Fréttablaðið - 17.05.2013, Page 24
FÓLK|HÖNNUN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Verndarbaugur Elínar Brítu er skartgripur sem
gerður er til að standast tímans tönn. Hann
er unninn úr silfri, þorskroði, áli, steini og tré,
náttúrulegum efnum með langan líftíma.
„Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir trú á litlu
hlutina, steinvölu, lítinn leirhlut eða bómullar-
þráð sem eitt sinn var armband. Þessir hlutir
minna mig á ákveðinn tíma eða augnablik sem
breyttu lífssýn minni á einhvern hátt og ég
hef aldrei getað látið frá mér. Þeir hafa þjónað
tilgangi verndargrips,“ útskýrir Elín Bríta.
Hún segir steinvölurnar sem hún notaði sem
verndargripi í æsku hafa þróast í skartgripi
á táningsárum. „Þeir hjálpa mér með aðstoð
snertiskynsins að halda ró í aðstæðum sem
valda mér streitu. Verndarbaugur er persónu-
leg túlkun á hugtakinu verndargripur og er
rökrétt framhald af sögu minni með þessum
hlutum. Hann er færður í nútímalegan búning
með aðstoð hátækni og tengir þannig fortíð
mína við nútímann.“ ■ heida@365.is
SKART TIL VERNDAR
Skartgripurinn Verndarbaugur er lokaverkefni
Elínar Brítu frá vöruhönnun við LHÍ. Hann er
unninn úr náttúrulegum efnum.
ELÍN BRÍTA Nýútskrif-
aður vöruhönnuður.
MYND/ELÍN BRÍTA
Sýningin Handverk og hönnun hófst á fimmtudaginn í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur fram á
mánudag. Þetta er í níunda skiptið sem
sýningin er haldin en þar sýna tugir ís-
lenskra listamanna handverk, listiðnað
og hönnun. Að sögn Sunnevu Hafsteins-
dóttur, framkvæmdastjóra Handverks og
hönnunar sem skipuleggur sýninguna,
kynnir 41 listamaður verk sín og eru þau
afar fjölbreytt. „Þetta eru bæði þekktir
og minna þekktir listamenn og fjöl-
breytnin er mjög mikil. Hugmyndin með sýningunni er ekki síst
að leyfa gestum að hitta fólkið á bak við hlutina, fá útskýringar
og kynnast verkferlum.“
Meðal fjölbreyttra verka sem sýnd eru má nefna nýjan
sundfatnað, útskorna fugla, skartgripi, fatnað, teppi og leir- og
glermuni.
Í fyrsta sinn er nokkrum þátttakendum boðið að sýna
ókeypis á sýningunni. „Hugmyndin var að bjóða einstaklingum
sem aldrei höfðu tekið þátt í þessari sýningu að vera með og
við fengum styrk frá Reykjavíkurborg til þess. Einnig verður
Myndlistaskólinn í Reykjavík með kynningu á námi sínu í
mótun, textíl og teikningu. Margir sýningargesta eru eflaust að
íhuga næstu skref og vonandi kveikir kynning skólans áhuga
þeirra á náminu.“
Sýningin er opin milli kl. 10 og 18 fram á mánudag og
ókeypis er inn á hana. „Aðsóknin á þessa sýningu hefur alltaf
verið mjög mikil og margir koma daglega. Ég hvet því áhuga-
sama til að taka daginn snemma ef þeir vilja skoða sýninguna í
ró og næði.“
Nánari upplýsingar má finna á www.handverkoghonnun.is.
FJÖLBREYTT FLÓRA
ÓLÍKRA LISTAVERKA
LISTASÝNING Ráðhús Reykjavíkur verður vettvangur listasýningarinnar
Handverks og hönnunar um helgina. Tugir listamanna sýna verk sín.
MIKIL FJÖLBREYTNI Skartgripir, fatnaður, teppi, sund-
föt og glermunir eru meðal listaverka. MYND/ÚR EINKASAFNI
VERNDAR-
BAUGUR Skartið
er unnið út frá
smáhlutum sem
Elín Bríta notaði
sem verndargripi
í æsku.
VINSÆL SÝNING
Sunneva Hafsteins dóttir
framkvæmdastjóri.
MYND/GVA
Nám sem nýtist þér!
SKRIFSTOFU- OG FJÁRMÁLAGREINANÁM
NÁM FYRIR FULLORÐIÐ FÓLK
Upplýsingar veitir fagstjóri
viðskipta- og fjármálagreina
í síma 594 4000/824 4114.
Netfang inga.karlsdottir@mk.is
Skrifstofubraut I
aðbundið nám, tvær annir.St
Höfuðáhersla er lögð á
viðskipta- og samskipta-
greinar.
Kennslutími
frá kl. 8:20 – 13:00.
Fjarnám, þrjár annir.
Kennt í lotum.
Skrifstofubraut II
Staðbundið nám, kennslutími
frá kl. 8:20 – 13:00.
Fjarnám, þrjár annir.
Kennt í lotum.
60+
Hagnýtt nám fyrir þá sem eru
komnir yfir fimmtugt, vilja
styrkja sig í lífi og starfi eða
taka að sér ný verkefni.
Viðurkenndur bókari
Námið skiptist í þrjá hluta;
A) reikningshald, b) skattskil og
upplýsingakerfi og c) raunhæft
verkefni. Námið er ein önn
og undirbýr nemendur fyrir
próf á vegum atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytisins til
Viðurkennds bókara skv. 43. gr.
laga nr. 145/1994 um bókhald.