Fréttablaðið - 17.05.2013, Qupperneq 50
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 30
„Við tókum okkur saman og héldum
svona kvöld fyrir ári síðan og það
gekk svo vel að við ákváðum að taka
þetta upp núna og gera þetta að föst-
um lið,“ segir Elvar Ingi Helgason,
sem er einn forsprakka svokallaðra
RVK DNB klúbbakvölda sem hefja
göngu sína á skemmtistaðnum Volta
í kvöld.
Elvar segir tómarúm hafa mynd-
ast á markaðinn þegar breakbeat.
is hætti störfum fyrir stuttu en þeir
hafi sinnt þessari tónlistarstefnu
vel. Elvar og félagar hans hafi því
ákveðið að taka við og koma þess-
um kvöldum á fót, en aðstandendur
kvöldanna eru auk Elvars þeir Andri
Már Arnlaugsson, sem heldur utan
um raftónlistarkvöld Extreme Chill,
Ari S. Arnarsson, einnig þekktur sem
DNB-tónlistarmaðurinn Plasmic,
og Agzilla, sem er lifandi goðsögn
í DNB-heiminum á Íslandi að sögn
Elvars. Sjálfur hefur svo Elvar staðið
að RVK Soundsystem reggíkvöld-
unum síðastliðin þrjú ár. „Við höfum
allir verið miklir DNB-aðdáendur um
árabil svo þessi kvöld eru alveg jafn
mikið gerð fyrir okkur og þá sem þau
sækja,“ segir hann.
Á spilunarlista kvöldanna verður
fjölbreytt DNB-tónlist og segir Elvar
Ingi að þar verði að finna góða blöndu
af nýju efni í bland við gamalt. „Á
sama tíma og við kynnum fólk fyrir
því sem er nýjast og heitast í dag þá
viljum við líka leyfa því að heyra
gömlu góðu lögin sem eru kannski í
uppáhaldi hjá þeim,“ segir hann. - trs
„Mig langar rosalega að kíkja á Listahátíð í
Reykjavík um helgina en þar sem ég er með
veikt barn er ég ekki alveg örugg um að ég nái
að fara. Ég held þó í vonina að hann hressist
í tæka tíð eða ég finni einhvern vænlegan til
að sitja yfir honum á meðan ég kíki á þá við-
burði sem mig langar mest á,“ segir leikkonan
Maríanna Clara Lúthersdóttir.
Listahátíð í Reykjavík hefst í dag og segist
Maríanna Clara vera spennt fyrir fjölda atriða á
hátíðinni. Sérstaklega langar hana að sjá opn-
unaratriðið Vessel Orchestra sem verður sýnt
á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn í dag klukkan
17.45. „Ég er viss um að það verður rosalega
flott. Þau Birgisbörn eru öll svo miklir snillingar,“
segir hún.
„Mig langar líka mikið að sjá Sprengd hljóð-
himna vinstra megin/Stuna sem verður sýnt í
Hafnarhúsinu á morgun. Það er endurgerð
á verki sem var sýnt árið 1991 og er eftir
Magnús Pálsson. Svo er ég rosalega spennt
fyrir sýningunni Igor Stravinskí í 100 ár
sem verður sýnt í Eldborg,“ segir Maríanna
en þar taka Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Íslenski dansflokkurinn höndum saman
og flytja tvö af frægustu danstónverkum
Stravinskís, Vorblótið og Petrúsku. - trs
Spennt fyrir fj ölda atriða á Listahátíð
Fundir
19.00 Opinn félagsfundur menningar-
og friðarsamtakanna MFÍK verður hald-
inn í Friðarhúsi. Þórarinn Hjartarson
flytur erindið Vestræn hernaðarstefna
og við. Léttur kvöldverður verður seldur
á kr. 1.500 í upphafi fundar.
Sýningar
13.00 Alfa Malmquist opnar sína fyrstu
myndlistarsýningu í bókakaffi Máls og
menningar, Súfistanum, Laugavegi 18.
18.00 Sýningarnar Huglæg Landakort/
Mannshvörf og Gersemar opnaðar í
Listasafni Íslands.
Hátíðir
17.45 Listahátíð í Reykjavík hefst
með opnunaratriði á Miðbakkanum
við Reykjavíkurhöfn. Nánari upp-
lýsingar um hátíðina má finna á
heimasíðunni artfest.is.
Tónlist
12.00 Auður Guðjohnsen og Lilja Egg-
ertsdóttir flytja fögur ljóð á ýmsum
tungum í Háteigskirkju. Miðaverð er
kr. 1.000.
18.00 Útskriftartónleikar Stefáns Hauks
Gylfasonar verða haldnir í Áskirkju, en
Stefán útskrifast með BMus-gráðu í
gítarleik frá tónlistardeild LHÍ í vor.
22.00 Hljómsveitin Band on Stage
skemmtir á Café Rosenberg.
23.00 Glænýtt klúbbakvöld, RVK DNB,
lítur dagsins ljós á Volta. Þar verður
einblínt á Drum & Bass tónlist og
plötusnúðarnir Agzilla, Plasmic, DJ
Elvar og Andre þeyta skífum.
23.00 Ingvar Grétarsson og Tómas
Tómasson skemmta á Ob-La-Dí Ob-La-
Da, Frakkastíg 8.
Leiðsögn
15.00 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
leiðbeinir gestum Náttúrugripasafns
Seltjarnarness í origami-fuglagerð.
Leiðsögnin er í tengslum við sýn-
inguna Þúsund Origami-trönur og
ein ósk sem sett hefur verið upp í
safninu. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
18.00 Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafni Íslands: Huglæg Landakort/
Mannshvörf og safnsýningin Gersemar.
Landakort/Mannshvörf er hluti af
Listahátíð í Reykjavík. Í sýningunni taka
þátt 40 listamenn frá 15 evrópskum
smáríkjum og svæðum innan Evrópu.
Sýningin Gersemar samanstendur af
málverkum og teikningum frá 19. öld
og fyrri hluta 20. aldar.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
➜ Á spilunarlista
kvöldanna verður fjöl-
breytt DNB-tónlist og
segir Elvar Ingi að þar
verði að finna góða
blöndu af nýju efni í
bland við gamalt.
gerir grillmat að hreinu lostæti!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
57
44
6
Drum & Bass tónlist í fyrirrúmi
Ný klúbbakvöld hefj a göngu sína á skemmtistaðnum Volta í kvöld.
Drum & Bass tónlistar-
stefnan varð fyrst vinsæl
á tíunda áratug síðustu
aldar. Um er að ræða raf-
tónlist með hröðum takti
og þungum bassa. Meðal
frægra DNB-listamanna
má nefna Squarepusher,
Goldie, Calibre og bæði
Rudimental og Chase &
Status sem eru væntan-
legir hingað til lands til
að spila á Keflavík Music
Festival í sumar.
➜ Hvað er
Drum & Bass?
AÐDÁENDUR DNB Þeir Andri, Elvar Ingi, Aggi Agzilla og Ari Plasmic eru miklir
aðdáend ur DNB-tónlistar. MYND/ÓMAR SVERRISSON
Áhugasamir um origami-
gerð geta lagt leið sína í
Náttúrugripasafn Sel-
tjarnarness í dag. Safnið
fagnar 31 árs afmæli sínu
á morgun og í tilefni þess
verða fuglar og flóra í
öndvegi á bókasafninu
í dag. Í tengslum við
það mun Guðrún Þóra
Gunnarsdóttir leiðbeina
gestum í origami-fugla-
gerð í tengslum við sýn-
inguna Þúsund origami-
trönur og ein ósk þar sem
til sýnis eru 1.000 origami-
fuglar sem Guðrún Þóra
föndraði.