar upp í bíl sinn. Hún stökk til, upp í eigin bíl og elti manninn um ellefu kílómetra leið. Eltinga- leikurinn endaði þannig að móð- irin keyrði inn í hliðina á bíl mannsins. Þá kom í ljós að hann hafði skilað dótturinni úr bíln- um nokkru áður. Hún var ómeidd. Maðurinn flúði af vettvangi. Lögreglan leitar nú mannsins, en hefur ekki orðið ágengt. Lög- reglan segir lýsingu á manninum jafnframt passa við lýsingu kyn- ferðisafbrotamanns í hverfinu sem enn er leitað. - ósk Elti ræningja dóttur sinnar: Móðir tók til örþrifaráða Sameinuð frétta- stofa 365 verður sú öflug- asta á landinu. Mikael Torfason, aðalritstjóri 365 EUROVISION Leikarar í uppsetn- ingu Þjóðleikhússins á Englum alheimsins brugðu heldur betur út af vananum á sýningunni í gærkvöldi, en þeir gerðu stutt hlé á sýningu sinni til þess að sjá Eyþór Inga syngja í forkeppni Eurovision. Þetta er eflaust í fyrsta og eina skiptið sem hlé er gert á leiksýningu til þess að horfa á Eurovision. Að sama skapi tóku Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sér hlé á stjórnarmyndunarviðræðum í gærkvöldi til þess að berja Eyþór Inga augum. - ósk Leikarar og stjórnmálamenn: Allra augu voru á Eyþóri Inga SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.