Fréttablaðið - 16.08.2013, Side 8
16. ágúst 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
1. Hvers konar fatnað framleiðir
Katrín Sylvía Símonardóttir?
2. Hvaða gítarleikari var í fararbroddi
á fyrstu tónleikum Jazzhátíðar Reykja-
víkur í Fríkirkjunni í gær?
3. Hver er uppáhaldsstaður Katrínar
Júlíusdóttur alþingiskonu?
SVÖR
1. Sundföt fyrir konur. 2. Jón Páll Bjarna-
son. 3. Dimmuborgir.
VIÐSKIPTI Smæð markaðar, óöguð
hagstjórn, fjarlægð frá öðrum
mörkuðum, skattalöggjöf og póli-
tísk áhætta eru þess valdandi að
Ísland er meðal þeirra landa heims
þar sem hömlur á erlendri fjárfest-
ingu eru hvað mestar.
„Við erum á pari við Kína, Ind-
land og Indónesíu varðandi það
hversu auðvelt er að fjárfesta hér
á landi. Það eru fjögur neðstu
löndin af öllum OECD-löndunum,“
segir Björg Hjördís Ragnarsdóttir,
höfundur B.Sc-.ritgerðar við við-
skiptadeild Háskólans í Reykjavík
sem fjallar um það hvort Ísland
sé góður fjárfestingarkostur fyrir
erlenda fjárfesta.
Hún skrifaði ritgerðina í félagi við
Þorstein Svavar Fransson. „Sund-
urlyndi íslensku stjórnmálaflokk-
anna varðandi erlenda fjárfest-
ingu veldur pólitískri óvissu, sem
leiðir til þess að erlendir fjárfestar
treysta sér tæplega til að koma með
fjármagn til landsins,“ segir Björg.
Björg segir fjárfesta gjarnan háða
duttlungum einstakra ráðherra
hvað varðar möguleika til fjárfest-
inga, sem fæli þá frá.
„Það hefur líka brunnið við að
það hefur reynst erfitt að treysta
orðum ráðherra,“ segir Björg.
Björg segir að hugsa þurfi reglur
um erlenda fjárfestingu upp á nýtt.
„Það er engin heildræn stefna til
um erlenda fjárfestingu á Íslandi,
sem veldur óstöðugleika og óvissu,“
bætir hún við. Hún segir fjölmörg
tækifæri vera hér til fjárfestingar.
„Það er nóg af tækifærum, til að
mynda í grænni orku og fleira. Það
er ekki bara í stóriðju sem hægt er
að fjárfesta hér á landi,“ segir Björg
Hjördís Ragnarsdóttir. - js
Ísland svipað Kína varðandi hömlur á erlendri fjárfestingu, að því er segir nýrri rannsókn:
Miklar hömlur og óvissa fæla fjárfesta frá
Sundur-
lyndi íslensku
stjórnmála-
flokkanna varð-
andi erlenda
fjárfestingu
veldur óvissu …
Björg Hjördís Ragnarsdóttir
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK / SKEIFAN 11
VERSLANIR UM LAND ALLT
samsungsetrid.is
www.ormsson.is
IÐNAÐUR Bandarísk yfir-
völd hafa hafið formlega
rannsókn á við skiptum
fjárfestingabankans
Goldman Sachs vegna
ásakana um að bankinn
hafi vísvitandi reynt að
halda álverði uppi. Kall-
að hefur verið eftir öllum
tölvupóstum, bréfa -
skriftum og öðrum gögn-
um til að varpa ljósi á málið.
Íslenskur ráðgjafi í orkumálum
telur að ef undið verður ofan af
iðju bankans gæti það leitt til
frekari lækkunar á heimsmark-
aðsverði áls, sem hefði aftur
áhrif á orkufyrirtæki og álfram-
leiðendur hér á landi.
Ásakanirnar snúast um 27
vöruhús sem Goldman Sachs á
og starfrækir í Detroit og hýsa
um 1,5 milljón tonna af áli,
um fjórðung þess sem til er í
heiminum. Ýmsir stórkaupendur
áls, til dæmis gosdrykkjafram-
leiðendur eins og Coca Cola,
segja að Goldman Sachs liggi á
birgðunum og tefji afgreiðslu til
að stýra verðþróun á heimsmark-
aði. Reglur kveða á um að vöru-
hús verði að flytja 3.000 tonn áls
á hverjum degi, en í nýlegri upp-
ljóstrun NY Times kom fram að
til þess að komast hjá þessum
reglum væru áleiningar fluttar
til og frá milli vöruhúsa í eigu
Goldman Sachs. Þær tafir sem
af þessu hljótast hafa seinkað
afgreiðslutíma á áli úr vöruhús-
unum úr sex vikum árið 2010,
þegar Goldman keypti vöruhúsin,
upp í sextán mánuði sem stendur.
Greinendur og drykkjarvöru-
framleiðendur telja að
þessi flétta hafi kostað
framleiðendur og neyt-
endur um fimm milljarða
Bandaríkjadala á fyrr-
greindu tímabili.
Goldman Sachs hafa
lýst því yfir að þeir telji
sig ekki hafa gert neitt
ólöglegt og hafi ekki
reynt að hafa áhrif á
álverð. Þeir hafa þó lýst því yfir
að þeir hyggist vinna að því að
stytta afgreiðslutíma.
Fleira bendir til þess að leyst
verði úr þeim flöskuhálsum sem
myndast hafa í vöruhúsum. Til
dæmis hefur málmefnamarkað-
urinn í London, sem setur reglur
um vöruhús sem þessi, lagt til
breytingar á reglunum til að auka
flæði á markaði.
Þá hefur einnig komið til álita
að bandaríski seðlabankinn fram-
lengi ekki sérstakar undan þágur
sem gera fjárfestingabönkum
kleift að stunda viðskipti á hrá-
vörumarkaði.
Ketill Sigurjónsson, lögfræð-
ingur sem hefur sérhæft sig í
auðlindalöggjöf og regluverki
raforku- og áliðnaðarins, segir
í samtali við Fréttablaðið að
aðgerðirnar gegn Goldman Sachs
geti haft áhrif hér á landi.
„Ef undið verður ofan af þessu
myndi maður ætla að álverð
myndi lækka eitthvað frá því sem
nú er. Hversu mikið er ekki gott
að segja, en almennt séð gæti
öll lækkun á álverði verið slæm
fyrir íslensku orkufyrirtækin því
að stór hluti af raforkusölunni er
tengdur álverði.“ thorgils@frettabladid.is
Aðgerðir gegn risabanka
gætu haft áhrif hér á landi
Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs liggur undir ámæli fyrir að hafa vísvitandi valdið töfum á álmarkaði til
að halda verði uppi. Ráðgjafi í orkumálum segir að uppljóstrunin gæti leitt til þess að álverð muni lækka.
KETILL
SIGURJÓNSSON
Jón Bjarki Bentsson, hagfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir að
fljótt á litið sé óvíst hvort aðgerðirnar gegn Goldman Sachs muni hafa
neikvæð áhrif á álframleiðendur hér á landi, eða hvort álverð lækki í fram-
haldinu með tilheyrandi áhrifum á orkufyrirtæki.
Þá sagði talsmaður Norðuráls að fyrirtækið vilji ekki tjá sig beint um
málið. Þeir fylgist þó með framvindunni og telji langtímahorfur á álmörk-
uðum vera góðar.
➜ Telur óvíst með áhrif hér á landi
ÁL HRINGEKJA GOLDMAN SACHS
1,5 milljónir tonna af áli eru geymdar í vöruhúsum dótturfélags Goldman
Sachs í Detroit. Bankinn er sakaður um að fara á svið við reglur og tefja
vísvitandi fyrir afhendingu pantana á áli með því að flytja álbirgðir milli
eigin vöruhúsa í þeim tilgangi að halda verði uppi.
1,5
milljónir tonna
LÍBANON, AP Að minnsta kosti
fjórtán manns létu lífið í mikilli
sprengingu síðdegis í gær í einu
úthverfa Beirút, höfuðborgar
Líbanons.
Um tuttugu manns eru særðir.
Sjá mátti mikla elda loga í götunni,
sem er í Rweiss-hverfinu, en það
er íbúðar- og verslanahverfi sem
að mestu er byggt sjía-múslímum.
Íbúarnir í hverfinu eru margir
meðal dyggustu stuðningsmanna
Hesbollah-hreyfingarinnar.
Í síðasta mánuði sprakk bíl-
sprengja í öðru hverfi skammt
frá og særðust þar meira en 50
manns. - gb
Öflug sprenging í Beirút:
Kostaði fjórtán
manns lífið
ELDAR LOGA Liðsmaður Hesbollah á
vettvangi í Beirút í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Stöðug aukning
hefur verið á verkefnum lögreglu
sem tengd eru fólki með erlent
ríkisfang síðustu þrjú árin. Þetta
kemur fram í Afbrotatíðindum
Ríkislögreglustjóra.
Ekki er einungis um afbrot
að ræða heldur einnig verkefni
vegna slysa og leitar að fólki.
Erlendur ríkisborgari getur verið
búsettur hér á landi tímabundið
en ekki haft íslenskt ríkisfang eða
verið ferðamaður. Í heildina hefur
verkefnunum fjölgað um tíu til
tólf prósent á ári frá 2010. - vg
Álag út af ferðamönnum:
Aukning vegna
útlendinga
VEISTU SVARIÐ?