Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 30
FRÉTTABLAÐIÐ Hönnun og hugmyndir. Chloé Ophelia. Heilsa og hamingja. Jói Fel grillar. Helgarmaturinn og spjörunum úr... 4 • LÍFIÐ 17. MAÍ 2013 Starf? Hönnuður og eigandi madebySHE ehf. Lá það alltaf fyrir að fara í tískubransann? Nei, alls ekki. Ég hafði mestan áhuga á stærðfræði og raun- greinum almennt í skóla og fór þess vegna í verk- fræðinám í Háskóla Íslands eftir menntaskóla og út- skrifaðist með B.Sc. í byggingaverkfræði árið 2004. Vann síðan á verkfræðistofu í nokkur ár þar til ég tók algjöra U-beygju og stofnaði madebySHE. Hvernig gengur að vera fatahönnuður og reka verslun á sama tíma? Þetta getur verið púslu- spil, ég myndi í rauninni vilja hafa meiri tíma til að hanna og skapa. Þetta hefur samt gengið ágætlega þar sem ég er ekki með opið alla daga í versluninni held- ur þrjá daga vikunnar og er síðan með netverslun (www.madebySHE.is) sem er opin allan sólarhringinn. Þann- ig næ ég að nýta hluta vikunnar í hönnunina og eins fyrir allt hitt sem tengist rekstrinum og ekki næst að gera þegar verslun- in er opin. En mér hefur fund- ist mikilvægt að vera sjálf til staðar í versluninni og vera þannig í kringum kúnnana mína. Hvernig gengur að samtvinna fer- ilinn og móðurhlutverkið? Það gengur oftast ágætlega en ekki alltaf. Það koma auðvitað tarnir þar sem vinnudagurinn er langur en ég hef reynt að skipuleggja mig vel og tek oft pásu seinnipartinn til að vera með stráknum mínum og held þá frekar áfram á kvöld- in eftir að hann er sofnaður. En ég hef verið gjörn á að vinna fram eftir á nóttunni en er að reyna að taka mig að- eins á í því og eitt af markmiðum mínum fyrir 2013 var m.a. að fara fyrr að sofa og það er að takast ágætlega. Áttu þér draumaverkefni? Að vera besta mamma og eigin- kona í heimi! Það væri líka gaman að hanna kjól á söng- konuna Adele. Hvert er aðaltískuíkonið? Audrey Hepburn! Hvaða strauma munum við sjá í sumar í línunni þinni? Ég elska hvað það er mikið af fallegum litum í gangi og mikið um mynstraðar flíkur ásamt röndóttu og doppóttu – litríkt og skemmtilegt sumar fram undan! Hvert sækirðu innblástur áður en þú sest við teikniborð- ið eða hvernig verða hugmyndirnar til? Ég fæ innblástur úti um allt, t.d. frá gömlum ljósmyndum, kvikmyndum, leikhús- um og bara umhverfinu allt í kring. Hvaða litir og snið eru í uppáhaldi hjá þér núna? Grænn, blár, bleikur og appelsínugulur eru svona þeir litir sem eru mest uppáhalds hjá mér þessa stundina. Annars klæðist ég sjálf litríkum, klæðilegum og fallegum flíkum sem eru umfram allt þægilegar og það er það sem ég legg mest upp úr við hönnunina mína hjá madebySHE. Hvað dreymir þig um að fá í fataskápinn fyrir sum- arið? Mér finnst ég aldrei eiga nógu marga jakka og skó, en svo vantar mig regnkápu, sólgleraugu, lopapeysu, gúmmítúttur og strigaskó. Hvað gerirðu þegar þú ert ekki að vinna? Þegar maður er með eigin rekstur þá getur verið erfitt að stimpla sig úr vinnunni en ég er að reyna að vera duglegri að kúpla mig aðeins út. Það geri ég t.d. með því að fara út að hlaupa eða í jóga sem mér finnst æðislegt. Svo elska ég að baka, prjóna, fara á kaffihús, og gleyma mér yfir góðri bók eða tímariti og á sumrin elskum við fjölskyldan að fara í útilegur og ferðast um fallega Ísland. TÍSKA VÆRI GAMAN AÐ HANNA KJÓL Á ADELE Silja Hrund Einarsdóttir, verkfræðingur og fatahönnuður, segir sumarið einkennast af mynstri, doppum, röndum og litagleði. Silja Hrund Einarsdóttir segir oft svolítið erfitt að stimpla sig út úr vinnunni. Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Strigar, ótal stærðir frá kr. 195 Olíu/Acrýl/ Vatnslitasett 12/18/24x12 ml frá kr. 570 Acryllitir 75 ml kr. 499 Vatnslitasett kr. 695 Skissubækur kr. 595 Þekjulitir/ Föndurlitir frá kr. 795 Gólf- og borðtrönur frá kr. 2.100 Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Myndlistavörur í miklu úrvali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.