Fréttablaðið - 16.08.2013, Page 6
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
ÍSAFJÖRÐUR Oddfellow á Ísafirði,
nánar tiltekið Rebekkustúka númer
6, Þórey, gagnrýnir Ísafjarðarbæ
harðlega fyrir framkvæmdir vegna
breytinga á skólalóð fyrir Grunn-
skólann á Austurvegi. Í bréfi stúku-
manna til Ísafjarðarbæjar koma
fram ítrekuð mótmæli vegna
þrengingar á aðkomu að húsnæði
Oddfellow-reglunnar við Aðal-
stræti og bæjaryfirvöld gagnrýnd
fyrir samráðsleysi.
Svo virðist sem bæjaryfirvöld
hafi aðeins sent einum fulltrúa
Oddfellow-stúknanna tölvupóst
og segir í fundargerð bæjarins
að bæjar yfirvöld hefðu mátt gera
betur í að ná fundi með stúku-
mönnum vegna málsins.
Framkvæmdirnar hafa að auki
verið kærðar af öðrum ná grönnum
skólans. Þar er því haldið fram
að deiluskipulagið sé ólöglegt.
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingamála hefur því gefið
bæjar yfirvöldum 30 daga frest til
þess að leggja fram gögn og svara
kærunni. - vg
Kæra deiliskipulag vegna framkvæmda við grunnskóla:
Ísfirskir stúkumenn aðþrengdir
FRÁ ÍSAFIRÐI Oddfellow-menn eru
ósáttir við framkvæmdir við grunn-
skólann.
SLYS Lífsspeki skáldsagnapersón-
unnar Pollýönnu, sem alltaf reyndi
að horfa á það jákvæða í lífinu,
hefur að sögn Katrínar Bjarkar
Baldvinsdóttur reynst henni vel
í þeim erfiðleikum sem hún hefur
þurft að takast á við undanfarin ár.
Eiginmaður Katrínar, Eyþór
Már Bjarnason, lenti í alvar-
legu vélhjólaslysi í Mosfellsdal á
sunnudaginn. Honum er enn haldið
sofandi en Katrín segir mikilvægt
að líkami hans nái að jafna sig
sem best áður en hægt er að vekja
hann. Hún sé ekki orðin óþreyju-
full enda geri hún sér grein fyrir
því að langt og strangt ferli er
eftir.
Aðaláverkarnir sem Eyþór Már
fékk eru í andliti en aðgerðin sem
hann fór í tók nær ellefu klukku-
stundir. Aðgerðin mun hafa tekist
nokkuð vel því Katrín segir lítið
sjást á honum miðað við þá miklu
áverka sem hann fékk. Auk and-
litsáverkanna fékk hann loftbrjóst
og er með dren úr lunganu, með
brotið bringubein, rifbein, úlnlið
og vinstra herðablað.
Engar breytingar sjást þó á
heila, hálsinn er óskaddaður og
hann getur hreyft alla útlimi.
Katrín er ekki óvön áföllum.
Sjálf glímir hún við brjósta-
krabbamein og missti barn árið
2007, þegar einn þríburanna sem
hún gekk með fæddist andvana.
„Ég fékk góða þjálfun í að takast á
við áföll eftir þá meðgöngu,“ segir
Katrín.
„Við eigum marga góða að og
höfum fengið margar fallegar
kveðjur. Í einu skiptin sem ég
hef beygt af er þegar ég hef séð
fallegar kveðjur á Facebook. Ég
verð eiginlega gáttuð þegar ég sé
hlýhug fólks.“
Fjölskylda þeirra Eyþórs Más
og Katrínar Bjarkar hefur stofnað
styrktarreikning til að að létta
undir með þeim fjárhagslega í
erfiðleikunum. Reikningurinn er
0315-13-110046 og kt. 270645-4539.
karen@stod2.is
Fjölskylda tekst á við
áföllin af æðruleysi
Fjölskyldufaðir úr Mosfellsbæ liggur þungt haldinn á spítala eftir vélhjólaslys á
sunnudaginn. Eiginkona hans kom úr krabbameinsuppskurði fimm dögum fyrir
slysið. Aðstandendur hafa stofnað styrktarreikning til að létta undir með þeim.
ERFIÐLEIKUM
MÆTT MEÐ
JÁKVÆÐNI
Mikil áföll hafa
dunið yfir fjölskyld-
una að undanförnu
en Katrín segir létt-
bærara að takast
á við sársauka af
jákvæðni.
MYND/ÚR EINKASAFNI
SJÁVARÚTVEGUR Heildarafli
íslenskra skipa í síðasta mánuði,
metinn á föstu verði, var 0,8%
meiri en í júlí í fyrra, samkvæmt
tölum Hagstofunnar.
Aflinn dróst hins vegar saman
í heildartonnum, nam alls 101.444
tonnum í júlí samanborið við
113.051 tonn í júlí 2012.
Botnfiskafli jókst um tæp 2.800
tonn frá júlí 2012 og nam tæpum
27.100 tonnum. Um helmingur
aflans er þorskur.
Afli uppsjávartegunda nam
rúmum 70.900 tonnum, sem er
rúmlega 14.400 tonnum minni afli
en í júlí 2012. Samdráttinn má
rekja til 8.900 tonna samdráttar í
síldarafla og rúmlega 8.100 tonna
samdráttar í makrílafla.
- þj
Aflatölur um júlímánuð:
Aflaverðmæti
jókst um 0,8%
SÖFNUN Rúmar sex milljónir hafa
safnast handa fjölskyldum Nataliu
Gabinsku og Mögdu Hyz, sem lét-
ust í bílslysi á Suðurlandsvegi um
verslunarmannahelgina.
Stúlkurnar voru fimmtán og
sextán ára gamlar og voru hér á
landi til að heimsækja ættingja
sína. Þær voru búsettar í Póllandi.
Bálför fór fram í fyrradag en
ýmis kostnaður vegna andlátanna
hljóp á tveimur milljónum króna.
Það sem safnaðist umfram það
verður gefið til góðgerðarmála. - js
Söfnun fyrir aðstandendur:
Yfir 6 milljónir
safnast í styrk
INNANRÍKISMÁL Hafin er vinna í
innanríkisráðuneytinu sem snýr
að því að stytta málsmeðferðar-
tíma hælisumsókna, skýra og
einfalda verklagsreglur sem og
reglugerðir og lög.
Hanna Birna Kristjáns dóttir
innanríkisráðherra átti fund
með Grete Faremo, dómsmála-
ráðherra Noregs, í síðustu viku.
Þar ræddu þær um löggjöf á
sviði útlendinga mála í Noregi
og það skipulag og verklag sem
Norðmenn hafa komið sér upp
í málaflokknum. Þá fundaði
Hanna Birna einnig með helstu
stjórnendum Útlendingastofnun-
ar Noregs.
Vænta má frekari kynningar
um málið frá ráðherra er líða fer
á haustið. - le
Fylgja fordæmi Norðmanna:
Vilja einfalda
hælisumsóknir
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
95 myndbandaleigur voru skrásettar á landinu árið
2010 samkvæmt bókum Hag-
stofunnar.
Tíu árum áður, eða árið 2000, voru
þær 202. Búast má við að leigum hafi
fækkað enn frekar á síðustu þremur
árum. Heimild: Hagstofan
FRAMKVÆMDIR Það fer nú varla fram hjá neinum, sem á leið sína fram hjá
Kórahverfi í Kópavogi, að mikil uppbygging er hafin þar á ný.
Verktakafyrirtækið Eykt vinnur nú að byggingu sextán íbúða við Austur-
kór sem verða afhentar í nóvember á þessu ári. „Salan á íbúðunum hefur
gengið vonum framar og höfum við nú þegar selt um þriðjung íbúðanna,“
segir Páll Daníel Sigurðsson, sviðstjóri framkvæmdasviðs Eyktar. Hann
segir að það sé að glæðast yfir markaðnum á ný, en uppbygging á svæðinu
hefur verið í lægð allt frá hruni.
„Við erum einnig að byggja þarna leikskóla sem vekur mikinn áhuga á
hverfinu,“ segir Páll en leikskólann á að opna í janúar á næsta ári. - le
Byggja nýjan leikskóla í hverfinu sem eykur eftirspurn:
Uppbygging í Kórahverfi hafin á ný
GLÆÐIST YFIR MARKAÐNUM Eykt vinnur nú að því að byggja sextán íbúðir við
Austurkór í Kópavogi, ásamt leikskóla, en varla nokkuð hefur verið byggt þar frá
hruni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
Hæg breytileg átt.
SNÝST Í NORÐANÁTT Hann snýr sér í hæga norðlæga átt til morguns og léttir
smám saman til á suðvesturhorninu. Annars víða skýjað með köflum og stöku skúrir,
einkum fyrir norðan.
8°
4
m/s
12°
4
m/s
12°
5
m/s
12°
7
m/s
Á morgun
Hæg norðanátt víðast hvar.
Gildistími korta er um hádegi
12°
9°
12°
10°
10°
Alicante
Basel
Berlín
30°
27°
27°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
23°
28°
27°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
24°
24°
29°
London
Mallorca
New York
22°
30°
26°
Orlando
Ósló
París
30°
20°
29°
San Francisco
Stokkhólmur
20°
20°
14°
4
m/s
13°
6
m/s
15°
5
m/s
12°
3
m/s
13°
2
m/s
12°
3
m/s
7°
4
m/s
13°
8°
15°
10°
8°