Fréttablaðið - 17.05.2013, Síða 22
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær afi okkar, tengdaafi og langafi,
BRYNJÓLFUR KARLSSON
fyrrverandi slökkviliðsmaður,
Ásholti 2, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum Fossvogi
6. maí verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 22. maí kl. 13.00. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Kristjáns
Eldjárns gítarleikara 0513-18-430830 kt. 650303-3180
eða aðra styrktarsjóði eða líknarfélög.
Brynjólfur Hjartarson Edda Björk Viðarsdóttir
Benedikt Hjartarson Jóhanna María Vilhelmsdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og besti vinur okkar,
ELÍAS EGILL GUÐMUNDSSON
fyrrv. flugvélstjóri og forstjóri Steinprýði
lést á Landspítalanum 13. maí sl. Útför hans
fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
23. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Guðný Sigurðardóttir
Guðlaugur Ágúst Elíasson Guðrún Júlíusdóttir
Kristján Elíasson Sesselía Jónsdóttir
Erla Elíasdóttir Gunnar Hjálmarsson
Elías Egill Elíasson Cynthia Nkeiru Elíasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
fyrrverandi eiginkona, systir og mágkona,
EIRÍKSÍNA KRISTBJÖRG
ÁSGRÍMSDÓTTIR (EIA)
frá Siglufirði andaðist 13. maí á sjúkrahúsi
í Frakklandi. Útför fer fram laugardaginn
18. maí í heimabæ hennar St.-Michel-en-l’Herm.
Minningarathöfn á Íslandi verður auglýst síðar.
Eric Ásgrímur Mancini Carla Silveira Mancini
Bastien Héðinn Mancini Laura-Kate Wilson Mancini
Shelma, Kayba og Eleanor Eia
Ange Mancini
María Ásgrímsdóttir Kristinn Finnsson
Halldóra Ásgrímsdóttir Karl-Erik Rocksén
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HARALDAR HRAFNKELS
EINARSSONAR
rennismiðs.
Guð blessi ykkur.
Margrét J. Magnúsdóttir
Kristín J. Pétursdóttir Magnús R. Bjarnason
Helgi Haraldsson Greta Benjamínsdóttir
Hrafnhildur Haraldsdóttir Elvar Ö. Elefsen
Dröfn Haraldsdóttir
Helga B. Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um ástkæra eiginkonu,
móður, tengdamóður, dóttur og systur,
ÖNNU KRISTÍNU ÓLAFSDÓTTUR
fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 22. maí kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörgu.
Hjörleifur B. Kvaran
Lísa Margrét Sigurðardóttir Kristján H. Johannessen
Eysteinn Sigurðarson Katrín Eyjólfsdóttir
Bjarki Sigurðarson
Hjördís Isabella Kvaran
Ólafur Grétar Guðmundsson Steinunn Aagot Kristjánsdóttir
Ingvi Steinar Ólafsson Sigrún Guðný Markúsdóttir
Atli Ragnar Ólafsson Sólveig Jónsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
KRISTJÖNU SIGRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
Breiðumörk 15, Hveragerði.
Arnheiður I. Svavarsdóttir Einar Sigurðsson
Anna María Svavarsdóttir Wolfgang Roling
Hannes Arnar Svavarsson Guðbjörg Þóra Davíðsdóttir
Árni Svavarsson Svandís Birkisdóttir
Guðrún Hrönn Svavarsdóttir
Svava Sigríður Svavarsdóttir Erlendur Arnar Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
SIGRÍÐUR ÞÓRA GÍSLADÓTTIR
Grandavegi 11, 107 Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Grund þriðjudaginn
14. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Joseph G. Adessa
og aðrir vandamenn
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HALLFRÍÐUR MAACK
Hraunbæ 61,
lést miðvikudaginn 15. maí síðastliðinn á
gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi.
Sverrir Sveinsson
Ingibjörg Sverrisdóttir Sölvi Ólafsson
Anna Svava Sverrisdóttir Úlfar Örn Valdimarsson
María Vigdís Sverrisdóttir Ragnar Auðunn Birgisson
Skúli Sverrisson
barnabörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
JÓHANNES G. JÓHANNESSON
Nönnugötu 6,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 14. maí.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Petrína Kristín Steindórsdóttir
Bókaforlagið Salka hefur gefið út fjórar
nýjar bækur eftir Björn G. Björnsson
leikmyndahönnuð undir yfirskriftinni
Íslenskur menningararfur. Í þeim er
farið í máli en aðallega myndum yfir
ýmsar menningar minjar á Íslandi.
Bækurnar nefnast Torfkirkjur á
Íslandi, Átta steinhús 18. aldar, Hús
skáldanna og Stóru torfbæirnir.
Auk þess að semja textann tekur
Björn myndirnar og hannar útlit
bókanna.
„Þetta eru litlar og nettar bækur,“
segir hann, „ég lagði áherslu á það að
hafa þetta snoturt og handhægt. Ég
einbeiti mér fyrst og fremst að hinum
sjónræna menningararfi, það er að
segja húsum, minjum, mannvirkjum
og svo framvegis.“
Björn hefur unnið við að hanna söfn
og sýningar undanfarin tuttugu ár en
þar á undan vann hann við sjónvarps-
og heimildarmyndagerð.
„Ég hafði því kynnst flestum þessum
stöðum í gegnum tíðina og átti orðið
dágott safn af myndum, sem mig var
farið að langa til að gera eitthvað
meira úr. Í fyrrasumar bar ég þessa
hugmynd undir þau hjá Sölku. Þeim
leist vel á. Það sem eftir lifði af sumri
og fram á haust flakkaði ég um landið
og tók fleiri myndir og vann svo bæk-
urnar í vetur.“
Björn segir efni fyrstu bókanna hafa
legið nokkuð beint við.
„Ég átti mesta myndefnið í þessum
efnisflokkum og vildi endilega byrja á
torfbæjunum og torfkirkjunum.“
Bækurnar koma út á íslensku og á
ensku en Birni finnst menningin hafa
orðið útundan í landkynningu.
„Landkynningin gengur fyrst og
fremst út á náttúruna. Það er auðvitað
gott og blessað að kynna náttúruna en
menningin er mikils virði líka; hún
er það sem mannfólkið hefur verið að
skapa hér undanfarin þúsund ár. Það
var í rauninni hugsunin; að bæta úr
þessari þörf og gera bækur fyrir ferða-
menn svo þeir geti kynnst menningar-
arfinum.“
Björn býst fastlega við að gefa út
fleiri bækur í ritröðinni.
„Ég er svo til tilbúinn með efni í
þrjár til fjórar bækur í viðbót og ætla
að nota sumarið til að viða að mér
enn meira efni. Ég hef hugsað mér að
skipta þessu aðeins milli landsbyggð-
arinnar og höfuðborgarsvæðisins.
Mig langar að gera bók um kirkjur í
Reykjavík; það eru á þriðja tug kirkna
í Reykjavík með um 230 ára sögu. Saga
þeirra er auðvitað stílsaga í leiðinni því
kirkjur eru dæmigerðar fyrir strauma
og stefnur í byggingarlist á hverjum
tíma. Ég myndi líka vilja gera bók um
um stóru byggðasöfnin úti á landi og
svo eru ýmsir sögustaðir sem leita á
mig líka.“ bergsteinn@frettabladid.is
Vill auka hlut menn-
ingar í landkynningu
Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður sendi frá sér á dögunum fj órar bækur í nýrri
ritröð um íslenskan menningararf. Hann segir menninguna hafa verið látna sitja á haka-
num við landkynningu Íslands og vildi bæta úr því.
BJÖRN G. BJÖRNSSON Er svo til tilbúinn með efni í þrjár til fjórar bækur í viðbót og ætlar að
nota sumarið til að viða að sér enn meira efni. MYND/JÓHANNES LONG.
ÚR TORFKIRKJUM Á ÍSLANDI Björn kveðst
vera nærri tilbúin með efni í þrjár til fjórar
bækur í viðbót, þar á meðal bók um kirkjur í
Reykjavík. MYND/ BJÖRN G. BJÖRNSSON