Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 6
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
BANGLADESS Fellibylur gekk yfir
strandsvæði Bangladess í gær.
Tólf eru látnir og þúsundir húsa
hafa eyðilagst svo um milljón
íbúar strandsvæðanna hafa neyðst
til að flýja.
Í frétt BBC kemur fram að
veðrið náði ekki þeim styrk sem
óttast var, en fellibylurinn geng-
ur undir nafninu Mahasen. Þegar
veðrið skall á náði vindstyrkurinn
um 100 kílómetrum á klukkustund
með mikilli rigningu og flóðum.
Sameinuðu þjóðirnar höfðu
varað við því að yfir átta millj-
ónir manna væru í hættu vegna
veðursins á stórum svæðum í
Bangladess, Búrma og norðaust-
urhluta Indlands.
Samkvæmt upplýsingum frá
yfirvöldum í Bangladess hafði tæp-
lega ein milljón manna verið flutt
frá ströndinni í 3.200 neyðarskýli.
Flugvöllum í Chittagong, einni
stærstu borg landsins, og í ferða-
mannahéraðinu Cox Bazar var
lokað. Skólar og hótel hafa verið
gerð að neyðarskýlum og voru
troðin af fólki á meðan stormur-
inn lét sem verst. Hann var talinn
ganga niður að mestu í nótt. - shá
Tólf hafa látið lífið í fellibylnum Mahasen í Bangladess:
Milljón manna flutt á brott
EYÐILEGGING Fellibylurinn eyðilagði heimili þúsunda þegar hann gekk á land.
NORDICPHOTOS/AFP
IÐNAÐUR Framleiðslugeta álvers-
ins í Straumsvík verður aðeins
aukin í 205 þúsund tonn á ári, en
ekki 230 eins og fyrirhugað hafði
ver ið. Þ et ta
þýðir að fyrir-
tækið hefur
ekki not fyrir
nema rúm 28 af
þeim 75 mega-
vöttum sem það
hafði samið við
Landsvirkjun
um.
L í k t o g
Fréttablaðið
greindi frá í gær hafa tæknilegir
örðugleikar sett strik í reikning-
inn. Ætlunin var að auka straum-
inn sem notaður er og framleiðsl-
una þannig með. Í tilkynningu frá
fyrirtækinu, sem barst í gær, segir
að ekki hafi verið talið fýsilegt að
verja meiri fjármunum en þegar
hefur verið gert til að ná fram
framleiðsluaukningunni.
Ólafur Teitur Guðnason, upp-
lýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á
Íslandi, segir að fyrirtækið sé með
samning við Landsvirkjun um 75
viðbótarmegavött.
„Sá samningur er til 2036 og
hann er enn þá í gildi. Núna þurf-
um við bara að setjast niður með
Landsvirkjun og fara aðeins yfir
hvað þetta þýðir og hvernig við
leysum úr þessari stöðu sem er
komin upp. En samningurinn gildir
enn.“
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, sagði í Frétta-
blaðinu í gær að ljóst væri að
seinkun yrði á verkefninu, en vís-
aði að öðru leyti á forsvarsmenn
álversins. Ekki náðist í hann í gær.
Kostnaður við framleiðsluaukn-
inguna var áætlaður um 57 millj-
arðar og í tilkynningu fyrirtækis-
ins segir að hann verði vart undir
því. Nú þegar hafi yfir 50 milljörð-
um verið varið í verkefnið, sem og
breytingar á framleiðsluafurðum
og það að auka rekstraröryggi. Þá
hafi verkefnið skapað yfir 600 árs-
verk, eins og áætlað var.
„Ákvörðun þessi hefur ekki
áhrif á aðra meginþætti fjárfest-
ingarverkefnisins í Straumsvík,
það er að skipta að fullu yfir í
framleiðslu á stöngum í stað barra
og að auka afkastagetu lofthreinsi-
virkja. Rétt er að leggja áherslu á
að í dag vinna um 150 manns að
þeim verkefnum sem haldið verð-
ur áfram með.“ kolbeinn@frettabladid.is
Helmingi minni
aukning hjá ÍSAL
Álverið í Straumsvík þarf ekki nema hluta orkunnar sem samið var um við Lands-
virkjun. Framleiðslugeta fyrirtækisins verður aðeins aukin um innan við helming
þess sem áætlað var. Fyrirtækið mun reyna að leysa málið með Landsvirkjun.
STRAUMSVÍK Framleiðsla álversins verður aukin um átta prósent í stað þeirra tutt-
ugu sem stefnt hafði verið að. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÓLAFUR TEITUR
GUÐNASON
Tæp 47 megavött standa út af miðað við samning við Landsvirkjun, þegar
orkuþörf álversins í Straumsvík hefur verið uppfyllt. Náist samningar á
milli Landsvirkjunar og Rio Tinto Alcan um að síðarnefnda fyrirtækið losni
undan kaupum á orku sem það þarf ekki er hægt að nýta hana í annað.
Búðarhálsvirkjun verður tekin í gagnið fyrir áramót, en framleiðslugeta
hennar er 95 MW. Hún var meðal annars reist til að mæta þörfinni í
Straumsvík, en eftir breyttar áætlanir eru þar eftir 67 MW sem gætu fyllt
betur út í orkumyndina í Helguvík.
Fer orkan til Helguvíkur?
1. Hvað heitir hetjan sem bjargaði
mannslífi þegar báturinn Krummi brann
við Arnarstapa?
2. Hvaða sjónvarpskona þykir einstak-
lega ötul og með þeim skemmtilegri á
Twitter?
3. Hvaða myndlistarmaður gerir hrotur
Jóns Gnarr að viðfangsefni sínu í nýju
verki?
SVÖR
1.Þorleifur Reynisson 2. Margrét Erla
Maack 3. Finnbogi Pétursson
VEISTU SVARIÐ?
JAPAN Borgarstjóri japönsku borgarinnar
Osaka, hinn þjóðernissinnaði formaður
Japanska umbótaflokksins Toru Hashi-
moto, segist standa við þá skoðun sína
að nauðsynlegt hafi verið fyrir hermenn
landsins að halda þúsundum kvenna í
kynlífsánauð í síðari heimsstyrjöld. Slíkt
hafi verið nauðsynlegt til að viðhalda aga
og veita þeim slökun. Hann segir að hins
vegar hefði hann átt að taka tillit til þess
hvernig skoðunum hans yrði tekið á alþjóð-
legum vettvangi.
Fórnarlömb kynferðisglæpa japanskra
hermanna voru aðallega frá Kóreu og Kína
og er talið að ekki færri en 200.000 konum
hafi verið haldið nauðugum sem kynlífs-
þrælum. Þarlend stjórnvöld hafa fordæmt
yfirlýsingar Hashimotos en hann segir á
móti að kynlífsþrælkun hafi verið viðtekin
venja herja í síðari heimsstyrjöld og ósann-
gjarnt að heimfæra kerfisbundna kynferð-
isglæpi eingöngu upp á japanska herinn.
Upphaf deilunnar á rætur að rekja til
þess að Hashimoto gaf það í skyn við for-
ingja bandaríska hersins í Japan, sem í eru
um 50.000 hermenn, að þeir ættu að nýta
sér þjónustu vændiskvenna í meiri mæli.
Það taldi hann að myndi fækka afbrotum
bandarískra hermanna í landinu, sem hafa
verið tilefni andúðar eyjarskeggja. - shá
Borgarstjóri í Japan harðlega gagnrýndur fyrir réttlætingu kynlífsþrælkunar í síðari heimsstyrjöld:
Sagði nauðgunarbúðir hafa verið nauðsyn
MÓTMÆLI Kóresk kona, sem hneppt var í kynlífsánauð í
stríðinu, mótmælir orðum borgarstjórans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP