Fréttablaðið - 17.05.2013, Síða 8
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Jú, ég
geri það
auðvitað. En
ég veit auð-
vitað ekkert
á þessari
stundu hvernig ráð-
herraskipting verður.
Einar K. Guðfinnsson, oddviti í
Norðvesturkjördæmi
STJÓRNMÁL Þingflokkur Bjartrar
framtíðar ákvað á mánudag að
ráða Heiðu Kristínu Helgadóttur,
annan tveggja formanna flokks-
ins, sem framkvæmdastjóra þing-
flokksins. Þessi ákvörðun var svo
staðfest á stjórnarfundi Bjartrar
framtíðar daginn eftir.
Heiða Kristín skipaði annað
sætið á lista Bjartrar framtíðar
í Reykjavíkurkjördæmi norður í
nýafstöðnum þingkosningum en
náði ekki kjöri.
Hún segist áfram munu starfa
sem annar tveggja formanna
flokksins og taka virk-
an þátt í stefnumótunar-
vinnu. Hins vegar hafi
hún ákveðið að taka þetta
starf að sér til að geta
unnið náið með þing-
flokknum þrátt fyrir
að eiga ekki sæti á
þingi.
„Gott utan-
umhald
skiptir
máli og
er vanmetið í pólitík,“ segir Heiða,
sem segist hafa miklar skoðanir
á því hvernig innra starf flokks-
ins eigi að vera. „Við erum búin
að byggja upp net allt í kringum
landið og viljum ekki glutra því
niður.“
Heiða verður áfram fram-
kvæmdastjóri Besta flokksins
í borginni, að minnsta kosti
fyrst um sinn, og gegnir
því í raun þremur störf-
um í einu.
- sh
Annar formaður Bjartrar framtíðar verður líka tvöfaldur framkvæmdastjóri:
Heiða ráðin til þingflokksins
AÐALFUNDUR
KATTAVINAFÉLAGS ÍSLANDS 2013
haldinn í Kattholti þriðjudaginn 28. maí kl.20.00
Fundarefni:
1. Kosning fundarstjóra
2. Kosning ritara
3. Skýrsla stjórnar fyrir árið 2012
4. Ársreikningar félagsins 2012
5. Ársreikningar Nórusjóðs 2012
6. Val á löggiltum endurskoðanda
7. Kosning stjórnar
9. Kosning formanns
10. Önnur mál
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn
og gefa kost á sér til starfa fyrir félagið.
STJÓRNMÁL Ráðherrar í ríkis-
stjórn Íslands eru átta og verði
þeim ekki fjölgað þeim mun
meira er ljóst að ekki verða allir
oddvitar framboðslista stjórnar-
flokkanna ráðherrar. Fréttablaðið
hringdi í þá alla en sleppti þó for-
mönnunum þar sem ólíklegt verð-
ur að teljast að þeir myndi ríkis-
stjórn án eigin þátttöku.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að ráðherrum verði fjölg-
að um að minnsta kosti einn, ef
ekki tvo. Hvort sem verður munu
ekki allir oddvitarnir komast í
ráðherrastóla.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst
því yfir að hann muni hafa jafnt
kynjahlutfall ráðherra. Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, hefur
ekki gefið út álíka yfirlýsingu.
Lög flokksins eru þó býsna skýr:
„Við skipan í trúnaðar- og
ábyrgðarstöður innan flokksins
sem og við val á framboðslista
hans skal hlutur hvors kyns ekki
vera lægri en 40% nema þegar
gagnsæjar og augljósar ástæður
eru því til fyrirstöðu. Jafnréttis-
nefnd og LFK skulu eftir þörfum
vera til ráðgjafar um að ná mark-
miði þessu fram.“
Lög Sjálfstæðisflokksins herma
að annar varaformaður geti ekki
gegnt ráðherraembætti. Kristján
Þór Júlíusson, oddviti flokksins í
Norðausturkjördæmi, gegnir því
embætti og ætti því ekki að koma
til greina sem ráðherra. Nokkrir
heimildarmenn hafa þó nefnt það
við Fréttablaðið að mögulegt sé
að hann hætti sem annar vara-
formaður, en hann var kosinn til
þess embættis í febrúar.
Kristján Þór gefur lítið fyrir
slíkar sögusagnir. „Menn eru
alltaf að velta öllu fyrir sér,“
segir hann og vill ekki útiloka
ráðherraembætti.
kolbeinn@frettabladid.is
Góð aðsókn að ríkisstjórn
Oddvitar verðandi stjórnarflokka eru að máta sig í ráðherrastóla. Enginn þeirra vill útiloka setu á ráðherrastóli,
ekki einu sinni annar varaformaður Sjálfstæðisflokks sem má þó ekki gegna embætti ráðherra.
Já, ég er
tilbúin að
axla þá
ábyrgð.
Eygló Harðardóttir, oddviti í Suð-
vesturkjördæmi
Ég get ekki
kommentað
á þetta
núna.
Frosti Sigurjónsson, oddviti í
Reykjavík norður
Já, já,
ég held að
það hljóti
nú allir að
sækjast eftir
því, en það
er ýmislegt annað
sem þarf að vinna og
maður tekur því sem
að höndum ber.
Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti í
Norðvesturkjördæmi
Já, að
sjálfsögðu.
Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, oddviti í
Reykjavík suður og
varaformaður
Ég er
tilbúinn til
að taka að
mér öll þau
störf sem
formað-
urinn og flokkurinn
treysta mér til.
Illugi Gunnarsson, oddviti
flokksins í Reykjavík norður
Ég
kommenta
ekkert á
þetta fyrr
en við erum
komin með
þetta í saumana.
Klárum þetta og
sjáum hvernig þetta
lítur út.
Kristján Þór Júlíusson, oddviti í
Norðausturkjördæmi og annar
varaformaður
Gera
það ekki
allir sem
taka þátt
í stjórn-
málum?
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
oddviti í Suðurkjördæmi
Maður
er nátt-
úrulega í
pólitík til að
hafa áhrif,
þannig
að það er eðlilegt að
þeir sem eru í pólitík
sækist eftir því ef
krafta þeirra er óskað
í slík störf.
Sigurður Ingi Jóhannsson, oddviti
í Suðurkjördæmi og varaformaður
Ég er í
pólitík til að
hafa áhrif,
það er mitt
svar, til að
bæta okkar
góða samfélag.
Vigdís Hauksdóttir, oddviti í
Reykjavík suður
SAMFÉLAGSMÁL „Það sem stendur upp úr er gleði og
þakklæti,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf.
Samtökin fengu afhent Mannréttindaverðlaun
Reykjavíkurborgar í gær við hátíðlega athöfn í Höfða
á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar.
„Það er frábær tilfinning að upplifa að borgaryfir-
völd horfi á þennan málaflokk og standi við bakið á
þeim grundvallarmannréttindum sem eru að búa við
öruggt heimili,“ segir Sigþrúður.
Samtök um kvennaathvarf voru stofnuð árið 1982,
og hafa því verið starfrækt í rúm 30 ár. Í upphafi
voru úrtöluraddir sem sögðu ekki vera þörf á slíkri
þjónustu hérlendis, annað kom þó á daginn og hafa
þrjú þúsund og fjögur hundruð konur dvalið í Kvenna-
athvarfinu, margar þeirra með börn.
„Þetta er löng saga og það eru margir sem hafa
komið að þessu með okkur og það eru ekki síst kon-
urnar sjálfar sem hafa kennt okkur hvernig reka á
kvennaathvarf. Þær eru það mikilvægasta í þessu öllu
saman,“ segir Sigþrúður.
Mannréttindaverðlaunin eru veitt árlega einstak-
lingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa
staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa. - mlþ
Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar veitt við hátíðlega athöfn í Höfða:
Kvennaathvarfið verðlaunað
VEITING VERÐLAUNANNA Elsa Yeoman, forseti borgar-
stjórnar, ásamt Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru
Kvennaathvarfsins, sem tók við verðlaununum.
SVEITARSTJÓRNIR Ekkert verður
af því að laxa-, urriða- og silunga-
seiðum verði sleppt í Kópavogs-
læk og Kópavogstjörn eins og
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks, lagði til.
Þegar málið kom til endan-
legrar afgreiðslu bæjarstjórnar
lagði einn stuðningsmannanna,
Ólafur Þór Gunnarsson úr VG,
til að bætt yrði við ákvæði um
að sérstaklega yrði horft til þess
að Kópavogur sé friðaður og til
nýrra náttúruverndarlaga. Það
dugði ekki til og tillagan féll með
þremur atkvæðum gegn fimm.
- gar
Kópavogslækur óbreyttur:
Engin laxaseiði
í bæjarlækinn
VIÐ KÓPAVOGSLÆK Hornsílin halda
lendum sínum óskiptum.
ÚTGÁFA Símaskráin 2013 verður
tileinkuð sjálfboðaliðum Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Þá styrkir fyrirtækið Já félagið
um eina milljón króna sem skipt
er samkvæmt óskum þakklátra
sögumanna í Símaskránni.
Meðal frásagna sem fram
koma í skránni er ein frá Hjálm-
ari Friðbergssyni, sem segir frá
því hvernig björgunarsveitirnar
björguðu honum og fermingar-
veislunni hans úr hremmingum á
Steingrímsfjarðarheiði. - sv
Já heiðrar Landsbjörgu:
Sjálfboðaliðar í
Símaskránni
VIÐSKIPTI Ólafur Magnús Magn-
ússon er hættur í stjórn DV en
hann hefur verið stjórnarformað-
ur félagsins. Þá hafa Lilja Skafta-
dóttir Hjartar og Eiríkur Gríms-
son einnig hætt í stjórninni.
Viðskiptablaðið greindi frá.
Þorsteinn Guðnason er nýr
stjórnarformaður DV en auk
hans skipa stjórnina nú Elín Guð-
rún Ragnarsdóttir, Guðmundur
Jón Sigurðsson, Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir og Reynir
Traustason. - mþl
Mannabreytingar í stjórn:
Stjórnarmenn
hjá DV hætta
Sækist þú eft ir því að verða ráðherra?
ÖRYGGISMÁL
Bátur dreginn í land
Björgunarskip Landsbjargar, Gunnar
Friðriksson á Ísafirði, var kallað út í
gær vegna báts sem varð vélarvana við
mynni Ísafjarðardjúps. Um var að ræða
lítinn plastbát með einn mann um
borð. Tók það björgunarskipið rúma
klukkustund að komast á staðinn en
þá hafði nærstaddur bátur dregið þann
bilaða frá landi. Björgunarskipið dró
bátinn til hafnar í Bolungarvík.