Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 16
17. maí 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Um þessar mundir er í kynningu tillaga
að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit
í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni
má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu
andspænis hinum gömlu húsum Alþingis
og alveg að gangstétt (götuhæð skal eitt-
hvað inndregin). Þarna verður svæðið
milli húsa því miklu þrengra en núna er.
Gert er ráð fyrir að í þessu nýja húsi, og
hinum gömlu húsum Pósts og síma, verði
hótel, stórt og mikið (segir ekki í tillög-
unni að verði hótel en liggur samt fyrir).
Ekki er sýnt hvar aðalaðkoma að hótel-
inu verði, eða anddyri þess, en þrír staðir
virðast helst koma til greina, Thorvald-
sensstræti við Austurvöll, Kirkjustræti,
þar sem nýja húsið skal rísa, og svo
Fógetagarður (Víkurgarður).
Í andmælum frá forseta Alþingis og for-
sætisnefnd kemur fram að ekki gangi að
hafa anddyrið við Austurvöll og þröngi
kaflinn við Kirkjustrætið komi ekki
heldur til greina vegna vanda sem fylgi
umferð og vegna öryggis sem tryggja
verði þinginu. Þá er aðeins Fógetagarður
eftir, austurhluti hans á einhvern hátt.
Samt er í umsögn sem fylgir tillögunni
lögð áhersla á útivist og útiveitingar í
Fógetagarði og „gott flæði“ milli hans
og Austurvallar. Allt skal vera heilnæmt
í Fógetagarði og er m.a. gert ráð fyrir
börnum að leik.
Eitthvað er örðugt að sjá þetta fyrir sér
og um leið rútur, fjallabíla, leigubíla og
bílaleigubíla sem flytja gesti hótelsins til
og frá. Það segir reyndar í umsögninni
með tillögunni að umferð um Kirkjustræti
eigi að vera tímabundin og takmörkuð.
En svo er bætt við að vinna þurfi frekar
með þetta atriði. Það er orðað svona:
„Unnið verði sérstaklega með umhverfi
og umferð um Kirkjustræti, aðkomu að
Austur velli og Víkurgarði enda um mikil-
vægt almenningsrými í miðborginni að
ræða.“ Þetta skil ég svo að ekki liggi fyrir
nein skýr tillaga um aðkomu að hótelinu
og að vandinn sé óleystur.
Ótrúlegt er að höfuðborgarbúar og
aðrir landsmenn vilji samþykkja svo óljós
atriði, þegjandi og hljóðalaust; fyrst þarf
að liggja fyrir, skýrt og skorinort, hvar
aðalaðkoma hótelsins skuli vera. Mót-
mæla má með því að senda póst á skipu-
lag@reykjavik.is. Það þarf að gera ekki
síðar en 23. maí nk.
Aðkoma hótels við Fógetagarð?
SKIPULAG
Helgi
Þorláksson
sagnfræðingur
➜ Ótrúlegt er að höfuðborgarbúar
og aðrir landsmenn vilji samþykkja
svo óljós atriði, þegjandi og hljóða-
laust; fyrst þarf að liggja fyrir, skýrt
og skorinort, hvar aðalaðkoma hót-
elsins skuli vera.
www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Smart útskriftargjafir
Okkar hönnun og smíði
Baráttan byrjuð
Margir eru enn eftir sig eftir Alþingis-
kosningarnar, enda aðeins um tvær
og hálf vika síðan þær fóru fram.
Margir njóta þess í rólegheitunum
að þurfa ekki að lesa sig í gegnum
stjórnmálaskrif. Hins vegar eru þeir
til sem átta sig á því að tíminn
stendur ekki í stað og að í raun er
stutt í næstu kosningar. Næsta vor
verður kosið til sveitarstjórna og því
ekki seinna vænna að hefja slaginn.
Ef lesið er í aðsendar greinar í
blöðum og pistla á vefnum má leiða
að því líkur að barátta sé hafin
fyrir val á lista Vinstrihreyfingar-
innar– græns framboðs
í Reykjavík. Þannig hafa
þau Þorleifur Gunnlaugs-
son varaborgarfulltrúi og
Líf Magneudóttir, sem skipaði
þriðja sætið síðast, verið dugleg að
stinga niður penna. Kannski odd-
vitinn Sóley Tómasdóttir þurfi að
skella sér í baráttuna?
Prófkjöri flýtt
Þá er ljóst að nýr oddviti mun leiða
lista Sjálfstæðisflokksins í næstu
borgarstjórnarkosning-
um, þar sem Hanna
Birna Kristjáns-
dóttir er á leið úr
borgarstjórn á þing.
Þegar svo hefur
gerst áður
hefur flokkurinn
flýtt prófkjöri
og haldið
að hausti.
Líklega verður
svo aftur nú.
Fá ekki að hætta strax
Óttarr Proppé hættir líka í borgar-
stjórn, enda á leið á þing eins og
Hanna Birna. Þau eru raunar þegar
listuð sem þingmenn á heimasíðu
Alþingis og munu taka sæti á
sumarþinginu. Hins vegar er dagatal
borgarstjórnar annað en flestra
okkar hinna og því fá
Óttarr og Hanna
Birna ekki að hætta
fyrr en 1. september.
Þau munu því verða
borgarfulltrúar og
þingmenn þangað
til.
kolbeinn@frettabladid.isF
réttastofur 365 miðla, ritstjórn Fréttablaðsins og
fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, voru í gær
sameinaðar undir einni stjórn. Þannig verður til öflug-
asta ritstjórn landsins, sem hefur yfir fjórum af stærstu
fjölmiðlum landsins að ráða og hefur á að skipa yfir 100
starfsmanna hópi með fjölbreytilegan bakgrunn, menntun og
reynslu. Núverandi ritstjórar Fréttablaðsins munu stýra sam-
einaðri ritstjórn.
Þróunin á alþjóðlegum vett-
vangi hefur verið sú að í stórum
fjölmiðlafyrirtækjum sem
reka marga fjölmiðla vinna
fréttamenn í vaxandi mæli fyrir
marga miðla. Fyrir því eru bæði
hagkvæmnisrök og faglegar
röksemdir.
Tækninni fleygir fram og
það er til að mynda lítið mál fyrir sama fréttateymið að taka
ljósmyndir, hreyfimyndir og hljóðupptökur og skrifa texta fyrir
bæði dagblað og vef. Þá er fráleitt að senda marga fréttamenn,
ljósmyndara og tökumenn til að fjalla um sama atburðinn fyrir
sama fyrirtæki. Tölvukerfi eins og þau sem fréttamenn 365 nota
til að vinna fréttir eru beinlínis hönnuð með það fyrir augum að
sama fólkið vinni fyrir marga fjölmiðla. Með sameiningunni er
dregið úr tví- og jafnvel þríverknaði sem enn á sér stað í frétta-
öflun fyrirtækisins.
Það er ekki algengt í nágrannalöndunum að allar tegundir fjöl-
miðla séu reknar af sama fyrirtæki sem þjónustar heila þjóð eins
og háttar til hjá 365, en algengt að sjónvarps- og útvarpsstöðvar
sameinist um fréttastofu og dagblöð reki öfluga vefmiðla, svo
dæmi séu tekin. Miðlar sem einu sinni ráku hver sína fréttastofu,
Stöð 2, Bylgjan og Vísir, hafa um árabil haft sömu fréttastofu.
Hún sameinast nú ritstjórn Fréttablaðsins. Það er rökrétt fram-
hald af síauknu samstarfi ritstjórnanna á seinni árum.
Sameining fréttastofanna hefur þrennt í för með sér sem
notendur fjölmiðla 365 ættu að fagna.
Í fyrsta lagi mun sérþekking fréttamanna á viðfangsefni
fréttanna nýtast betur; þeir munu afla ýtarlegra upplýsinga um
mál líðandi stundar og miðla þeim í öllum miðlum í stað þess að
vera sérfræðingar í miðlinum eins og einu sinni var.
Í öðru lagi verður til öflugri sýn á hvernig ólíkum hliðum
stórra fréttamála er bezt sinnt í mismunandi fjölmiðlum 365;
sjónvarp, útvarpi, vef og dagblaði. Þannig er hægt að draga upp
sterka heildarmynd, þar sem miðlarnir spila saman.
Í þriðja lagi er hægt að sinna fréttarútínu dagsins með færra
fólki og meira svigrúm skapast þá fyrir aðra að ástunda rann-
sóknarblaðamennsku og fara dýpra í mál fyrir einstaka miðla.
Sameining fréttastofanna tekur einhvern tíma. Lesendur
Fréttablaðsins munu þó fljótlega sjá að hópurinn sem skrifar
fréttir í blaðið er enn stærri, fjölbreyttari og öflugri en verið
hefur. Núverandi blaðamenn Fréttablaðsins munu birtast á sjón-
varpsskjánum og rödd þeirra heyrast á Bylgjunni. Og fyrst og
fremst eiga fréttirnar að verða betri og þjónustan við neytendur
öflugri.
Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina:
Öflugri hópur,
betri fréttir