Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 48
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | MENNING
BÆKUR ★★★ ★★
Drekinn
Sverrir Berg
UPPHEIMAR
Brynjar vinnur hjá ráðgjafarfyrir-
tæki í Reykjavík eftir að hafa misst
stöðuna í Kaupþingi eftir hrunið.
Hann fær það verkefni að rann-
saka fjárhagsstöðu fyrirtækis þar
sem eigandinn virðist hafa svipt
sig lífi. Tilgangurinn með rann-
sókninni er að koma með tillögur
til hagsbóta fyrir fyrirtækið til að
rétta af reksturinn sem er í molum.
Um leið vinnur hann bakgrunns-
skýrslu fyrir öflugan viðskipta-
vin úti í heimi um íslenskan mann,
Olgeir að nafni, sem fer fremstur
í flokki við að afla fjármagns til
vinnslu olíu á drekasvæðinu. Leik-
urinn berst um víðan völl, sögu-
sviðið teygir sig frá Moskvu til
New York og þaðan til London og
loks Kaupmannahafnar. Alþjóð-
legir fjármálajöfrar, kröfuhafar
íslensku bankanna, brugga laun-
ráð og ísraelskur fyrrverandi sér-
sveitarhermaður situr um hvert
fótmál Brynjars. Fléttan flækist
enn þegar hann upphefur ástar-
samband við konu úr stjórn fyrir-
tækisins sem hann er að rannsaka,
konu sem hann hálft í hvoru grun-
ar um græsku.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu er ekkert smáræði undir
í fyrstu skáldsögu Sverris Berg.
Ísland eftir hrun – ytri tími sög-
unnar er apríl 2013 – alþjóðleg fjár-
málaumsvif, olíuleit, græðgi, vél-
ráð og persónulegir harmar, allt
þetta sem nauðsynlegt er í spennu-
sögu, er hér til staðar og það ekki
í neinum smáskömmtum. Og enn
þykknar plottið þegar í ljós kemur
að upptökin að öllu saman liggja
austur á Eyrarbakka á sjöunda
áratugnum.
Sverri tekst vel að halda utan um
alla þessa þræði og þrátt fyrir æsi-
leg atvik eins og byssubardaga og
tilraun til launmorðs er sagan trú-
verðug og speglar vel þann veru-
leika sem við búum við á Íslandi
í dag. Frásögnin höktir nokkuð
framan af en nær sér á strik og
verður þrælspennandi í seinni hlut-
anum.
Persónurnar eru misvel útfærð-
ar en Brynjar er sannfærandi
persóna og sömuleiðis Hildur dótt-
ir hans, sjö ára stúlka sem hann
hefur hjá sér aðra hverja viku.
Olgeir er kannski einum of týp-
ískur íslenskur athafnamaður úr
bókmenntunum til að virka sann-
færandi og Edda, konan sem Brynj-
ar lendir í sambandi við, aðeins of
nákvæmlega teiknuð eftir forskrift
tálkvendisins úr amerískum noir-
bókmenntum og kvikmyndum, en
samt sem áður hafa bæði þau og
aðrar persónur sögunnar nógu
mikið af kunnuglegum mannlegum
dráttum til að lesandi sætti sig við
þau sem sannferðugar persónur.
Sverrir er enginn stílsnilling-
ur og reynir heldur ekki að vera
það. Hér er ekki mikið um tilþrif
í máli og stíl en frásögnin rennur
vel og samtöl eru betur skrifuð en
í flestum íslenskum glæpasögum.
Heilt yfir er þetta ágætlega lukkuð
spennusaga og fín aldarfarslýsing.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Ágætlega lukkuð
spennusaga úr íslenskum samtíma.
Höfundur heldur vel utan um alla
þræði og lausnir gátanna koma
skemmtilega á óvart.
Alþjóðlegur bófahasar í Reykjavík
SVERRIR
BERG “Sverri
tekst vel að
halda utan
um alla
þessa þræði
og þrátt
fyrir æsileg
atvik eins og
byssubardaga
og tilraun til
launmorðs
er sagan
trúverðug
og speglar
vel þann
veruleika sem
við búum við
á Íslandi í
dag,” segir í
dómnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Fæst án lyfseðils
Verkjastillandi
bólgueyðandi
Veldur síður
lyfjaáhrifum um
allan líkamann eins
og þegar töflur eru
teknar inn
Íslenzk silfursmíð
Safnbúð Þjóðminjasafnsins
Komið er út ritið Íslenzk silfursmíð eftir Þór Magnús-
son, sem fjallar um íslenska silfursmiði og verk þeirra,
allt frá miðöldum til tuttugustu aldar. Ritið er í tveimur
bindum og fylgir gullsmiðatal, þar sem taldir eru gull-
og silfursmiðir fæddir á Íslandi fram til ársins 1950.
Fæst í safnbúð Þjóðminjasafnsins. Verð 18.900 kr.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
afslátturí tilefni útskrifta
20% skemmtir á Kringlukránni
á föstudag og laugardag.
Föstudaginn 17.05
„Þó líði ár og öld“
Gestasöngvari.
Hlynur Guðmundsson,
hann flytur lög
Björgvins Halldórssonar
Laugardaginn 18.05
„Eurovisjon stemming“
Gestasöngvari.
Labbi í Mánum mætir og
tekur gömul góð Rokklög
Save the Children á Íslandi