Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 34
FRÉTTABLAÐIÐ Heilsa og haming ja. Jói Fel grillar. Helgarmaturinn og spjörunum úr...
8 • LÍFIÐ 17. MAÍ 2013
Góður orkumoli sem hentar
vel í hreinsun.
Hrákúlur
3 dl kókosmjöl
1¼ dl kakóduft
1 dl döðlur, smátt saxaðar
1 dl fíkjur, smátt sax-
aðar
1 dl apríkósur, smátt
saxaðar
2 msk. sítrónusafi
1/3 dl kakósmjör,
brætt í vatnsbaði
Salt eftir smekk
Allt hráefni er sett
í blandara eða
matvinnsluvél.
Deigið mótað í kúlur og sett í
frysti eða kæli.
Mörgum þykja þessar hrákúlur
gefa frá sér örlítið rommbragð,
það má rekja til fíkjanna.
Þeir sem kunna ekki við
bragðið geta prófað
hrákúlur með höfr-
um, rúsínum og/eða
kakói.
Nánari upplýsingar
á www.lifdutil-
fulls.is/hreins-
un
1. SKORTUR Á SVEFNI
Á meðan þú sefur gefur þú líkam-
anum og heilanum tækifæri til að
endurhlaða og safna orku. Svefn
er því nauðsynlegur fyrir okkar
tilveru en einnig mikilvægur
eiginleiki í brennslu líkamans.
Snögg lausn
Farðu í háttinn á sama tíma á
hverju kvöldi og gefðu líkaman-
um 7-8 klst. til að sofa. Það er líka
frábært að fara örlítið fyrr upp í
rúm og lesa t.d. aðeins og ná sér
niður. Það gefur líkamanum og
heilanum hvíld frá amstri dags-
ins og tækifæri til að slaka á áður
en haldið er í draumalandið og þá
verður svefninn betri.
2.VATNSSKORTUR
Stór hluti líkam-
ans samanstendur
af vatni. Vatn hefur
það hlutverk að færa
næringarefni milli
frumna og flytja úr-
gang úr lungum,
meltingarfærum og
nýrum svo þau geti
skilað frá sér.
Snögg lausn
Fylltu tveggja lítra flösku eða
könnu af fersku vatni á hverjum
morgni og geymdu inni í ísskáp
og drekktu af flöskunni jafnt og
þétt yfir daginn. Með þessum
hætti tryggirðu þér nógu mikið
vatn á hverjum degi.
4 RÁÐ ER ORKAN Í LÁGMARKI?
Orkuleysi getur stafað af uppsöfnuðu eitri í líkamanum, áreiti, fæðuóþoli eða öðru sem við tökum jafnvel ekki eftir. Hér koma fjórar mjög algengar
ástæður fyrir orkuleysi og hvernig þú getur breytt þeim til batnaðar á augabragði.
Orkumoli
SNÖGGAR LAUSNIR
Með snöggum lausnum getur þú upplifað snögg viðbrögð en aftur á
móti getur rót orkuleysis enn verið til staðar og því getur hreinsun
komið sterk inn. Hreinsun má líkja við að ýta á endurræsingartakka
líkamans svo hann starfi betur og brenni fitu.
Það kemur mörgum á óvart að hægt sé að hreinsa án þess að svelta
eða kvelja líkamann.
3. SKORTUR Á SÚREFNI
Skortur á súrefni getur vald-
ið því að þú finnir til þreytu, ein-
beitingarskorts, svima eða slapp-
leika. Góð öndun og útivist getur
hjálpað.
Snögg lausn
Næst þegar þú kemur heim og
vilt taka síðdegislúr farðu þá
frekar í gönguskóna og út að
ganga í smá stund, það getur
komið þér á óvart hvað súrefni og
náttúran hafa góð áhrif á
orkuna.
4. ÓHREINN RISTILL
Ristillinn er eitt stórt
fráveitukerfi og með
því að vanrækja hann
getur þú valdið því að
hann verði geymslustað-
ur fyrir eiturefni. Þegar
ristillinn er hreinn og
eðlilegur ert þú orku-
mikil og hraust. Að
hreinsa ristilinn getur
verið eins einfalt og
að nota heilfæðu-
hreinsun.
Snögg lausn
Byrjaðu á að velja grænmeti í
millimál. Hráar íslenskar gul-
rætur, tómatar, gúrka og brokkólí
eru frábærir kostir. Bættu einnig
við trefjum sem millimáli. Próf-
aðu orkumolann hér að neðan.
Trefjar bæta meltingu okkar og
hraða ferlinu svo hlutir færast
hraðar út og þér líður betur.