Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 55
FÖSTUDAGUR 17. maí 2013 | MENNING | 35 Kelly Rowland, sem var í hljómsveitinni Destiny‘s Child ásamt Beyoncé, syngur um samband sitt við stórstjörnuna í laginu Dirty Laundry af næstu plötu Rowland, Talk a Good Game. Meginþema textans við Dirty Laundry er gremja Rowland vegna þess hvernig ferill söngkonunnar hefur þróast í samanburði við Beyoncé, sem er ein vinsæl- asta söngkona heims. Rowland segist oft og tíðum bitur og jafnvel reið út í Beyoncé og kunna því illa að vera í skugga söngkonunnar. Ekki minni athygli hefur sá kafli lagsins hlotið sem fjallar um fyrrverandi unnusta Rowland sem beitti hana ofbeldi. Meðal þess sem kær- astinn fyrrverandi sagði við söngkonuna, eftir að hafa brotið rúðu, var að enginn elskaði hana nema hann, hvorugt foreldra Rowland og sér í lagi ekki Beyoncé. Rowland er bitur út í Beyoncé Syngur um samband sitt og stórstjörnunnar í nýjasta smáskífulaginu sínu. DESTINY‘S CHILD Beyoncé (lengst til vinstri) og Kelly Row- land (lengst til hægri) hafa átt nokkuð ólíku gengi að fagna síðan hljómsveitin vinsælda lagði upp laupana. Ryan Seacrest, kynnirinn í American Idol, er leiður yfir því að Randy Jackson ætli að hætta sem dóm- ari í sjónvarpsþáttunum. Jackson tilkynnti fyrr í mánuðinum að hann yrði ekki á meðal dóm- ara í næstu þáttaröð. „Mér fannst leiðinlegt að heyra að vinur minn Randy væri að hætta,“ sagði Seacrest við E! News. „Frá mínum bæjardyrum séð þá standa dyrnar þér alltaf opnar viljir þú koma aftur heim, Randy.“ Annar dómari, kántrísöngvarinn Keith Urban, vill aftur á móti halda áfram í næstu þáttaröð. Leiðinlegt að missa Randy Leikkonan Scarlett Johansson ætlar að leikstýra sinni fyrstu mynd. Hún nefnist Summer Crossing og er byggð á fyrstu skáldsögu Trumans Capote. Tilkynnt var um gerð myndar- innar á Cannes-hátíðinni í Frakk- landi. Hún gerist sumarið 1945 og fjallar um sautján ára stúlku sem ákveður að fara ekki í frí með foreldrum sínum til Parísar. Í staðinn vill hún eyða sumr- inu með kærasta sínum sem er gyðingur og vinnur við að leggja bílum í stæði. „Að geta fært þessa sögu yfir á hvíta tjaldið í minni fyrstu mynd sem leikstjóri er algjör draumur fyrir mig og mikil forréttindi,“ sagði Johans- son. Leikstýrir sinni fyrstu mynd SCARLETT JOHANSSON Leikkonan ætlar að leikstýra sinni fyrstu mynd. Fyrrverandi barnastjarnan Macaulay Culkin, sem nú er 32 ára, reykir þrjá pakka af sígar- ettum á dag og vinir og velunn- arar óttast um heilsu hans, ef marka má breska dagblaðið National Enquirer. Getgátur voru uppi um að Culkin, sem flestir muna eftir úr Home Alone-myndunum, væri djúpt sokkinn í neyslu heróíns og ljósmyndir af leikaranum renndu stoðum undir þær. Nú segja heimildarmenn National Enquire hins vegar að Culkin hafi skipt heróíninu út fyrir tóbak. Þá heyrast einnig raddir þess efnis að Culkin búi þessa dagana með eiturlyfjafíklinum Pete Doherty, söngvara Babyshambles, í París. Reykir þrjá pakka á dag MACAULAY CULKIN Vinir og vel- unnarar óttast um hann. Hugsanlega er leikarinn Seth Green þeirra á meðal. RYAN SEACREST Kynninum þykir leiðinlegt að sjá á bak Randy Jackson. Opnunartímar: Föstudagur 11-19 Laugardagur 10-16 Mánudagur 10-16 (annar í Hvítasunnu) Virkir dagar 11-19 (meðan birgðir endast) NÝTT kortatímabil HEILDSÖLU lager hreinsun Fatnaður á alla fjölskylduna Vönduð og góð merkjavara á mögnuðum afslætti: Jakkaföt frá 4.000 kr. Peysur frá 1.500 kr. Sokkar frá 100 kr. Gallabuxur frá 3.000 kr. Herraskyrtur frá 1.990 kr. Ýmiss konar barnafatnaður frá 499 kr. Dömu- og herrabolir frá 990 kr. Lagerhreinsunin fer fram að Höfðabakka 9, fyrir aftan þetta þekkta hús á höfðanum. Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.