Fréttablaðið - 16.08.2013, Síða 36
Næsta laugardag verður stór stund hjá mörgum áskrifendum Stöðvar 2 þegar enski
boltinn byrjar loksins að rúlla aftur eftir sumarfrí. Yfir 380 leikir verða sýndir í beinni
útsendingu í vetur á Stöð 2 Sport 2 og fjórum hliðarrásum. Síðasta vetur var Sunnudags-
messan vikulega á dagskrá í umsjón Guðmundar Benediktssonar og Hjörvars Hafliða-
sonar. Þátturinn heldur áfram í vetur en færist nú yfir á mánudagskvöld og hefst þegar
mánudagsleiknum lýkur.
Guðmundur er eðlilega mjög spenntur yfir vetrinum og
býst við spennandi tímabili. „Þáttur okkar verður með svip-
uðu sniði og í fyrra nema hann færist til á mánudags kvöldið.
Sem fyrr verðum við tveir í setti en í vetur fáum við líka
Bjarna Guðjónsson, fyrirliða KR, í lið með okkur. Ég hvet
alla fótboltaáhugamenn til að stilla á Stöð 2 Sport 2 á mánu-
dagskvöldið.“
Enska deildin verður gríðarlega sterk í vetur og mörg
lið hafa styrkt sig fyrir átökin. „Ég geri ráð fyrir
að Manchester City og Chelsea verði mjög sterk í
vetur. Bæði liðin hafa nýja knattspyrnustjóra og
er til dæmis hinn litríki José Mourinho snúinn
aftur til Chelsea. City hefur auk þess bætt við
sig fjórum til fimm leikmönnum á heimsmæli-
kvarða. United, Arsenal og Tottenham koma
þar á eftir og svo er spurning hvað gerist hjá
Liverpool. Raunar má segja að öll lið deildar-
innar séu sterk og í raun ómögulegt að spá í
dag hvernig deildin þróast.“
Félagsskiptaglugginn lokast eftir 15 daga og
segir Guðmundur því enn von fyrir mörg lið til að
styrkja sig enn frekar.
Fyrsti þáttur Mánudagsmessunnar verður á dag-
skrá mánudaginn 19. ágúst kl. 21, strax á eftir leik
Manchester City – Newcastle.
ENSKI BOLTINN Í
MÁNUDAGSMESSUNNI
ÓMISSANDI
STÓRLEIKIR FRAM UNDAN
Í ENSKA BOLTANUM
Það bíða margir spenntir eftir
því að keppni í ensku úrvals-
deildinni hefjist á ný. Stóra
stundin rennur upp um helgina
þegar fyrsta umferðin fer fram
og verða allir leikirnir sýndir í
beinni útsendingu á Stöð 2 Sport
2 og hliðarrásum.
Það eru fjölmargir stórleikir
fram undan og strax í annarri
umferð tekur Manchester Uni-
ted á móti Chelsea á Old Traf-
ford. Sunnudagurinn 1. septem-
ber er síðan ómissandi fyrir alla
fótboltaáhugamenn en þá mæt-
ast Liverpool og Manchester
United á Anfield Road og strax í
kjölfarið er komið að nágranna-
slag Arsenal og Tottenham á
The Emirates.
Hver stórleikurinn rekur
annan í allan vetur og Stöð 2
Sport 2 verður á vaktinni með
áhugaverða þætti um allt það
sem gerist innan sem utan
vallar.
Fyrsta umferðin
Það er við hæfi að fyrsti leikur-
inn í úrvalsdeildinni fari fram
á Anfield Road í Liverpool,
heimavelli eins sigursælasta
liðs enska boltans frá upphafi.
Liverpool tekur á móti Stoke
City sem nú er undir stjórn
Mark Hughes, fyrrverandi
framherja Manchester United.
Útsending hefst klukkan 11.35.
Strax að þeim leik loknum
taka við fimm leikir í beinni og
þar ber hæst viðureign Arsenal
og Aston Villa á The Emirates.
Á sama tíma er einnig frum-
raun Cardiff City með Aron
Einar Gunnarsson innanborðs í
úrvalsdeildinni en liðið heim-
sækir West Ham.
Meistararnir í Manchester
United mæta til leiks klukkan
16.15 þegar liðið heim sækir
Swansea City. Það er fyrsti
deildarleikur liðsins undir
stjórn David Moyes og það
verður spennandi að sjá hvernig
liðið leikur undir hans stjórn í
vetur.
United er með svipað lið og
tryggði félaginu titilinn í vor en
hefur bætt við sig kantmann-
inum Wilfried Zaha, sem hefur
slegið í gegn í æfingaleikjunum
í sumar.
Gylfi klár í slaginn
Gylfi Sigurðsson er á sínu öðru
tímabili með Tottenham og það
má búast við að hann fái stærra
hlutverk í vetur ef félagið selur
Gareth Bale á næstu vikum eins
og búist er við.
Tottenham mætir til leiks á
sunnudag þegar liðið heimsækir
nágranna sína í Crystal Palace.
Á sunnudag mætir Jose Mour-
inho einnig til leiks í enska bolt-
anum á ný sem stjóri Chelsea en
liðið tekur á móti nýliðum Hull
City klukkan 15.00 á sunnu-
daginn.
Fyrstu umferðinni lýkur
síðan á mánudagskvöld þegar
Manchester City tekur á móti
Newcastle United.
Allir leikirnir verða gerðir
upp í Messunni eftir leikinn á
mánudagskvöld þar sem Guð-
mundur Benediktsson er sem
fyrr við stjórnvölinn.
Fyrsta umferðin í ensku úrvalsdeildinni
fer fram um helgina. Stöð 2 Sport 2 er
eina sjónvarpsstöðin í Evrópu sem hefur
leyfi til að sýna alla leikina í ensku
úrvals deildinni í beinni útsendingu í vetur.
Glæný sjónvarpsauglýsing fyrir enska
boltann verður frumsýnd í Íslandi í dag á
Stöð 2 í kvöld. Þar mætir Guðjón Þórðar-
son aftur til leiks í enska boltanum og
messar yfir íþróttafréttamönnum stöðvar-
innar.
Hugmyndin að auglýsingunni kviknaði
fyrir skömmu þegar Hörður Magnússon
gróf upp myndband með Guðjóni frá því
hann var þjálfari KR og var að búa liðið
undir leik gegn Everton í Evrópukeppni
bikarhafa árið 1995. Hann hélt þrumuræðu
yfir leikmönnum sínum á hóteli í Liverpool
fyrir leikinn og það vakti mikla athygli
þegar það var sýnt á Stöð 2 á sínum tíma.
Nú verður þessi þrumuræða endurtekin
með nýjum áherslum og íþróttafréttamenn
Stöðvar 2 eru teknir í bakaríið.
Guðjón Þórðarson er öllum hnútum
kunnugur í enska boltanum þar sem hann
var framkvæmdastjóri hjá Stoke City
á árunum 1999-2002 og hóf endurreisn
félagsins. Hann hefur einnig stýrt Barns-
ley, Notts County og Crewe í neðri deild-
unum og það eru fáir sem búa yfir jafn-
mikilli þekkingu á boltanum í Englandi og
Guðjón. Hann mun fá fast hlutverk á Stöð
2 Sport 2 í vetur og krydda umfjöllunina
á stöðinni, enda er Guðjón ekki vanur
að liggja á skoðunum sínum. Það eru því
spennandi tímar fram undan fyrir íslenska
sjónvarpsáhorfendur.
GUÐJÓN
TEKUR SPORT-
STRÁKANA Í BAKARÍIÐ
4 FÖSTUDAGUR 16. ágúst 2013